REGLUGERÐ
um
verðmiðlunargjald af mjólk.
1. gr.
Innheimta
verðmiðlunargjalds.
Landbúnaðarráðherra ákveður upphæð verðmiðlunargjalds af
afurðum mjólkur og skal því varið til verkefna skv. 2. mgr. 19. gr. laga nr.
99/ 1993 um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum, sbr. breytingu með
lögum nr. 129/1993.
Frá 1. júní 1994 skal upphæð gjaldsins vera kr. 0,65 á
hvern lítra mjólkur, sem lagður er inn í afurðastöð innan greiðslumarks.
Ráðherra tilkynnir breytingar á upphæð verðmiðlunargjalda til Framleiðsluráðs
landbúnaðarins og fimmmannanefndar.
Framleiðsluráð landbúnaðarins leggur gjaldið á samkvæmt
innvigtunarskýrslum afurðastöðva og innheimtir það mánaðarlega. Gjalddagi er
25. dag næsta mánaðar eftir innvigtun og eindagi 30 dögum síðar.
2. gr.
Skipting tekna
milli verkefna.
Framleiðsluráð landbúnaðarins og Samtök afurðastöðva í
mjólkuriðnaði (SAM) gera tillögu um skiptingu tekna af verðmiðlunargjöldum
milli eftirfarandi verkefna:
a) Rekstrarstyrkja til afurðastöðva, sbr. 3. gr.
b) Jöfnunar á f1utningskostnaði frá framleiðanda að
afurðastöð, sbr. 4. gr.
c) Til að styrkja flutninga á hráefni og mjólkurvörum milli
afurðastöðva, sbr. 5. gr.
Óheimilt er að ráðstafa umfram 85% af árstekjum til
verkefna samkvæmt liðum a og b og umfram 25% til verkefna samkvæmt c-lið.
Aldrei má ráðstafa meiru en árstekjum af verðmiðlunargjaldi samanlagt til
ofangreindra verkefna.
3. gr.
Rekstrarstyrkir
til afurðastöðva.
Afurðastöðvar, sem nauðsynlegt er að starfrækja vegna
landfræðilegrar einangrunar eða hagkvæmt þykir að starfrækja vegna fjarlægðar
frá næstu afurðastöð, geta notið rekstrarstyrkja af innheimtu verðmiðlunarfé,
enda sé sýnt fram á þörf fyrir slíka styrki.
Framleiðsluráð landbúnaðarins skal fyrir 1. maí ár hvert
gera tillögu til landbúnaðarráðherra um hvaða afurðastöðvar skuli njóta
rekstrarstyrkja og um upphæðir styrkjanna samkvæmt eftirfarandi reglum:
1. Rekstrarstyrkur veitist eingöngu afurðastöðvum sem
uppfylla ákvæði 64. gr. laga nr. 99/1993 um aðgreiningu bókhalds og fjárreiða
afurðastöðva frá öðrum rekstri og ákvæði 3. gr. rg. nr. 46/ 1994 um frágang og
endurskoðun ársreikninga fyrir árið 1993.
2. Rekstrarstyrkur getur að hámarki orðið sem nemur
áætluðum kostnaði við að flytja þá mjólk sem framleidd er innan greiðslumarks á
svæði viðkomandi afurðastöðvar, frá henni að næstliggjandi afurðastöð sem getur
tekið við mjólkinni til vinnslu og árlegum flutningskostnaði á seldu magni af
nýmjólk, léttmjólk, undanrennu, rjóma, súrmjólk og skyri, að þeirri afurðastöð
sem nýtur styrks frá næstliggjandi afurðastöð/afurðastöðvum sem sinnt geta
þeirri eftirspurn. Framleiðsluráð metur þann flutningskostnað sem um ræðir og
skal fara eftir auglýstum töxtum, tilboðum eða öðrum þeim gögnum sem réttust verða
talin.
3. Rekstrarstyrkur skal þó aldrei nema hærri upphæð en
framreiknuð verðmiðlun skv. lánskjaravísitölu til viðkomandi afurðastöðvar
fyrir árið 1993.
4. Fari samanlögð styrkþörf þeirra afurðastöðva, sem
Framleiðsluráð metur styrkhæfar, fram úr því fé sem til ráðstöfunar er, skal
lækka styrkina hlutfallslega miðað við reiknað hámark í 2. og 3. tl. þessarar
greinar.
5. Greiða skal 80% af þeim rekstrarstyrk sem
landbúnaðarráðherra samþykkir til hverrar afurðastöðvar með jöfnum,
mánaðarlegum greiðslum frá maí til desember, en ljúka uppgjöri, þegar
ársreikningur hefur verið lagður fram, enda sé hann í samræmi við skilyrði í 1.
tl. þessarar greinar. Þar til styrktarupphæð hefur verið ákveðin er
Framleiðsluráði heimilt að greiða samkvæmt áætlun.
4. gr.
Jöfnun
flutningskostnaðar.
Reikna skal hámark flutningsjöfnunar frá framleiðendum til
afurðastöðva á eftirfarandi hátt:
1. Fundinn skal meðalkostnaður á hvern lítra við flutning
mjólkur að hverri afurðastöð á árinu að frádregnum tekjum vegna annarra
flutninga eða þjónustu.
2. Flutningsstyrkur skal því aðeins greiddur að kostnaður á
hvern lítra sé meira en 20% yfir meðalflutningskostnaði á landinu. Greiða skal
að hámarki 80% af þeim kostnaði sem er umfram 120% af meðalflutningskostnaði á
hvern lítra.
3. Fari útreiknuð styrkþörf samkvæmt þessari grein fram úr
ráðstöfunarfé eftir skiptingu samkvæmt 2. gr. skal lækka styrkina hlutfallslega
jafnt til allra búa.
5. gr.
Styrkir til
flutninga milli afurðastöðva.
Samtök afurðastöðva í mjólkuriðnaði skulu samkvæmt
verkaskiptasamningi meta þörfina fyrir flutninga á hráefni og á tilteknum
dagvörum (nýmjólk, léttmjólk, undanrenna, súrmjólk, rjómi og skyr) milli svæða.
Flutningar skulu því aðeins styrktir að þeir séu liður í verkaskiptingu milli
afurðastöðva sem eykur hagkvæmni mjólkurvinnslunnar í heild.
Ávallt skal leitast við að flutningar séu með sem
hagkvæmustum hætti og skulu styrkir miðast við fasta fjárhæð í hvert verkefni.
Framleiðsluráð landbúnaðarins ynnir greiðslur af hendi eftir áætlun sem
staðfest er af SAM.
Þær afurðastöðvar sem sækja um styrk skulu gera áætlun um
vörumagn og tímabil sem millisvæðaflutningar ná yfir.
Heimilt er að greiða sérstaka flutningastyrki samkvæmt
samningi til afurðastöðva, sem hafa yfirtekið viðskipti á framleiðslu- og
sölusvæðum, þar sem rekstur mjólkurbúa er lagður af.
6. gr.
Reglugerð þessi, sem er sett samkvæmt heimild í 27. gr.
laga nr. 99/1993 um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum, með síðari
breytingum, öðlast þegar gildi.
Landbúnaðarráðuneytið,
3. mars 1994.
Halldór Blöndal.
Jón Höskuldsson.
Word útgáfa af reglugerð