|
|
122/2011
REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð um almannaflug flugvéla, nr. 694/2010
og reglugerð um almannaflug þyrlna, nr. 695/2010.
I. KAFLI
Breyting á reglugerð um almannaflug flugvéla, nr. 694/2010.
1. gr. 9. gr. orðast svo:
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 28. gr. e. og 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998 með síðari breytingum og öðlast þegar gildi að undanskilinni grein 6.4 í viðauka I við reglugerðina sem tekur gildi 1. janúar 2013. Jafnframt fellur úr gildi reglugerð nr. 488/1997 um almannaflug með síðari breytingum.
II. KAFLI
Breyting á reglugerð um almannaflug þyrlna, nr. 695/2010.
2. gr. 9. gr. orðast svo:
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 28. gr. e. og 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998 með síðari breytingum og öðlast þegar gildi að undanskilinni grein 6.4 í viðauka I við reglugerðina sem tekur gildi 1. janúar 2013.
3. gr.
Gildistaka. Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 28. gr. e. og 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998 með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.
Innanríkisráðuneytinu, 31. janúar 2011.
Ögmundur Jónasson. Ragnhildur Hjaltadóttir.

Stofnreglugerðir: 694/2010 - Reglugerð um almannaflug flugvéla. 695/2010 - Reglugerð um almannaflug þyrlna.
|