Prentað þann 4. maí 2024
121/1971
Reglugerð um verkaskiptingu milli félagsmálaráðs og áfengisvarnanefndar Reykjavíkur
1. gr.
Verkaskipting milli félagsmálaráðs og áfengisvarnarnefndar í Reykjavík er, sem greinir í reglugerð þessari.
2. gr.
Áfengisvarnarnefnd fer með:
- Starf til eflingar bindindisstarfsemi í Reykjavík.
- Almennt fræðslu- og upplýsingastarf um bindindis- og áfengismál.
- Eftirlit með lögboðinni bindindisfræðslu í skólum.
- Aðstoð við yfirvöld til að halda hlýðni við áfengislög og jafnframt reyna að vinna gegn ólöglegri framleiðslu og meðferð áfengis.
- Ráðgjöf um bindindis- og áfengismál. Í hví sambandi skal áfengisvarnarnefnd vera umsagnaraðili um umsóknir um vínveitingaleyfi og umsóknir um endurveitingu ökuleyfa.
3. gr.
Félagsmálaráð fer með:
- Aðstoð til handa drykkjusjúkum mönnum og þeim öðrum, sem misnota áfengi. Aðstoð skal jöfnum höndum fólgin í ráðleggingum og aðstoð í persónulegum og félagslegum vandamálum sem og fyrirgreiðslu um meðferð og læknishjálp, jafnt á sjúkrahúsum og hælum sem utan stofnana.
- Aðstoð og r:íðleggingar til fjölskyldna og aðstandenda drykkjusjúkra einstaklinga.
- Uppbyggingu og rekstur þeirra vistheimila og vinnuhæla fyrir drykkjusjúklinga, sem Reykjavíkurborg kann að reka.
4. gr.
Komi upp ágreiningur um skýringar á reglugerð þessari, sker heilbrigðisráðuneyti úr.
Reglugerð þessi, sem er sett samkvæmt áfengislögum nr. 82/1969 öðlast þegar gildi.
Heilbrigðis og tryggingamálaráðuneytið, 7. júlí 1971.
Eggert G. Þorsteinsson.
Jón Ingimarsson.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.