Félagsmálaráðuneyti

1205/2007

Reglugerð um breytingu á reglugerð um þjónustu við fötluð börn og fjölskyldur fatlaðra, nr. 155/1995, með síðari breytingum. - Brottfallin

1. gr.

Fjárhæðir sem nefndar eru í reglugerðinni skulu breytast þannig:

Í 3. mgr. 11. gr. komi 13.000 kr. í stað 12.600 kr. (1. fl.), 10.000 kr. í stað 9.700 kr. (2. fl.) og 7.700 kr. í stað 7.400 kr. (3. fl.).

Í 1. mgr. 12. gr. komi 800 kr. í stað 780 kr.

2. gr.

Reglugerð þessi sem sett er með stoð í lögum um málefni fatlaðra, nr. 59/1992, með síðari breytingum, öðlast gildi 1. janúar 2008.

Félagsmálaráðuneytinu, 18. desember 2007.

Jóhanna Sigurðardóttir.

Óskar Páll Óskarsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica