Félags- og tryggingamálaráðuneyti

1193/2008

Reglugerð um eingreiðslur til elli- og örorkulífeyrisþega árið 2009. - Brottfallin

1. gr.

Á fjárhæð tekjutryggingar skv. 22. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar, með síðari breytingum, og fjárhæð heimilisuppbótar skv. 8. gr. laga nr. 99/2007 um félagslega aðstoð, með síðari breytingum, skal greiða uppbætur sem hér segir á árinu 2009:

  1. Í júlí 2009 20% uppbót á þessar fjárhæðir vegna orlofsuppbótar.
  2. Í desember 2009 30% uppbót á þessar fjárhæðir vegna desemberuppbótar.

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 70. gr., sbr. 69. gr., laga nr. 100/2007 um almannatryggingar, með síðari breytingum, og 14. gr. laga nr. 99/2007 um félagslega aðstoð, með síðari breytingum, öðlast gildi 1. janúar 2009. Jafnframt fellur úr gildi reglugerð nr. 1227/2007, um eingreiðslur til elli- og örorkulífeyrisþega árið 2008.

Félags- og tryggingamálaráðuneytinu, 23. desember 2008.

Jóhanna Sigurðardóttir.

Ágúst Þór Sigurðsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica