Stjórnarráðið  |  Ríkisstjórn  |  Réttarheimildir  |  Alþingi  |
 
Stjórnarráð Íslands    
  Forsíða  
 

  Reglugerðir

með breytingum
eftir ráðuneytum
eftir ártali
eftir köflum í safninu
brottfallnar
Leit
 

118/2002

REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 80/2001 um jöfnun tekjutaps
sveitarfélaga vegna lækkunar tekna af fasteignaskatti.

1. gr.
    2. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar verður svohljóðandi:
    Upplýsingum um breytingar á skrá Fasteignamats ríkisins, sbr. 1. mgr., skal skilað á eyðublöðum sem Jöfnunarsjóður lætur sveitarfélögum í té. Á þeim skal tilgreina eftirfarandi atriði:
a.fasteignir sem undanþegnar eru álagningu fasteignaskatts skv. 1. mgr. 6. gr. reglugerðar um fasteignaskatt, nr. 945/2000, eða ákvæðum sérlaga,
b.ákvarðanir sveitarfélags um lækkun eða niðurfellingu álagðs fasteignaskatts vegna fasteigna sem falla undir 1.-4. mgr. 7. gr. reglugerðar nr. 945/2000,
c.lækkun fasteignaskatts vegna samninga við stóriðjufyrirtæki,
d.leiðréttingar sem sveitarfélög gera vegna fasteigna þar sem flokkun eða mat hefur breyst, svo sem í kjölfar endurmats eða úrskurðar yfirfasteignamatsnefndar,
e.beitingar mismunandi álagningarprósentu í sameinuðu sveitarfélagi, sbr. 5. mgr. 7. gr. reglugerðar nr. 945/2000,
f.endanlega niðurstöðu álagningar vegna fasteigna þar sem nýting er með þeim hætti að ákvæði 3. mgr. 4. gr., 2. mgr. 6. gr. eða 8. gr. reglugerðar nr. 945/2000 eiga við.


2. gr.
Við bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:
Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. 5. gr. skal Jöfnunarsjóður sveitarfélaga greiða til sveitarfélaga á árinu 2002 framlag fyrirfram sem nemur 60% af áætluðu framlagi, miðað við framlag á fjárlögum þess árs.


3. gr.
Reglugerð þessi er sett á grundvelli laga um tekjustofna sveitarfélaga, nr. 4/1995, með síðari breytingum, og öðlast þegar gildi.


Félagsmálaráðuneytinu, 25. janúar 2002.

Páll Pétursson.
Húnbogi Þorsteinsson.

nr_118_2002.doc
Stofnreglugerð:
080/2001 - Reglugerð um jöfnun tekjutaps sveitarfélaga vegna lækkunar tekna af fasteignaskatti.

 
Stjórnartíðindi - Sölvhólsgötu 7 - 150 Reykjavík Sími 545 9000
Bréfasími 552 7340 - Netfang: reglugerdir@irr.is
Prentvænt