Hoppa beint í aðalvalmynd
Stjórnarráðið  |  Ríkisstjórn  |  Réttarheimildir  |  Alþingi  |
 
Stjórnarráð Íslands    
  Forsíða  
 

  Reglugerðir

með breytingum
eftir ráðuneytum
eftir ártali
eftir köflum í safninu
brottfallnar
Leit
 

1163/2006
REGLUGERÐ
um breytingu á byggingarreglugerð nr. 441/1998.


1. gr.
Grein 4.16 orðast svo:
4.16Eldvarnarveggur: Veggur úr óbrennanlegum efnum, sbr. a lið 147. gr., sem stendur á sjálfstæðri undirstöðu og hefur a.m.k. 120 mínútna brunamótstöðu.


2. gr.
Á eftir orðunum „einangrun slíkra lagna“ í 40. gr. kemur: gaslögnum og tilheyrandi öryggisbúnaði.


3. gr.
2. málsl. gr. 62.1 orðast svo: Nýtingarhlutfall, sbr. gr. 4.27, skal vera í samræmi við gildandi aðal- og deiliskipulag.


4. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 71. gr.:
a.Við gr. 71.2 bætist nýr málsliður svohljóðandi: Gámana skal staðsetja þannig að ekki sé hætta á að eldur geti borist frá þeim í aðliggjandi hús.
b.Við bætist ný málsgrein svohljóðandi:

71.5Byggingarfulltrúa er heimilt að leyfa að frístundahús sé smíðað á lóð í iðnaðarhverfum enda sé þess gætt að staðsetning þess valdi ekki hættu á að eldur berist úr því í aðliggjandi hús. Ennfremur skal þess gætt að frístundahúsið torveldi ekki aðgengi slökkviliðs að aðliggjandi húsum.


5. gr.
75. gr. ásamt fyrirsögn orðast svo:
Bil milli húsa.
75.1 Bil milli húsa skal vera nægjanlega mikið til að ekki sé hætta á að eldur nái að breiðast út á milli þeirra.
75.2 Sé ekki sýnt fram á að annað sé nægjanlegt til að uppfylla 1. mgr. skulu fjarlægðir í eftirfarandi töflu notaðar fyrir hús með brunaálagi undir 500 MJ/m² gólfs og með utanhússklæðningu í flokki 1. Séu klæðningar í flokki 2 og enginn eldvarnarveggur á milli húsa skulu fjarlægðir auknar um 1 m fyrir hvort hús með klæðningu í flokki 2.
 Lágmarksfjarlægðir á milli húsa:

BrunamótstaðaREI 30REI 60REI 120-M
REI 308 m7 m0 m
REI 607 m6 m0 m
REI 120-M0 m0 m0 m
 
75.3Minnka má lágmarksfjarlægð milli húsa skv. gr. 75.2 vegna þakskeggs eða annarra útkragandi byggingarhluta, þó aldrei meira en 0,5 m fyrir hvort hús.
75.4Brunamálastofnun skal gefa út leiðbeiningar um útreikning á bili milli húsa samkvæmt þessari grein.


6. gr.
Grein 80.8 orðast svo:
80.8Aðkoma að öðrum rýmum íbúðar en þvottaherbergi má ekki vera um baðherbergi eða salerni.


7. gr.
Grein 81.4 orðast svo:
81.4Hverri íbúð í fjölbýlishúsi skal fylgja sameiginleg geymsla fyrir barnavagna, reiðhjól og þess háttar. Stærð geymslunnar skal vera a.m.k. 2 m² á hverja íbúð. Geymslan má vera í tvennu lagi og aðgengi um sameign eða utanfrá. Aðgengi um bílageymslu er þó óheimil.


8. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 84. gr.:
a.Tilvísunin „sbr. gr. 7.2.2.“ í 1. málsl. gr. 84.5 fellur niður.
b. Í stað tilvísunarinnar „sbr. 8.5.2.1“ í gr. 84.8 kemur: sbr. gr. 187.1 og 187.9.


9. gr.
Við 87. gr. bætist ný málsgrein svohljóðandi:
87.4Loftræsiherbergi skal vera brunahólf EI 60 með EI2 30-Sm hurðum.


10. gr.
Við 101. gr. bætist ný málsgrein svohljóðandi:
101.4Við breytingar á atvinnuhúsnæði, sem er allt að 4 hæðir, í íbúðarhúsnæði er heimilt að sleppa svölum. Á útvegg í hverri íbúð skal þá vera hurðarop með handriði í samræmi við ákvæði reglugerðar þessarar. Slíkt hurðarop skal gert á herbergi sem er brunahólf EI 60 með klæðningum í flokki 1 og hurð í flokki EI2 30-Sm. Í húsinu skal vera sjálfvirkt brunaviðvörunarkerfi tengt vaktstöð.


11. gr.
Í stað 1. og 2. málsl. gr. 102.6 kemur einn málsliður svohljóðandi: Opnanlegir gluggar skulu vera rennigluggar eða hliðarhengdir gluggar og skal vera hægt að opna þá um 90% af fletinum.


12. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 103. gr.:
a.Grein 103.4 orðast svo:
103.4Dyr á milli íbúðar og bílskúrs mega ekki opnast beint inn í meginrými eða inn í kyndiklefa, heldur í millirými, svo sem geymslu, þvottahús eða anddyri sem hefur hurð að íbúð. Hurð í bílskúrsveggnum skal vera a.m.k. EI2 30-CSm.
b.3. málsliður gr. 103.10 orðast svo: Sé svefndeild ekki sérstakt brunahólf sbr. 153. gr. skal vera björgunarop í hverju svefnherbergi.


13. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 104. gr.:
a.Við gr. 104.8 bætist nýr málsliður svohljóðandi: Hæðarskil skulu vera a.m.k. REI90.
b.Grein 104.15 orðast svo:
104.15Í svalagangshúsum skal hámarksfjarlægð frá íbúðardyrum að stigahúsdyrum vera 15 metrar. Á húsum þar sem hæð upp í björgunarop frá jörðu er mest 10,8 m má auka þessa fjarlægð upp í 25 m enda sé hægt að reisa stiga slökkviliðs við enda svalagangsins fjærst stigahúsinu. Á svalagangshúsum skulu einnig vera svalir á öllum íbúðum á þeim hliðum hússins sem ekki hafa svalagang. Brunamálastofnun skal gefa út leiðbeiningar um frágang svalagangshúsa, m.a. um mögulega lokun á svalagangi og svölum.
c.Grein 104.16 orðast svo:
104.16Veggklæðningar innanhúss mega vera í flokki 2 í húsum sem eru tvær hæðir eða lægri. Í hærri húsum skulu þær vera í flokki 1.


14. gr.
Við gr. 109.6 bætist nýr málsliður svohljóðandi: Sé sett upp sjálfvirkt brunaviðvörunarkerfi sbr. 161. gr. má tvöfalda hámarksstærðir rýma samkvæmt gr. 109.5 og 109.6.


15. gr.
Grein 115.7 orðast svo:
115.7Varðandi eldstæði og reykháfa vísast til 192. og 193. gr.


16. gr.
Fyrirsögn 127. gr. breytist og verður: Formbreytingar og óvenjulegt álag.


17. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 130. gr.:
a.Hvarvetna í gr. 130.2 breytist mælieiningin „mm“ í: μm.
b.Grein 130.3 orðast svo:
130.3 Ál sem nota á í byggingar utanhúss skal vera seltuþolið. Við hönnun skal taka tillit til þess að hætta er á tæringu áls þegar það er í snertingu við steypu eða eðlari málma og raki eða bleyta er til staðar.


18. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 131. gr.:
a.Í stað orðanna „S 160 skv. ÍST 10“ í b lið gr. 131.11 kemur: C16 skv. íslensku þolhönnunarstöðlunum, sbr. gr. 126.2.
b.1. málsliður gr. 131.12 orðast svo: Ef steypu sem gerð er skv. gr. 131.11 er dælt á byggingarstað skal mæla loftinnihald eftir dælingu.
c.Í stað orðsins „Leyfið“ í 1. málslið gr. 131.13 kemur: Leyfi skv. gr. 131.11.


19. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 132. gr.:
Grein 132.4 orðast svo:
132.4 Hæðaskil yfir kjallara skulu vera a.m.k. REI 60 B-s1d0.

Á eftir orðunum „skulu vera“ í gr. 132.8 kemur: a.m.k.


20. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 135. gr.:
a.Á eftir orðinu „veggflatar“ í gr. 135.9 kemur: utanhúss.
b.Grein 135.11. orðast svo:
135.11Brennanlega einangrun má ekki nota í léttbyggð þök eða óvarða ofan á loftplötu að þakrými. Nota má brennanlega einangrun ofan á steypta þakplötu utanhúss enda komi þakklæðning í flokki B(roof) (t2) ofan á einangrunina og óbrennanlegt farg þar ofan á. Brunamálastofnun skal gefa út leiðbeiningar um frágang einangrunar ofan á steypta plötu utanhúss.


21. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 136. gr.:
Í stað orðanna „pappaþak (minnst 3 lög)“ í gr. 136.3 kemur: pappaþak (minnst 2 lög).
Við gr. 136.3 bætist nýr málsliður svohljóðandi: Ef óskað er eftir að nota aðrar læstar málmklæðningar en að framan greinir skal sýna viðkomandi byggingarfulltrúa fram á þéttleika skeyta með prófunum eða á annan fullnægjandi hátt.
Í stað táknsins T í gr. 136.8 kemur eftirfarandi tákn: B(roof) (t2).



22. gr.
144. gr. ásamt fyrirsögn orðast svo:
Brunaprófanir.
144.1Brunaflokkun vöru og byggingarhluta samkvæmt reglugerð þessari skal gerð í samræmi við ákvæði eftirfarandi staðla: ÍST EN 13501-1, ÍST EN 13501-2, ÍST EN 13501-3, ÍST EN 13501-4 og ÍST EN 13501-5. Þar sem í reglugerð þessari er vísað til brunaflokkunar og brunatákna skv. eldri stöðlum skal gerð krafa um sambærilega vöru eða byggingarhluta skv. flokkun gildandi staðla sbr. 145.-147. gr.


23. gr.
145. gr. ásamt fyrirsögn orðast svo:
Brunatákn sem ber að nota.
145.1Taka skal upp viðurkennd evrópsk brunatákn jafnóðum og þau öðlast samþykki hér á landi.
145.2Brunamótstaða byggingarhluta er skilgreind samkvæmt orðsendingu framkvæmdastjórnar EBE nr. 94/C 62/01. Þar er brunamótstaða uppgefin í mínútum miðað við staðlaða brunaáraun í samræmi við staðalinn ISO 834 eða prófun við raunbrunaaðstæður. Í reglugerð þessari er merking brunatákna eftirfarandi:
 a.Prófuð og viðurkennd brunamótstaða byggingarhluta:
  R er burðargeta í mínútum, t.d. R120.
  E er heilleiki (þéttleiki) í mínútum, t.d. E60.
  I er einangrun í mínútum, t.d. I30.
  I2 er einangrun á eldvarnarhurðum í mínútum.
 b.Viðbótartákn með tiltekinni merkingu:
  C táknar hurðir eða hlera með sjálfvirkum lokunarbúnaði, t.d. EI2 30-C.
  Sa eða Sm táknar byggingarhluta með sérútbúnað til að hindra útbreiðslu reyks og hita, t.d. eldvarnarhurð með þröskuldi: EI2 30-CSm. Sa táknar að miðað er við 20°C en Sm við 200°C hita.
  M táknar byggingarhluta sem skal þola nánar tilgreint aflfræðilegt aukaálag, t.d. högg.
  W táknar einangrunargildi og er ákvarðað á grundvelli geislunar.
  K táknar klæðningu sem nær að verja brennanlegt undirlag (19 mm spónaplötu) gegn skemmdum í 10 mín.
145.3 Í reglugerð þessari er grunnflokkun byggingarefna (annarra en gólf- og þakefna) eftir viðbragði við eldi eftirfarandi:
 a.A1 táknar byggingarvörur sem ekki taka þátt í bruna. Undirflokkar ná ekki til þeirra.
 b.A2 táknar byggingarvörur sem taka nær engan þátt í bruna. Skal tengjast undirflokkum fyrir reyk (s) og brennandi dropa (d).
 c.B táknar byggingarvörur sem taka óverulegan þátt í bruna. Skal tengjast undirflokkum fyrir reyk (s) og brennandi dropa (d).
 d.C táknar byggingarvörur sem taka í takmörkuðum mæli þátt í bruna. Skal tengjast undirflokkum fyrir reyk (s) og brennandi dropa (d).
 e.D táknar byggingarvörur sem taka þátt í bruna með ásættanlegum hætti. Skal tengjast undirflokkum fyrir reyk (s) og brennandi dropa (d).
 f.E táknar byggingarvörur sem taka hlutfallslega mikinn þátt í bruna. Skal tengjast undirflokkum fyrir reyk (s) og brennandi dropa (d).
 g.F táknar að ekki sé staðfest að byggingarvaran uppfylli neinar flokkunarkröfur og geti því ekki tengst neinum undirflokki.
 h.Undirflokkun fyrir reykmyndun og brennandi dropa, sbr. b-f liði, er eftirfarandi:
  s1 hefur mjög takmarkaða reykmyndun.
  s2 hefur takmarkaða reykmyndun.
  s3 hefur enga takmörkun á reykmyndun.
  d0 myndar enga brennandi dropa eða agnir.
  d1 myndar óverulegt magn brennandi dropa eða agna.
  d2 hefur enga takmörkun á magni brennandi dropa eða agna.


24. gr.
146. gr. ásamt fyrirsögn orðast svo:
Dæmi um algenga notkun brunatákna.
146.1Berandi byggingarhluti:
 a.A-REI60, táknað B-s1,d0 skv. gildandi stöðlum, sbr. gr. 144.1: Kröfur um burðargetu, heilleika og einangrun skulu vera uppfylltar í a.m.k. 60 mínútur.
 b.RE60: Kröfur um burðargetu og heilleika skulu vera uppfylltar í a.m.k. 60 mínútur.
 c.R60: Kröfur um burðargetu skulu vera uppfylltar í a.m.k. 60 mínútur.
146.2Ekki berandi byggingarhluti:
 a.EI30, táknað EI 30 B-s1,d0 skv. gildandi stöðlum, sbr. gr. 144.1: Kröfur um heilleika og einangrun skulu vera uppfylltar í a.m.k. 30 mínútur.
 b.E30: Kröfur um heilleika skulu vera uppfylltar í a.m.k. 30 mínútur.
 c.EI-CS30, táknað EI2 30-CSm skv. gildandi stöðlum sbr. gr. 144.1: Brunahólfandi hurð þar sem kröfur um heilleika og einangrun skulu vera uppfylltar í a.m.k. 30 mínútur. Ráðstafanir gerðar til reykþéttingar og sjálfvirkur lokunarbúnaður.


25. gr.
147. gr. ásamt fyrirsögn orðast svo:
Byggingarefni.
147.1 Brunamálastofnun eða annar viðurkenndur aðili úrskurðar um brunaflokkun byggingarefna sem skal byggja á viðurkenndum stöðlum.
 a.Óbrennanlegt byggingarefni skal a.m.k. uppfylla ákvæði ÍST EN 13501-1 um flokkunina A2-s1,d0.
 b.A-efni: Byggingarefni sem er illbrennanlegt og breiðir ekki út eld. Það skal a.m.k. uppfylla ákvæði ÍST EN 13501-1 um flokkunina B-s1,d0.
 c.B-efni: Byggingarefni sem erfiðlega kviknar í, breiðir hægt út eld og myndar takmarkaðan reyk við bruna. Það skal uppfylla ákvæði ÍST EN 13501-1 um flokkunina D-s1,d0.
 d.Eldnæmt byggingarefni: Byggingarefni sem ekki nær að uppfylla kröfur til flokks D-s1,d0 og má ekki nota óvarið í byggingar.


26. gr.
148. gr. ásamt fyrirsögn orðast svo:
Klæðning í flokki 1.
148.1Klæðning í flokki 1 skal uppfylla skilyrði ÍST EN 13501-1 um flokkunina K10 B-s1,d0. Þau eru helst:
 a.Klæðningin í heild sinni eða ysta yfirborð hennar skal a.m.k. hafa sömu brunaeiginleika og byggingarefni í flokki B-s1,d0, sbr. b. lið gr. 147.1.
 b.Klæðningin skal vera nægilega þykk til að hindra íkviknun í brennanlegu efni á bak við klæðninguna í a.m.k. 10 mínútur.
148.2Brunamálastofnun ríkisins setur nánari reglur eða skilyrði um lágmarksþykkt klæðningar í flokki 1 með hliðsjón af brunaeiginleikum undirlags og því hvort holrúm er á bak við klæðninguna.


27. gr.
149. gr. ásamt fyrirsögn orðast svo:
Klæðning í flokki 2.
149.1Klæðning í flokki 2 skal uppfylla skilyrði ÍST EN 13501-1 um flokkunina K10 D-s1,d0. Þau eru helst:
 a.Klæðningin í heild sinni eða ysta yfirborð hennar skal hafa sömu brunaeiginleika og byggingarefni í flokki D-s1,d0, sbr. c. lið gr. 147.1.
 b.Klæðningin skal vera nægilega þykk til að hindra íkviknun í brennanlegu efni á bak við klæðninguna í a.m.k. 10 mínútur.
149.2Brunamálastofnun setur nánari reglur eða skilyrði um lágmarksþykkt klæðningar í flokki 2 með hliðsjón af brunaeiginleikum undirlags og því hvort holrúm er á bak við klæðninguna.


28. gr.
150. gr. ásamt fyrirsögn orðast svo:
Eldtreg gólfefni, G.
150.1 Gólfefni flokkast í eftirfarandi flokka samkvæmt ÍST EN 13501-1: A1fl, A2fl, Bfl, Cfl, Dfl, Efl, Ffl. Flokkarnir A1fl, Efl, og Ffl tengjast ekki undirflokki en A2fl, Bfl, Cfl, og Dfl tengjast undirflokkum s1 og s2 fyrir reyk, sbr. h-lið gr. 145.3. Gólfefni skulu flokkast a.m.k. sem Dfl-s1. Brunamálastofnun setur nánari reglur eða skilyrði um fyrirkomulag og frágang gólfefna.


29. gr.
151. gr. ásamt fyrirsögn orðast svo:
Eldhindrandi þakklæðning.
151.1 Þakklæðning skal flokkast a.m.k. sem B(roof) (t2) samkvæmt ÍST EN 13501-5. Brunamálastofnun setur nánari leiðbeiningar um fyrirkomulag og frágang þakklæðninga.


30. gr.
160. gr. ásamt fyrirsögn orðast svo:
Neyðarlýsing og útljós.
160.1 Hönnun neyðarlýsingar og útljósa, þar sem slíks er krafist, skal vera í samræmi við ÍST EN 1838, ÍST EN 50171, ÍST EN 50172 og leiðbeiningar sem Brunamálastofnun skal gefa út eða vísar til og eftirfarandi reglur:
 a.Útljós skal setja yfir eða við útgöngudyr til að leiðbeina fólki að þeim. Auk þess skal koma fyrir útljósum á öðrum stöðum þannig að þau séu sýnileg frá hvaða stað sem er í sölum eða flóttaleiðum og rata megi með hjálp þeirra einna út undir bert loft á jörð niður eða til öruggs staðar innanhúss, hvort sem um er að ræða aðal- eða neyðarútganga. Útljós skulu vera græn að lit með hvítu merki eða hvít með grænu merki, auk leiðbeininga eftir því sem við á, sbr. reglur um öryggis- og heilbrigðismerkingar á vinnustöðum. Þau skulu vera sílogandi.
b.Varastraumgjafar skulu vera vararafstöðvar eða rafhlöður sem taka sjálfvirkt við ef aðalstraumgjafi bilar.


31. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 164. gr.:
a. Grein 164.1 orðast svo:
164.1Slöngukefli skulu vera í samræmi við ÍST EN 671-1.
b.Orðin „ríkisins og gerð búnaðarins skal öðlast viðurkenningu stofnunarinnar“ í e. lið gr. 164.2 falla niður.


32. gr.
Grein 187.17 orðast svo:
187.17Loftrásir, ætlaðar til að flytja eim frá steikingarstöðum og öðrum slíkum stöðum þar sem matseld fer fram á svipaðan hátt, skulu vera með heilsoðnum samsetningum og ganga órofnar upp fyrir þak eða beint út um útvegg þar sem slíkt þykir henta. Þær skulu vera E 30 B-s1,d0 og þannig gerðar að auðvelt sé að hreinsa þær. Þær skulu hafa viðeigandi eldvarnarbúnað og fitugildrur í samræmi við leiðbeiningar Brunamálastofnunar.


33. gr.
Orðin „ríkisins og Rannsóknastofnunar byggingariðnaðarins“ í gr. 192.6 falla niður.


34. gr.
Orðin „ríkisins og Rb blaðs“ í gr. 193.6 falla niður.


35. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 201. gr.:
Á eftir orðunum „eldsvoða“ í gr. 201.14 kemur: sbr. þó gr. 201.15.
Við 201. gr. bætist ný málsgrein svohljóðandi:
201.15Brunavarnarlyfta sem slökkvilið getur nýtt við björgun og ætluð er sem flóttaleið skal gerð samkvæmt ákvæðum ÍST EN 81-72 um brunavarnarlyftur. Slík lyfta skal ætíð hafa minnst tvo óháða straumgjafa.


36. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 202. gr.:
a.Orðin „fyrir fjölmenni“ í gr. 202.5 falla niður.
b.Við gr. 202.10 bætist nýr málsliður svohljóðandi: Samfelldur handlisti skal staðsettur í 0,8-0,9 m hæð.


37. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 207. gr.:
a.Fyrirsögn breytist og verður: Gangur og stigi í flóttaleið.
b.Tvær nýjar málsgreinar bætast við svohljóðandi:
207.4Frí breidd stiga í flóttaleið skal vera a.m.k. 1,3 m eða jafnbreið gangi sem að stiganum liggur sbr. gr. 207.2. Þegar hús er búið lyftu samkvæmt gr. 201.15 má þó minnsta breidd hans vera 0,9 m mælt milli handriða.
207.5Hringstiga má ekki nota í flóttaleið sem er ætluð fyrir fleiri en 50 manns né fyrir meira en 4 hæðir.


38. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 208. gr.:
a.Við gr. 208.2 bætist nýr málsliður svohljóðandi: Í stórum rýmum sem rúma yfir 150 manns skal slíkur búnaður vera í samræmi við ÍST EN 179 og ÍST EN 1125.
b.Við gr. 208.3 bætist nýr málsliður svohljóðandi: Brunamálastofnun skal gefa út leiðbeiningar um rafdrifnar rennihurðir í flóttaleiðum.


39. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 37. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.


Umhverfisráðuneytinu, 21. desember 2006.


Jónína Bjartmarz.
Magnús Jóhannesson.
B_nr_1163_2006.doc
Stofnreglugerð:
441/1998 - Byggingarreglugerð.

 

Stjórnartíðindi - Skuggasundi - 150 Reykjavík Sími 545 9000
Bréfasími 552 7340 - Netfang: reglugerdir@dmr.stjr.is
Prentvænt