|
|
116/2010
REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 13/2009, um nám og námskeið
sem eru viðurkennd sem vinnumarkaðsúrræði.
1. gr. Eftirfarandi breytingar verða á 1. gr. reglugerðarinnar:
a. E-liður 1. mgr. verður svohljóðandi: Námskeið/nám sem haldið er á vegum endurmenntunarstofnana á háskólastigi sem ekki verður metið til eininga.
b. F-liður 1. mgr. verður svohljóðandi: Nám á námsbrautum á framhaldsskólastigi sem leiða til framhaldsskólaprófs, nám á verk- og starfsnámsbrautum á framhaldsskólastigi og frumgreinanám sem boðið er á forsendum fullorðinsfræðslu, þ.e. námið og uppbygging þess tekur mið af og er sniðið að þörfum fólks sem hefur verið þátttakandi á vinnumarkaði.
c. Við greinina bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
Þrátt fyrir 2. mgr. er Vinnumálastofnun heimilt þegar sérstaklega stendur á að viðurkenna nám á námsbrautum sem leiða til stúdentsprófs hjá framhaldsskólum sem vinnumarkaðsúrræði.
2. gr. Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 3. mgr. 12. gr. laga nr. 55/2006, um vinnumarkaðsaðgerðir, að fenginni umsögn stjórnar Vinnumálastofnunar, öðlast þegar gildi.
Félags- og tryggingamálaráðuneytinu, 15. febrúar 2010.
Árni Páll Árnason. Bjarnheiður Gautadóttir.

Stofnreglugerð: 013/2009 - Reglugerð um nám og námskeið sem eru viðurkennd sem vinnumarkaðsúrræði.
|