Stjórnarráðið  |  Ríkisstjórn  |  Réttarheimildir  |  Alþingi  |
 
Stjórnarráð Íslands    
  Forsíða  
 

  Reglugerðir

með breytingum
eftir ráðuneytum
eftir ártali
eftir köflum í safninu
brottfallnar
Leit
 

1158/2007

REGLUGERÐ
um (1.) breytingu á reglugerð nr. 463/1999 um framkvæmd almannatrygginga
og skráningu í tryggingaskrá.

1. gr.
Í 2. málsl. 1. gr. falla brott orðin „Hagstofu Íslands“.


2. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 8. gr.:
  1. Í stað orðanna „32. gr. laga nr. 117/1993“ í 1. málsl. 1. mgr. kemur: 37. gr. laga nr. 100/2007.
  2. Í stað orðsins „Sjúkratryggingadeild“ í 1. málsl. 2. mgr. kemur: Tryggingastofnun ríkisins.


3. gr.
Í stað „38. gr.“ í 1. og 2. málsl. 9. gr. kemur: 43. gr.


4. gr.
7. og 8. mgr. 11. gr. falla brott.


5. gr.
Í stað orðanna „Útlendingaeftirlitinu“ og „Hagstofu Íslands“ í 18. gr. koma orðin „Útlendingastofnun“ og „Þjóðskrá“.


6. gr.
19. gr. fellur brott.


7. gr.
23. gr. orðast svo:
Við framkvæmd reglugerðar þessarar skal taka mið af ákvæðum milliríkjasamninga um almannatryggingar sem Ísland er aðili að, þ.m.t. lagaskilareglum.

Tryggingastofnun ríkisins getur gert samkomulag við stjórnvöld í öðrum ríkjum um undantekningar frá lagaskilareglum reglugerðar Evrópusambandsins nr. 1408/71 um almannatryggingar í samræmi við 17. gr. þeirrar reglugerðar í þágu ákveðinna einstaklinga eða hópa einstaklinga. Við gerð slíks samkomulags skal Tryggingastofnun taka mið af hagsmunum einstaklingsins. Þó skal samkomulag aldrei gert til lengri tíma en 5 ára.


8. gr.
Reglugerð þessi sem sett er með stoð í 15. gr., 4. mgr. 37. gr. og 70. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar, með síðari breytingu, öðlast þegar gildi.

Við samningu reglugerðar þessarar var höfð hliðsjón af reglugerðum Evrópusambandsins nr. 1408/71 og nr. 574/72 um almannatryggingar, með síðari breytingum, og ákvörðunum og tilmælum framkvæmdaráðs Evrópusambandsins um félagslegt öryggi farandlaunþega sem eru hluti af EES-samningnum.


Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu, 7. desember 2007.

Guðlaugur Þór Þórðarson.
Ragnheiður Haraldsdóttir.

B_nr_1158_2007.doc

Stofnreglugerð:
463/1999 - Reglugerð um framkvæmd almannatrygginga og skráningu í tryggingaskrá.

 
Stjórnartíðindi - Sölvhólsgötu 7 - 150 Reykjavík Sími 545 9000
Bréfasími 552 7340 - Netfang: reglugerdir@irr.is
Prentvænt