Fara beint í efnið

Prentað þann 29. mars 2024

Stofnreglugerð

1150/2014

Reglugerð um umdæmi lögreglustjóra.

1. gr.

Landinu er skipt í níu lögregluumdæmi. Eiga sveitarfélög undir hvert þeirra, sem hér segir:

  1. Umdæmi lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu:
    Reykjavíkurborg, Seltjarnarnesbær, Mosfellsbær, Kjósarhreppur, Hafnarfjarðarkaupstaður, Garðabær og Kópavogsbær.
    Aðalstöð lögreglustjóra: Höfuðborgarsvæðið.
    Lögreglustöðvar: Lögreglustöðvar eru samkvæmt ákvörðun ráðherra hverju sinni eftir tillögu lögreglustjóra.
  2. Umdæmi lögreglustjórans á Vesturlandi:
    Akraneskaupstaður, Hvalfjarðarsveit, Skorradalshreppur, Borgarbyggð, Snæfellsbær, Eyja- og Miklaholtshreppur, Grundarfjarðarbær, Helgafellssveit, Stykkishólmsbær og Dalabyggð.
    Aðalstöð lögreglustjóra: Borgarnes.
    Lögreglustöðvar: Akranes, Stykkishólmur, Búðardalur, Ólafsvík, Grundarfjörður.
  3. Umdæmi lögreglustjórans á Vestfjörðum:
    Reykhólahreppur, Vesturbyggð, Tálknafjarðarhreppur, Bolungarvíkurkaupstaður, Ísafjarðarbær, Súðavíkurhreppur, Árneshreppur, Kaldrananeshreppur og Strandabyggð.
    Aðalstöð lögreglustjóra: Ísafjörður.
    Lögreglustöðvar: Patreksfjörður, Hólmavík.
  4. Umdæmi lögreglustjórans á Norðurlandi vestra:
    Húnaþing vestra, Húnavatnshreppur, Blönduósbær, Sveitarfélagið Skagaströnd, Skagabyggð, Sveitarfélagið Skagafjörður og Akrahreppur.
    Aðalstöð lögreglustjóra: Sauðárkrókur.
    Lögreglustöð: Blönduós.
  5. Umdæmi lögreglustjórans á Norðurlandi eystra:
    Fjallabyggð, Dalvíkurbyggð, Hörgársveit, Akureyrarkaupstaður, Eyjafjarðarsveit, Svalbarðsstrandarhreppur, Grýtubakkahreppur, Þingeyjarsveit, Skútustaðahreppur, Norðurþing, Tjörneshreppur, Svalbarðshreppur og Langanesbyggð.
    Aðalstöð lögreglustjóra: Akureyri.
    Lögreglustöðvar: Húsavík, Siglufjörður, Dalvík, Þórshöfn.
  6. Umdæmi lögreglustjórans á Austurlandi:
    Vopnafjarðarhreppur, Fljótsdalshreppur, Fljótsdalshérað, Borgarfjarðarhreppur, Seyðisfjarðarkaupstaður, Fjarðabyggð, Breiðdalshreppur og Djúpavogshreppur.
    Aðalstöð lögreglustjóra: Eskifjörður.
    Lögreglustöðvar: Egilsstaðir, Seyðisfjörður, Vopnafjörður, Neskaupstaður, Fáskrúðsfjörður, Djúpivogur.
  7. Umdæmi lögreglustjórans á Suðurlandi:
    Sveitarfélagið Hornafjörður, Skaftárhreppur, Mýrdalshreppur, Rangárþing eystra, Rangárþing ytra, Ásahreppur, Sveitarfélagið Árborg, Flóahreppur, Skeiða- og Gnúpverjahreppur, Hrunamannahreppur, Bláskógabyggð, Grímsnes- og Grafningshreppur, Hveragerðisbær og Sveitarfélagið Ölfus.
    Aðalstöð lögreglustjóra: Hvolsvöllur.
    Lögreglustöðvar: Selfoss, Vík, Kirkjubæjarklaustur, Höfn.
  8. Umdæmi lögreglustjórans í Vestmannaeyjum:
    Vestmannaeyjabær.
    Aðalstöð lögreglustjóra: Vestmannaeyjabær.
  9. Umdæmi lögreglustjórans á Suðurnesjum:
    Grindavíkurbær, Sandgerðisbær, Sveitarfélagið Garður, Reykjanesbær og Sveitarfélagið Vogar.
    Aðalstöð lögreglustjóra: Reykjanesbær.
    Lögreglustöðvar: Grindavík, Sandgerði, Garður, Vogar, Flugstöð Leifs Eiríkssonar.

2. gr.

Ef mörk milli umdæma lögreglustjóra eru óskýr, svo sem á hálendinu, ákveður ráðherra í hvaða umdæmi mál komi til úrlausnar.

Á sama hátt ákveður ráðherra í hvaða umdæmi mál komi til úrlausnar ef það getur af einhverjum ástæðum átt undir fleiri en einn lögreglustjóra.

3. gr.

Með lögreglustöð er átt við starfsstöð lögreglu utan aðalstöðvar lögreglustjóra. Lögreglustjóri ákveður viðverutíma lögreglu á lögreglustöðvum.

4. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 2. og 3. mgr. 6. gr. lögreglulaga nr. 90/1996, sbr. lög nr. 51/2014 um breytingu á lögreglulögum, nr. 90/1996, með síðari breytingum öðlast gildi 1. janúar 2015. Fellur þá úr gildi reglugerð nr. 66/2007, um stjórnsýsluumdæmi sýslumanna og lögregluumdæmi lögreglustjóra, með áorðnum breytingum.

Innanríkisráðuneytinu, 19. desember 2014.

Ólöf Nordal.

Ragnhildur Hjaltadóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.