Stjórnarráðið  |  Ríkisstjórn  |  Réttarheimildir  |  Alþingi  |
 
Stjórnarráð Íslands    
  Forsíða  
 

  Reglugerðir

með breytingum
eftir ráðuneytum
eftir ártali
eftir köflum í safninu
brottfallnar
Leit
 

114/2011

REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 1051/2009, um veiðar á sæbjúgum.

1. gr.
Við reglugerðina bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða svohljóðandi:

Þrátt fyrir ákvæði 2. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar er þeim bátum sem sóttu um leyfi til sæbjúgnaveiða á fiskveiðiárinu 2010/2011, en fengu eigi, heimilt til loka þess fiskveiðiárs, að stunda veiðar á svæði B, enda fái þeir til þess leyfi Fiskistofu.


2. gr.
Reglugerð þessi er gefin út með stoð í lögum nr. 79/1997 um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, með síðari breytingum og lögum nr. 116/2006 um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum til að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum sem hlut eiga að máli.


Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 4. febrúar 2011.

F. h. r.
Kristján Freyr Helgason.
Indriði Björn Ármannsson.

B_nr_114_2011.docx

Stofnreglugerð:
1051/2009 - Reglugerð um veiðar á sæbjúgum.

 
Stjórnartíðindi - Sölvhólsgötu 7 - 150 Reykjavík Sími 545 9000
Bréfasími 552 7340 - Netfang: reglugerdir@irr.is
Prentvænt