Stjórnarráðið  |  Ríkisstjórn  |  Réttarheimildir  |  Alþingi  |
 
Stjórnarráð Íslands    
  Forsíða  
 

  Reglugerðir

með breytingum
eftir ráðuneytum
eftir ártali
eftir köflum í safninu
brottfallnar
Leit
 

1139/2010

REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 205/2007 um lofthæfi- og umhverfisvottun loftfara
og tilheyrandi framleiðsluvara, hluta og búnaðar og vottun hönnunar-
og framleiðslufyrirtækja, ásamt síðari breytingum.

1. gr.
Markmið.
Markmið reglugerðar þessarar er að auka öryggi í flugi með því að innleiða reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1194/2009 frá 30. nóvember 2009 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 1702/2003 um framkvæmdarreglur varðandi lofthæfi- og umhverfisvottun loftfara og tilheyrandi framleiðsluvara, hluta og búnaðar og varðandi vottun hönnunar- og framleiðslufyrirtækja.


2. gr.
Við 4. gr. bætist nýr töluliður sem orðast svo:
8.Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1194/2009 frá 30. nóvember 2009 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 1702/2003 um framkvæmdarreglur varðandi lofthæfi- og umhverfisvottun loftfara og tilheyrandi framleiðsluvara, hluta og búnaðar og varðandi vottun hönnunar- og framleiðslufyrirtækja, sbr. leiðréttingar sem birtust í Stjtíð. ESB L 336, 18.12.2009, bls. 58 og Stjtíð. ESB L 58, 9.3.2010, bls. 23, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 76/2010 frá 11. júní 2010. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 71, 16. desember 2010, bls. 246.


3. gr.
Gildistaka.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 7. mgr. 28. gr., sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998, með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.


Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 20. desember 2010.

Ögmundur Jónasson.
Ragnhildur Hjaltadóttir.

B_nr_1139_2010.docx

Stofnreglugerð:
205/2007 - Reglugerð um lofthæfi- og umhverfisvottun loftfara og tilheyrandi framleiðsluvara, hluta og búnaðar og vottun hönnunar- og framleiðslufyrirtækja.

 
Stjórnartíðindi - Sölvhólsgötu 7 - 150 Reykjavík Sími 545 9000
Bréfasími 552 7340 - Netfang: reglugerdir@irr.is
Prentvænt