Fara beint í efnið

Prentað þann 29. mars 2024

Stofnreglugerð

1133/2007

Reglugerð um gildistöku reglugerðar Evrópusambandsins um innleiðingu alþjóðlegra reikningsskilastaðla (VI).

1. gr.

Eftirfarandi reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB), sem vísað er til á eftir lið 10ba í XXII. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 71/2005, frá 29. apríl 2005, um breytingu á XXII. viðauka (Félagaréttur) við EES-samninginn, skal öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XXII. viðauka samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samningsins:

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 2238/2004 frá 29. desember 2004 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 1725/2003 um innleiðingu tiltekinna, alþjóðlegra reikningsskilastaðla í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1606/2002 að því er varðar alþjóðlegan reikningsskilastaðal IFRS 1, IAS-staðla nr. 1 til 10, 12 til 17, 19 til 24, 27 til 38, 40 og 41 og túlkanir fastanefndarinnar um túlkanir (SIC-túlkanir) nr. 1 til 7, 11 til 14, 18 til 27 og 30 til 33.

2. gr.

Reglugerð framkvæmdastjórnar (EB) nr. 2238/2004 og ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 71/2005, sbr. 1. gr. sem birt hefur verið í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi EB nr. 46, dags. 15. september 2005, bls. 38-39, eru birtar sem fylgiskjal með reglugerð þessari.

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 1. mgr. 127. gr. laga nr. 3/2006, um ársreikninga, skal gilda fyrir félög sem skylt er eða nýta sér heimild til að semja ársreikninga sína og samstæðureikninga í samræmi við innleidda alþjóðlega reikningsskilastaðla, öðlast þegar gildi og skal gilda fyrir hvert það reikningsár sem hefst 1. janúar 2007 eða síðar.

Fjármálaráðuneytinu, 5. nóvember 2007.

F. h. r.

Baldur Guðlaugsson.

Þórður Reynisson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.