Dóms- og kirkjumálaráðuneyti

1120/2006

Reglugerð um veitingu leyfa til ættleiðingar. - Brottfallin

1. gr.

Sýslumaðurinn í Búðardal skal frá og með 1. janúar 2007 annast veitingu leyfa til ættleiðingar.

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 41. gr. laga um ættleiðingar, nr. 130 31. desember 1999, með síðari breytingu, sbr. og 1. gr. sömu laga, sbr. 10. gr. laga nr. 143 15. desember 2006, öðlast gildi 1. janúar 2007.

Dóms- og kirkjumálaráðuneytinu, 28. desember 2006.

Björn Bjarnason.

Þorsteinn Geirsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica