Stjórnarráðið  |  Ríkisstjórn  |  Réttarheimildir  |  Alþingi  |
 
Stjórnarráð Íslands    
  Forsíða  
 

  Reglugerðir

með breytingum
eftir ráðuneytum
eftir ártali
eftir köflum í safninu
brottfallnar
Leit
 

112/2011

REGLUGERÐ
um (1.) breytingu á reglugerð nr. 270/2010 um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 401/2006 um aðferðir við sýnatöku
og greiningu vegna opinbers eftirlits með innihaldi sveppaeiturs í matvælum.

1. gr.
Innleiðing.
Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í XII. kafla II. viðauka skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af II. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 100/2010, frá 1. nóvember 2010, öðlast eftirfarandi EB-gerð gildi hér á landi:
    Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 178/2010 frá 2. mars 2010 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 401/2006 að því er varðar jarðhnetur, önnur olíufræ, trjáhnetur, apríkósukjarna, lakkrís og jurtaolíu. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 5. frá 27. janúar 2011, bls. 92.

2. gr.
Eftirlit.
Matvælastofnun og heilbrigðisnefndir sveitarfélaga undir yfirumsjón Matvælastofnunar fara með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar vegna matvælaeftirlits sé framfylgt í samræmi við 6. og 22. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli.


3. gr.
Þvingunarúrræði og viðurlög.
Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 30. gr., 30. gr. a – 30. gr. e og 31. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli.


4. gr.
Lagastoð.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. a laga nr. 93/1995 um matvæli.


5. gr.
Gildistaka.
Reglugerðin tekur þegar gildi.


Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 31. janúar 2011.

Jón Bjarnason.
Baldur P. Erlingsson.

B_nr_112_2011.docx

Stofnreglugerð:
270/2010 - Reglugerð um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 401/2006 um aðferðir við sýnatöku og greiningu vegna opinbers eftirlits með innihaldi sveppaeiturs í matvælum.

 
Stjórnartíðindi - Sölvhólsgötu 7 - 150 Reykjavík Sími 545 9000
Bréfasími 552 7340 - Netfang: reglugerdir@irr.is
Prentvænt