Fara beint í efnið
Fyrri útgáfa

Prentað þann 28. mars 2024

Reglugerð með breytingum síðast breytt 15. okt. 2020

1106/2015

Reglugerð um vöruval, innkaup og dreifingu ÁTVR á áfengi.

Birta efnisyfirlit

I. KAFLI Almenn ákvæði.

1. gr. Markmið.

Reglugerð þessi miðar að því að tryggja fjölbreytt vöruúrval í verslunum Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins (ÁTVR), m.a. með hliðsjón af eftirspurn og væntingum viðskiptavina, jafnframt því að tryggja framleiðendum og birgjum möguleika á að koma vörum í sölu í vínbúðum fyrirtækisins.

2. gr. Gildissvið.

Reglugerð þessi gildir um vöruval, innkaup og dreifingu ÁTVR á áfengi.

3. gr. Framkvæmd.

ÁTVR fer með framkvæmd reglugerðar þessarar og skal haga framkvæmdinni í samræmi við ákvæði laga, nr. 86/2011, um verslun með áfengi og tóbak, og reglugerðar nr. 756/2011, um Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins, ákvæði áfengislaga, nr. 75/1998, og stefnu stjórnvalda í áfengismálum á hverjum tíma.

Jafnræðis skal gætt við framkvæmd ákvæða reglugerðarinnar.

4. gr. Skilgreiningar.

Í reglugerð þessari er merking orða sem hér segir:

  1. Áfengi: Hver sá neysluhæfur vökvi sem í er að rúmmáli meira en 2,25% af hreinum vínanda.
  2. Framlegð: Mismunur innkaups- og söluverðs vöru að frádregnum virðisaukaskatti.
  3. Birgir: Handhafi leyfis til að stunda heildsölu áfengis í atvinnuskyni samkvæmt áfengislögum nr. 75/1998.
  4. Vara: Áfengi og smásöluumbúðir þess. Hver vara fær sérstakt vörunúmer í skrám ÁTVR.
  5. Vöruúrval: Vörur sem boðnar eru til sölu í vínbúðum ÁTVR.

II. KAFLI Umsóknir, vörubreytingar, verðboð o.fl.

5. gr. Stofnsamningur um vörukaup.

Stofnsamningur um vörukaup er heildarsamningur á milli ÁTVR og birgis sem tekur til allra vörukaupa samkvæmt reglugerð þessari. Í stofnsamningi um vörukaup skulu koma fram allar nauðsynlegar upplýsingar um birgi svo sem reiknings- og samskiptaupplýsingar og hverjir geta skuldbundið hann gagnvart ÁTVR.

Í stofnsamningi um vörukaup skal m.a. kveðið á um:

  1. Vanefndaúrræði.
  2. Framsal réttinda.
  3. Gildistíma.
  4. Uppsagnarfresti.

Við undirritun stofnsamnings um vörukaup skal birgir leggja fram skriflega staðfestingu á að hann sé handhafi leyfis til þess að stunda heildsölu áfengis í atvinnuskyni samkvæmt áfengislögum, nr. 75/1998. Nú fellur heildsöluleyfið úr gildi, þar sem gildistími þess er liðinn eða vegna afturköllunar, og verður þá stofnsamningur um vörukaup þegar ógildur gagnvart ÁTVR.

Umsókn um sölu skv. 7. gr. reglugerðar þessarar verður ekki afgreidd nema fyrir liggi fullgildur stofnsamningur um vörukaup.

Vara verður ekki boðin til sérpöntunar skv. 21. gr. reglugerðar þessarar nema fyrir liggi fullgildur stofnsamningur um vörukaup.

Heimilt er að gera rafrænan stofnsamning um vörukaup.

6. gr. Vefsvæði.

ÁTVR skal halda úti opnu vefsvæði þar sem m.a. skal birta reglur og upplýsingar sem stofnunin setur eða ber að birta samkvæmt ákvæðum reglugerðar þessarar.

Birgir fær aðgang að aðgangsstýrðu vefsvæði, birgjavef, þegar stofnsamningur hefur verið undirritaður.

7. gr. Umsókn um sölu.

Birgir skal sækja skriflega um að vara verði tekin í sölu og dreifingu hjá ÁTVR. Rafræn umsókn sem fyllt er út og send ÁTVR í gegnum vefsvæði stofnunarinnar er fullgild umsókn.

ÁTVR skal að jafnaði afgreiða umsókn um sölu innan þriggja vikna frá móttöku fullbúinnar umsóknar.

Umsókn um sölu skal fylgja:

  1. Vöruvottun.
  2. Sýnishorn vöru, a.m.k. 500 millilítrar.
  3. Ytri smásöluumbúðir þegar við á.
  4. Staðfesting á greiðslu umsóknargjalds.

Fylgigögn vegna umsóknar um sölu á vöru eru að jafnaði óafturkræf.

8. gr. Umsóknargjald.

ÁTVR er heimilt að innheimta gjald af birgjum vegna kostnaðar sem leiðir af töku nýrrar vöru til sölu, þar með talið til sérpöntunar. Skal gjaldið eingöngu standa straum af þeim kostnaði sem til fellur vegna skráningar, könnunar og annarra nauðsynlegra ráðstafana af hálfu ÁTVR við að taka nýja vöru til sölu. Fjárhæð umsóknargjalds skal endurskoðað reglulega.

ÁTVR setur gjaldskrá umsóknargjalds og birtir hana á vefsvæði sínu.

9. gr. Úrbætur og andmæli.

Uppfylli vara og/eða umsókn um sölu ekki þau skilyrði sem sett eru í ákvæðum reglugerðar þessarar skal ÁTVR gera umsækjanda grein fyrir því og veita honum frest til úrbóta og/eða til að andmæla áður en ákvörðun er tekin um afgreiðslu umsóknarinnar.

10. gr. Vörukaupasamningur.

Vörukaupasamningur er samningur ÁTVR og birgis um innkaup ÁTVR á tiltekinni vöru. Um samninginn fer samkvæmt ákvæðum reglugerðar þessarar.

Vörukaupasamningur verður skuldbindandi fyrir ÁTVR og birgi við samþykkt stofnunarinnar á umsókn um sölu samkvæmt 7. gr. reglugerðar þessarar.

Í vörukaupsamningi skulu m.a. koma fram upplýsingar um:

  1. Vöruheiti,
  2. vörunúmer.
  3. vöruverð,
  4. framleiðanda vöru,
  5. árgang vöru,
  6. uppruna vöru,
  7. styrkleika vínanda,
  8. stærð umbúða,
  9. tegund umbúða.

ÁTVR getur lagt inn vörupöntun hjá birgi um leið og vörukaupasamningur er kominn á. Að beiðni birgis er ÁTVR heimilt að fresta því að setja vöru í sölu í verslunum sínum þegar sérstakar aðstæður eru fyrir hendi.

Nú fellur vara samkvæmt vörukaupasamingi úr vöruvali ÁTVR þar sem hún nær ekki árangursviðmiðum söluflokka og fellur þá vörukaupasamningur um hana þá þegar úr gildi.

11. gr. Vörubreytingar.

Umbúðum og innihaldi vöru sem vörukaupasamningur hefur verið gerður um verður ekki breytt á samningstímanum án samþykkis ÁTVR.

Allar vörubreytingar skulu tilkynntar til ÁTVR sem metur, með hliðsjón af umfangi breytinga á innihaldi og/eða umbúðum, hvort vörubreytingin rúmast innan marka gildandi vörukaupasamnings.

Tilkynningu um vörubreytingu skulu fylgja öll nauðsynleg sýnishorn.

12. gr. Verðboð.

Umsókn birgis um sölu á vöru sem þá þegar er í gildi vörukaupasamningur um á milli ÁTVR og annars birgis, sbr. 10. gr. reglugerðar þessarar, nefnist verðboð. Um verðboð gilda almennar reglur í reglugerð þessari, þ.m.t. ákvæði 7. gr. reglugerðarinnar, nema annað sé sérstaklega tekið fram.

ÁTVR skal hafna verðboði ef:

  1. verðboð í vöruna hefur verið samþykkt á síðastliðnum sjö mánuðum,
  2. verðboði í vöruna hefur verið hafnað á grundvelli 7. eða 8. mgr. á síðastliðnum sjö mánuðum,
  3. ástæða er til að ætla að umsækjandi muni ekki efna vörukaupasamning um vöruna,
  4. atvik eru eins og mælt er fyrir um í 7. eða 8. mgr.

ÁTVR skal tilkynna handhafa vörukaupasamnings um framkomið verðboð svo fljótt sem verða má.

Uppfylli verðboð almenn skilyrði reglugerðar þessarar og höfnunarástæður skv. a-, b- eða c-lið 2. mgr. eiga ekki við þá skal ÁTVR samtímis tilkynningu skv. 3. mgr. gefa handhafa vörukaupasamnings færi á, innan hóflegs tímafrests, að breyta vöruverði skv. gildandi vörukaupasamningi.

Bæði boðið verð umsækjanda og breytt verð handhafa vörukaupasamnings skv. 4. mgr. skulu afhent ÁTVR í lokuðu umslagi eða með sambærilegum hætti. ÁTVR skal hvorki upplýst um boðið verð né breytt verð skv. 4. mgr. á meðan á vinnslu verðboðs stendur.

Þegar vinnslu verðboðs er að öðru leyti lokið skal aflétta leynd hins boðna verðs umsækjanda og í framhaldinu, með fyrirvara um lokamálslið 7. mgr., aflétta leynd hins breytta verðs handhafa vörukaupasamnings.

ÁTVR skal hafna verðboði ef boðið verð umsækjanda er jafnhátt eða hærra en vöruverð samkvæmt gildandi vörukaupasamningi. Skal þá verðbreyting handhafa vörukaupasamnings skv. 4. mgr. ekki koma til frekari skoðunar og er hún þá ekki bindandi fyrir hann.

ÁTVR skal hafna verðboði, þrátt fyrir að boðið verð umsækjanda sé lægra en vöruverð samkvæmt gildandi vörukaupasamningi, ef boðið verð umsækjanda er jafnhátt eða hærra en breytt vöruverð handhafa vörukaupasamnings skv. 4. mgr. Hið breytta verð handhafa vörukaupasamnings skal taka gildi þremur mánuðum eftir að verðboði er hafnað og er þá óheimilt að hækka verð í fjóra mánuði frá því tímamarki er breytt verð tekur gildi.

ÁTVR skal samþykkja verðboð ef boðið verð umsækjanda er lægra en vöruverð samkvæmt gildandi vörukaupasamningi að teknu tilliti breytts vöruverðs handhafa vörukaupasamnings skv. 4. mgr. ef við á. Skal ÁTVR þá gera nýjan vörukaupasamning við umsækjanda sem tekur gildi að liðnum gildistíma gildandi vörukaupasamnings, sbr. 11. mgr.

Verðákvæði nýs vörukaupasamnings skv. 9. mgr. skal vera í samræmi við boðið verð umsækjanda og er umsækjanda, þ.e. handhafa nýs vörukaupasamnings, óheimilt að hækka vöruverð í fjóra mánuði frá gildistöku nýja vörukaupasamningsins.

Samhliða samþykki verðboðs skv. 9. mgr. skal ÁTVR segja upp gildandi vörukaupasamningi með þriggja mánaða uppsagnarfresti. Á uppsagnarfresti er handhafi vörukaupasamnings óbundinn af tilkynningu sinni skv. 4. mgr. um lækkað vöruverð.

13. gr. Vöruumboð.

Nú hefur vörukaupasamningur verið felldur úr gildi vegna afhendingardráttar og fyrir ÁTVR liggja áreiðanlegar upplýsingar um að nýr birgir hafi tekið yfir dreifingu á vöru samkvæmt samningnum, t.d. staðfesting frá framleiðanda hennar, þá er ÁTVR heimilt að gera vörukaupasamning við hinn nýja birgi án þess að breyting verði á skipan vörunnar í söluflokki eða dreifingu hennar.

III. KAFLI Söluflokkar.

14. gr. Söluflokkar.

Vöruúrval ÁTVR skiptist í fjóra söluflokka: Reynsluflokk, kjarnaflokk, tímabilsflokk og sérflokk.

15. gr. Árangursviðmið söluflokka.

ÁTVR ákveður árangursviðmið söluflokka og birtir þau á vefsvæði sínu.

Tilfærsla milli söluflokka á grundvelli árangursviðmiða skal eiga sér stað eigi sjaldnar en þrisvar sinnum á ári.

Árangursviðmiðin skulu endurskoðuð reglulega.

16. gr. Framlegðarskrá.

ÁTVR skal birta mánaðarlega á vefsvæði sínu skrá yfir framlegð allra vara í reynslu-, kjarna- og sérflokki undangengna 12 mánuði.

ÁTVR skal birta á vefsvæði sínu skrá yfir framlegð allra vara í tímabilsflokki að liðnu hverju sölutímabili.

17. gr. Reynsluflokkur.

Í reynsluflokki eru vörur sem ÁTVR tekur til reynslusölu.

Tímabil reynslusölu er að hámarki 16 mánuðir.

Vara sem nær árangursviðmiðum reynsluflokks flyst í kjarnaflokk við næstu tilfærslu milli söluflokka frá því að viðmiðunum er náð.

Vara sem nær ekki árangursviðmiðum reynsluflokks á tímabili reynslusölu fellur úr vöruúrvali ÁTVR nema hún uppfylli skilyrði sérflokks skv. 20. gr. reglugerðar þessarar.

Vara sem fallið hefur úr reynsluflokki er ekki gjaldgeng í reynslusölu á ný fyrr en 12 mánuðum eftir að hún fellur úr flokknum.

18. gr. Kjarnaflokkur.

Kjarnaflokkur er aðalsöluflokkur ÁTVR og er ætlaður vörum sem njóta mikillar og stöðugrar eftirspurnar.

Lágmarkstímabil sölu í kjarnaflokki er 12 mánuðir.

Vara sem nær ekki árangursviðmiðum kjarnaflokks fellur úr vöruúrvali ÁTVR við næstu tilfærslu milli söluflokka nema hún uppfylli skilyrði sérflokks sbr. 20. gr. reglugerðar þessarar.

19. gr. Tímabilsflokkur.

Í tímabilsflokki eru vörur sem eru einungis framleiddar á tilteknum árstíma og/eða vörur sem hefðbundið er að bjóða til sölu á tilteknum árstíma.

ÁTVR setur nánari reglur um tímabilsflokk, þar sem skilgreint er hvaða vörur falla í flokkinn og sölutímabil ákveðið. Reglurnar skal birta á vefsvæði ÁTVR.

ÁTVR skal auglýsa með hæfilegum fyrirvara eftir vörum til sölu í tímabilsflokki á vefsvæði sínu.

20. gr. Sérflokkur.

Sérflokki er ætlað að tryggja fjölbreytileika og gæði í vöruúrvali ÁTVR.

ÁTVR er heimilt að færa vörur sem ná ekki árangursviðmiðum kjarnaflokks eða reynsluflokks í sérflokk.

ÁTVR er heimilt að auglýsa eftir vörum til sölu í sérflokki á vefsvæði sínu.

21. gr. Sérpantanir í vefverslun.

Birgjar geta boðið vörur utan vöruúrvals til sérpöntunar í vefverslun ÁTVR.

Sérpantaðri vöru verður ekki skilað nema hún teljist ónothæf vegna galla.

ÁTVR getur ákveðið að sá er pantar vöru skuli reiða fram fé til tryggingar greiðslu kostnaðar ÁTVR vegna innkaupa og flutnings hinnar sérpöntuðu vöru. Tryggingafé er endurgreitt reynist varan ófáanleg.

ÁTVR setur nánari reglur um vörur sem boðnar eru til sérpöntunar, þar sem m.a. skal kveðið á um vöruupplýsingar sem birgjum ber að láta í té, afgreiðslutíma vara og birgðastöðu svo og vörukönnun ÁTVR. Reglurnar skal birta á vefsvæði stofnunarinnar.

IV. KAFLI Flokkun vínbúða, vöruúrval og dreifing.

22. gr. Stærðarflokkar vínbúða.

Vínbúðir skiptast í eftirtalda tíu stærðarflokka:

  1. Flokkur K0. Vöruúrval K0 vínbúða skal samanstanda af að minnsta kosti 50 vörum.
  2. Flokkur K1. Vöruúrval K1 vínbúða skal samanstanda af að minnsta kosti 100 vörum.
  3. Flokkur K2. Vöruúrval K2 vínbúða skal samanstanda af að minnsta kosti 200 vörum.
  4. Flokkur K3. Vöruúrval K3 vínbúða skal samanstanda af að minnsta kosti 300 vörum.
  5. Flokkur K4. Vöruúrval K4 vínbúða skal samanstanda af að minnsta kosti 400 vörum.
  6. Flokkur K5. Vöruúrval K5 vínbúða skal samanstanda af að minnsta kosti 500 vörum.
  7. Flokkur K6. Vöruúrval K6 vínbúða skal samanstanda af að minnsta kosti 600 vörum.
  8. Flokkur K7. Vöruúrval K7 vínbúða skal samanstanda af að minnsta kosti 700 vörum.
  9. Flokkur K8. Vöruúrval K8 vínbúða skal samanstanda af að minnsta kosti 800 vörum.
  10. Flokkur K9. Vöruúrval K9 vínbúða skal samanstanda af að minnsta kosti 1500 vörum.

23. gr. Grunnvöruúrval.

ÁTVR ákveður grunnvöruúrval vínbúða á grundvelli markmiða íslenskrar áfengislöggjafar, áfengisstefnu stjórnvalda og með hliðsjón af eftirspurn og væntingum viðskiptavina. Tafla sem sýnir grunnvöruúrval stofnunarinnar skal birt á vefsvæði ÁTVR.

Grunnvöruúrval hvers stærðarflokks vínbúða skiptist í ákveðnum hlutföllum í vöruvalsdeildir eftir megineinkennum vöru.

Vöruvalsdeildir greinast í vörudeildir eftir ítarlegum einkennum vöru. Í hverjum stærðarflokki vínbúða skal vera á boðstólum tiltekinn lágmarksvörufjöldi úr hverri vörudeild. Ef kjarnaflokkur skilar ekki lágmarksvörufjölda í hverja vörudeild bætist sú/þær vörur sem eru næstar á forgangslista til dreifingar, sbr. 24. gr. reglugerðarinnar, við vöruúrvalið þar til tilskildum fjölda í hverri vörudeild er náð.

Grunnvöruúrval skal endurskoðað reglulega.

24. gr. Forgangur til dreifingar.

Framlegð samkvæmt gildandi framlegðarskrá, sbr. 16. gr. reglugerðarinnar, skal ráða forgangi til dreifingar.

Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. skulu vörur í kjarnaflokki að jafnaði njóta forgangs um dreifingu umfram vörur í öðrum söluflokkum.

25. gr. Viðbót við grunnvöruúrval.

Vörur í tímabilsflokki eru viðbót við grunnvöruúrval á meðan sölutímabil þeirra varir.

Dreifing vöru í tímabilsflokki fer eftir eftirspurn og væntingum viðskiptavina og hagkvæmnisjónarmiðum.

ÁTVR skal birta nánari viðmið um dreifingu vara í tímabilsflokki á vefsvæði sínu fyrir upphaf hvers sölutímabils.

26. gr. Sérhæft vöruúrval.

ÁTVR er heimilt að ákveða að tilteknar vínbúðir, ein eða fleiri, hafi sérhæft vöruúrval umfram grunnvöruúrval til þess að svara eftirspurn í viðkomandi vínbúð eftir vörum úr tilteknum vöruhópum, svo sem víni, bjór eða sterku áfengi.

Sérhæft vöruúrval vínbúða skal endurskoðað reglulega.

ÁTVR skal birta yfirlit yfir sérhæft vöruúrval vínbúða á vefsvæði sínu.

27. gr. Staðbundið vöruúrval.

ÁTVR er heimilt að ákveða að tilteknar vínbúðir, ein eða fleiri, hafi vöruúrval umfram grunnvöruúrval vegna staðbundinnar eftirspurnar í viðkomandi vínbúð eftir tilteknum vörum.

Staðbundið vöruúrval skal endurskoðað reglulega.

ÁTVR skal birta yfirlit yfir staðbundið vöruúrval vínbúða á vefsvæði sínu.

28. gr. Undantekningar vegna hagkvæmni.

Á grundvelli hagkvæmnisjónarmiða getur ÁTVR vikið frá ákvæðum kaflans og gert undantekningar varðandi dreifingu á einstökum vörum.

V. KAFLI Kröfur til vöru.

29. gr. Kröfur matvælalöggjafar.

ÁTVR er heimilt að hafna vöru ef verulega skortir á að hún uppfylli skilyrði laga nr. 93/1995, um matvæli, og/eða stjórnvaldsfyrirmæla sem sett eru á grundvelli laganna.

30. gr. Koffein og önnur örvandi efni.

ÁTVR er heimilt að hafna vöru sem inniheldur koffein og/eða önnur örvandi efni.

31. gr. Sérstakar kröfur til vöru.

ÁTVR er heimilt að hafna vöru ef innihald hennar, umbúðir eða markaðssetning:

  1. Höfðar sérstaklega til barna eða ungmenna yngri en 20 ára, m.a. hvað varðar texta, myndmál eða form,
  2. sýnir börn eða ungmenni yngri en 20 ára,
  3. gefur til kynna að áfengi auki líkamlega, andlega, félagslega eða kynferðislega getu,
  4. gefur til kynna að áfengi hafi lækningaeiginleika,
  5. felur í sér happdrætti, tilboð eða kaupauka,
  6. hvetur til óhóflegrar neyslu áfengis,
  7. tengist aðstæðum þar sem neysla áfengis skapar slysahættu eða er refsiverð,
  8. skírskotar eða hvetur til refsiverðrar háttsemi,
  9. skírskotar eða hvetur til neyslu ólöglegra ávana- og fíkniefna.

32. gr. Ruglingshætta.

ÁTVR er heimilt að hafna vöru ef umbúðir hennar líkjast svo umbúðum annarrar vöru sem ekki telst áfengi og boðin er til sölu eða auglýst á almennum markaði hér á landi að neytendur geta ekki auðveldlega greint á milli þeirra.

33. gr. Stærð umbúða.

Lagarmál vöru skal vera meira en 50 millilítrar og að hámarki 5000 millilítrar. Lagarmál fernu eða kassa skal þó vera að lágmarki 50 millilítrar og að hámarki 3000 millilítrar.

34. gr. Efni umbúða.

ÁTVR samþykkir að jafnaði eftirfarandi umbúðaefni:

  1. Gler- eða leirflösku.
  2. Áldós með áföstum flipa.
  3. Álflösku.
  4. Belg eða kassavín (pappaaskja utan um ál- eða plastpoka með einstreymisloka).
  5. Pappafernu (t.d. tetra-pakk).
  6. Plastflösku (fjölhúðaða).
  7. Kút með krana.

35. gr. Strikamerki.

Strikamerki, EAN eða UPC, skulu vera á hverri vöru.

36. gr. Fríhafnarsala.

ÁTVR skal hafna vöru sem ber merki fríhafnarsölu.

37. gr. Áhengi og fylgihlutir.

ÁTVR getur heimilað að vara sé boðin til sölu með áhengjum og/eða fylgihlutum, hafi þeir óverulegt verðgildi og hylji ekki almennar merkingar eða valdi óhagræði við meðferð vörunnar á lager, í flutningi eða við útstillingu í verslun.

38. gr. Viðkvæmar og óhefðbundnar umbúðir.

ÁTVR er heimilt að hafna vöru sem er í viðkvæmum og/eða óhefðbundnum umbúðum eða ef beita þarf sérstökum aðferðum við framstillingu vörunnar og/eða birgðahald, m.a. vegna lögunar umbúða, umfangs eða verðs vöru.

39. gr. Takmörkun á vörufjölda.

Vegna jafnræðis- og hagkvæmnisjónarmiða er ÁTVR heimilt að hafna vöru ef vara með sambærilegt innihald er þegar í vöruúrvali og óverulegur munur er á umbúðum.

40. gr. Gjafaumbúðir.

Gjafaumbúðir skulu uppfylla skilyrði V. kafla reglugerðar þessarar eftir því sem við á.

41. gr. Ytri smásöluumbúðir.

Ytri smásöluumbúðir skulu uppfylla skilyrði V. kafla reglugerðar þessarar eftir því sem við á.

42. gr. Sérpöntun vöru.

Sömu kröfur eru gerðar til sérpantaðrar vöru og til vöru sem tilheyrir vöruúrvali ÁTVR, að frátöldum skilyrðum 33. gr. reglugerðar þessarar um stærð umbúða, 35. gr. um strikamerki, 38. gr. um vandkvæði við framstillingu vöru í verslun og 39. gr. um takmörkun á vörufjölda.

VI. KAFLI Vörugæði, geymsluþol og gölluð vara.

43. gr. Vörugæði.

Vegna gæðaeftirlits er ÁTVR ávallt heimilt, á kostnað birgis, að taka sýnishorn vöru úr vörubirgðum eða kalla eftir sýnishorni frá birgi.

44. gr. Geymsluþol.

Vara sem ber "best fyrir" merkingu um geymsluþol (síðasti sölu- eða neysludagur) skal að jafnaði eiga eftir a.m.k. tveggja mánaða endingartíma þegar hún berst í vöruhús ÁTVR. ÁTVR getur þó í sérstökum tilvikum heimilað skemmri endingartíma.

45. gr. Viðkvæm vara.

ÁTVR er heimilt að setja sérstök viðmið um hámarksaldur viðkvæmrar vöru. Viðmiðin skulu birt á vefsvæði ÁTVR.

ÁTVR getur hafnað móttöku vöru sem er eldri en viðmiðaður hámarksaldur.

ÁTVR getur krafist staðfestingar á framleiðsludegi viðkvæmrar vöru.

46. gr. Gölluð vara.

Birgir skal taka til baka gallaða vöru. Um skil á gallaðri vöru fer eftir 50. gr. reglugerðar þessarar.

VII. KAFLI Afhending, greiðslukjör og skil á vörubirgðum.

47. gr. Afhending vöru.

Hver vörupöntun skal afhent sérstaklega í vöruhús ÁTVR að Stuðlahálsi í Reykjavík. Þó getur ÁTVR við sérstakar aðstæður samið við birgja um afhendingu á vörum á öðrum dreifingarstað sem ÁTVR tilgreinir.

Reikningur vegna vörupöntunar skal berast ÁTVR einum virkum degi fyrir afhendingu hennar.

Strikamerki, frábrugðið strikamerki vöru, skal að jafnaði vera á hverjum vörukassa.

Sé magn afhentrar vöru meira en sem svarar einu lagi á bretti skal varan afhent á EUR vörubretti. Andvirði vörubretta skal innifalið í vöruverði. Mesta hæð vöru og brettis er 1,5 metrar. Sé hleðsla á bretti umfram 0,7 metrar skal vefja vöru í plastfilmu.

Hver pöntun skal merkt með pöntunarnúmeri ÁTVR á plastfilmu, kassa eða vörubretti.

Óheimilt er að afhenda sömu vöru í ólíkum umbúðum á sama pöntunarnúmeri.

ÁTVR getur hafnað viðtöku vöru sem uppfyllir ekki framangreind skilyrði.

48. gr. Afhendingardráttur.

ÁTVR hefur heimild til að fella vörukaupasamning úr gildi og afpanta allar óafgreiddar pantanir ef vara er ekki afhent innan 60 daga frá því að innkaupapöntun var gerð.

49. gr. Greiðslukjör og uppgjör.

ÁTVR greiðir birgi fyrir mótteknar vörur á síðasta degi mánaðar eða á næsta vinnudegi ef greiðsludag ber upp á frídag.

Við sérstakar aðstæður er ÁTVR heimilt, þrátt fyrir ákvæði 1. mgr., að greiða birgi fyrir vöru eftir sölu hennar úr verslun ÁTVR. Skal ÁTVR þá greiða birgi eigi síðar en á tíunda degi eftir lok sölumánaðar.

Þegar vara í kjarna- eða sérflokki fellur úr vöruvali skal ÁTVR selja upp mótteknar vörubirgðir. Þegar vara í reynslu- eða tímabilsflokki fellur úr vöruvali skal birgir taka til baka óseldar vörubirgðir. ÁTVR er þó heimilt að víkja frá framangreindum ákvæðum þegar sérstaklega stendur á. Um skil á vörubirgðum fer eftir 50. gr. reglugerðar þessarar.

50.gr. Skil á vörubirgðum.

Birgir skal sækja vörubirgðir eigi síðar en 30 dögum eftir að honum berst áskorun þess efnis frá ÁTVR. Við móttöku birgisins á vörubirgðunum skal hann, þegar við á, afhenda ÁTVR kreditreikning og/eða endurgreiða ÁTVR vörubirgðirnar. Bregðist birgir ekki við í samræmi við áskorun ÁTVR er heimilt að eyða vörubirgðum á kostnað birgis og krefja hann um endurgreiðslu þeirra.

VIII. KAFLI Verð og verðbreytingar.

51. gr. Verð.

Um álagningu ÁTVR fer samkvæmt ákvæðum laga nr. 86/2011, um verslun með áfengi og tóbak. Smásöluverð úr vínbúð skal jafnað á næstu krónu.

ÁTVR skal birta smásöluverð á vefsvæði sínu.

52. gr. Verðbreytingar.

Birgir getur að jafnaði ekki breytt verði vöru oftar en mánaðarlega. Verðbreytingar á vörum í eigu ÁTVR eru háðar samþykki stofnunarinnar.

Verðbreytingar miðast að jafnaði við fyrsta dag mánaðar og skulu tilkynntar til ÁTVR eigi síðar en tuttugasta dag undangengins mánaðar.

IX. KAFLI Lagastoð og gildistaka.

53. gr. Lagastoð.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 11. gr. laga nr. 86/2011, um verslun með áfengi og tóbak.

54. gr. Gildistaka og brottfall.

Reglugerðin öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi reglugerð nr. 755/2011, um vöruval og sölu áfengis og skilmálar í viðskiptum við birgja, með síðari breytingum.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.