Fara beint í efnið
Fyrri útgáfa

Prentað þann 16. apríl 2024

Reglugerð með breytingum síðast breytt 1. maí 2020

1106/2012

Reglugerð um menntun, réttindi og skyldur áfengis- og vímuefnaráðgjafa og skilyrði til að hljóta starfsleyfi.

I. KAFLI Almenn ákvæði.

1. gr. Gildissvið.

Reglugerð þessi gildir um áfengis- og vímuefnaáðgjafa sem hafa starfsleyfi landlæknis skv. 2. gr.

II. KAFLI Starfsleyfi.

2. gr. Starfsheiti.

Rétt til að kalla sig áfengis- og vímuefnaráðgjafa og starfa sem slíkur hér á landi hefur sá einn sem fengið hefur til þess leyfi landlæknis.

3. gr. Skilyrði fyrir veitingu starfsleyfis.

Leyfi skv. 2. gr. má veita þeim sem lokið hafa námi skv. 4. mgr. á sviði áfengis- og vímuefnaráðgjafar og landlæknir metur gilt.

Einnig má veita starfsleyfi á grundvelli menntunar frá ríki innan Evrópska efnahagssvæðisins (EES) og Sviss. Um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi áfengis- og vímuefnaráðgjafa sem uppfyllir skilyrði tilskipunar 2005/36/EB, um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi, með síðari breytingum, fer samkvæmt reglugerð um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi heilbrigðisstarfsmanna frá öðrum EES-ríkjum, nr. 461/2011.

Þá er heimilt að veita starfsleyfi þeim sem lokið hafa sambærilegri menntun frá menntastofnun í ríki utan EES eða Sviss sem viðurkennd er sem slík af heilbrigðisyfirvöldum hér á landi og heilbrigðisyfirvöldum þess ríkis þar sem námið var stundað.

Umsækjandi skal að lágmarki uppfylla eftirfarandi kröfur um menntun og þjálfun:

  1. hann skal hafa starfað í fullu starfi í þrjú ár eða 6.000 klukkustundir við áfengis- og vímuefnaráðgjöf á heilbrigðisstofnun þar sem þverfaglegt teymi undir faglegri stjórn læknis í fullu starfi vinnur að áfengis- og vímuefnameðferð, og
  2. hann skal hafa fengið kennslu sem nemur 300 klukkustundum. Kennslan skal lúta að lyfjafræði ávana- og vímuefna, áfengis- og vímuvörnum, vinnutilhögun og faglegri framgöngu í ráðgjafarstarfinu, ásamt hugmyndafræði og siðfræði áfengismeðferðar, og
  3. hann skal hafa fengið leiðsögn af þar til bærum heilbrigðisstarfsmanni í hópstarfi, í ráðgjöf, viðtölum og á samráðsfundum, alls 225 klukkustundir, þar af 75 tíma í beinni handleiðslu.

Þekking umsækjanda skal sannreynd með prófi og starfshæfni hans vottuð af faglegum yfirmanni þeirrar stofnunar þar sem námið fór fram.

Landlæknir gerir tillögur, í samráði við stofnanir sem veita menntun í áfengis- og vímuefnaráðgjöf, sem og fagráð landlæknis um áfengis- og vímuefnaráðgjafa og aðra sem landlæknir metur hæfa, um nauðsynlega menntun fyrir áfengis- og vímuefnaráðgjafa og hvernig henni skuli hagað. Landlæknir skal senda ráðherra tillögurnar til staðfestingar.

Um frekari skilyrði fyrir veitingu starfsleyfis fer skv. 4. gr.

4. gr. Frekari skilyrði fyrir veitingu starfsleyfis.

Umsækjandi um starfsleyfi sem áfengis- og vímuefnaráðgjafi, skv. 2. gr., frá ríki utan EES og Sviss, sem Ísland hefur ekki samið við um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi, skal meðal annars leggja fram gögn um ríkisfang, innihald náms og námslengd, ásamt prófskírteini, starfsleyfi ef starfsgreinin er löggilt í því landi sem umsækjandi kemur frá, fyrirhuguð störf hér á landi svo og önnur gögn og vottorð sem landlæknir telur nauðsynleg vegna útgáfu starfsleyfis.

Áður en umsókn um starfsleyfi er tekin til efnislegrar meðferðar þarf eftir atvikum að liggja fyrir staðfest afrit umsóknar um atvinnu- og dvalarleyfi ásamt undirrituðum ráðningarsamningi.

Heimilt er að gera kröfu um að umsækjandi búi yfir kunnáttu í íslensku og hafi þekkingu á íslenskri heilbrigðislöggjöf svo og öðrum lögum og stjórnvaldsfyrirmælum sem talin eru nauðsynleg til þess að geta starfað sem áfengis- og vímuefnaráðgjafi, einkum vegna öryggis og samskipta við sjúklinga.

Hafi að mati landlæknis ekki verið sýnt fram á að nám umsækjanda uppfylli kröfur skv. 1. mgr. er heimilt að krefjast þess að umsækjandi gangist undir próf sem sýni fram á að hann búi yfir þeirri faglegu þekkingu og hæfni sem krafist er af áfengis- og vímuefnaráðgjafa. Prófið skal skipulagt og lagt fyrir af fagráði landlæknis um áfengis- og vímuefnaráðgjafa í samráði við landlækni.

Starfsleyfi er gefið út við komu umsækjanda til starfa hér á landi.

5. gr. Umsagnir.

Áður en starfsleyfi er veitt skv. 2. gr. skal landlæknir leita umsagnar fagráðs landlæknis um áfengis- og vímuefnaráðgjafa til að meta hæfi umsækjenda um það hvort hann uppfylli skilyrði um menntun skv. 4. mgr. 3. gr. fyrir veitingu starfsleyfis.

Landlækni er enn fremur heimilt að leita umsagnar annarra aðila eftir þörfum.

III. KAFLI Réttindi og skyldur.

6. gr. Faglegar kröfur og ábyrgð.

Áfengis- og vímuefnaráðgjafi skal sýna sjúklingi virðingu og sinna störfum sínum af árvekni og trúmennsku og í samræmi við þær faglegu kröfur sem gerðar eru til stéttarinnar á hverjum tíma.

Áfengis- og vímuefnaráðgjafa ber að þekkja skyldur sínar og virða siðareglur stéttarinnar, viðhalda þekkingu og faglegri færni og tileinka sér nýjungar er varða starfið.

Áfengis- og vímuefnaráðgjafi skal þekkja lög og reglugerðir sem gilda um heilbrigðisstarfsmenn og heilbrigðisþjónustu svo og önnur lög og stjórnvaldsfyrirmæli eftir því sem við á.

Áfengis- og vímuefnaráðgjafi starfar í þverfaglegu teymi og ber ábyrgð á þeirri ráðgjöf og meðferð sem hann veitir.

Áfengis- og vímuefnaráðgjafi skal virða faglegar takmarkanir sínar og leita eftir aðstoð eða vísa sjúklingi til annars heilbrigðisstarfsmanns eftir því sem nauðsynlegt er, svo sem ef hann telur sig ekki geta veitt honum viðeigandi heilbrigðisþjónustu.

7. gr. Upplýsingaskylda og færsla sjúkraskrár.

Um upplýsingaskyldu áfengis- og vímuefnaráðgjafa gagnvart sjúklingi fer samkvæmt ákvæðum laga um réttindi sjúklinga, nr. 74/1997.

Um skyldu áfengis- og vímuefnaráðgjafa til að veita landlækni upplýsingar, meðal annars vegna eftirlits og til gerðar heilbrigðisskýrslna, fer samkvæmt lögum um landlækni og lýðheilsu, nr. 41/2007.

Áfengis- og vímuefnaráðgjafi skal, eftir því sem við á, færa sjúkraskrá samkvæmt ákvæðum laga um sjúkraskrár, nr. 55/2009 og reglugerðum sem settar eru samkvæmt þeim.

8. gr. Nemar.

Áfengis- og vímuefnaráðgjafi ber ábyrgð á því að nemar, sem honum er falið að veita leiðsögn, hafi næga hæfni og þekkingu og fái nauðsynlegar leiðbeiningar og tilsögn til að inna af hendi störf sem hann felur þeim.

9. gr. Trúnaður og þagnarskylda.

Áfengis- og vímuefnaráðgjafi skal gæta fyllstu þagmælsku um allt það sem hann kemst að í starfi sínu um heilsufar þess sem hann veitir þjónustu, ástand, sjúkdómsgreiningu, horfur og meðferð ásamt öðrum persónulegum upplýsingum. Þetta gildir ekki bjóði lög annað eða rökstudd ástæða er til að rjúfa þagnarskyldu vegna brýnnar nauðsynjar.

Samþykki þess sem hann veitir þjónustu eða forráðamanns, ef við á, leysir áfengis- og vímuefnaráðgjafa undan þagnarskyldu.

Þagnarskylda samkvæmt þessari grein nær ekki til atvika sem áfengis- og vímuefnaráðgjafa ber að tilkynna um samkvæmt öðrum lagaákvæðum. Í þeim tilvikum ber áfengis- og vímuefnaráðgjafa skylda til að koma upplýsingum um atvik á framfæri við þar til bær yfirvöld.

Um trúnaðar- og þagnarskyldu áfengis- og vímuefnaráðgjafa gilda jafnframt ákvæði laga um réttindi sjúklinga, ákvæði laga um sjúkraskrár og önnur lög eftir því sem við á.

IV. KAFLI Ýmis ákvæði.

10. gr. Gjaldtaka.

Um gjaldtöku vegna útgáfu starfsleyfis fer skv. 10. gr. laga um aukatekjur ríkissjóðs, nr. 88/1991.

Um gjaldtöku vegna hvers konar umsýslu landlæknis vegna umsókna um starfsleyfi til viðbótar gjaldi skv. 1. mgr. og vegna prófa í faglegri þekkingu og færni fer samkvæmt reglugerð um gjaldtöku vegna umsókna um starfsleyfi og sérfræðileyfi heilbrigðisstarfsmanna, nr. 951/2012.

11. gr. Almenn ákvæði.

Ákvæði laga um heilbrigðisstarfsmenn, nr. 34/2012, laga um landlækni og lýðheilsu, nr. 41/2007, laga um sjúkraskrár, nr. 55/2009, laga um heilbrigðisþjónustu, nr. 40/2007, laga um réttindi sjúklinga, nr. 74/1997, svo og önnur lög og stjórnvaldsfyrirmæli gilda eftir því sem við á um áfengis- og vímuefnaráðgjafa.

11. gr. a. Gildi eldri leyfa.

Þeir sem hlotið hafa starfsleyfi sem áfengis- og vímuefnaráðgjafar samkvæmt reglugerð um menntun, réttindi og skyldur áfengis- og vímuefnaráðgjafa, nr. 974/2006, með síðari breytingum, halda þeim réttindum óskertum.

12. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 5., 30. og 31. gr. laga um heilbrigðisstarfsmenn, nr. 34/2012, öðlast gildi 1. janúar 2013. Frá sama tíma fellur brott reglugerð um menntun, réttindi og skyldur áfengis- og vímuefnaráðgjafa, nr. 974/2006, með síðari breytingum.

Ákvæði til bráðabirgða.

Þrátt fyrir ákvæði 3. gr. er landlækni heimilt til 1. maí 2021 að veita þeim starfsleyfi sem lokið hafa námi samkvæmt reglugerð nr. 974/2006, um menntun, réttindi og skyldur áfengis- og vímuefnaráðgjafa, með síðari breytingum, og hafa viðhaldið kunnáttu sinni með því að hafa starfað við greinina frá því að framangreindu námi lauk.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.