|
|
1103/2009
felld brott með rg. nr. 840/2011
REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 697/2009
um vinnustaðanám og starfsþjálfun á vinnustað.
1. gr. Við reglugerðina bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:
Þrátt fyrir ákvæði 15. gr., og með vísan til ákvæðis I til bráðabirgða í lögum nr. 92/2008 um framhaldsskóla skulu ákvæði reglugerðarinnar koma til framkvæmda 1. ágúst 2011. Fram til þess tíma fer um skipulag og framkvæmd starfsþjálfunar og vinnustaðanáms samkvæmt reglugerð nr. 280/1997 um námssamninga og starfsþjálfun með áorðnum breytingum.
2. gr. Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 28. gr. laga nr. 92/2008, sbr. ákvæði I og III til bráðabirgða sömu laga, öðlast þegar gildi.
Mennta- og menningarmálaráðuneytinu, 16. desember 2009.
Katrín Jakobsdóttir. Ásta Magnúsdóttir.

Stofnreglugerð: 697/2009 - Reglugerð um vinnustaðanám og starfsþjálfun á vinnustað.
|