Fara beint í efnið

Prentað þann 18. apríl 2024

Breytingareglugerð

1081/2013

Reglugerð um breytingu á reglugerð um happdrætti Sambands íslenskra berkla- og brjóstholssjúklinga, nr. 923 29. nóvember 2001, með síðari breytingum.

1. gr.

1. mgr. 7. gr. reglugerðarinnar, sbr. reglugerð nr. 1046 6. desember 2012, orðast svo:

Verð ársmiða er 15.600 kr. en endurnýjunarverð í hverjum flokki 1.300 kr.

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt lögum nr. 18 22. apríl 1959, með síðari breytingum, öðlast gildi 1. janúar 2014.

Innanríkisráðuneytinu, 19. nóvember 2013.

Hanna Birna Kristjánsdóttir.

Ragnhildur Hjaltadóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.