Innanríkisráðuneyti

1065/2015

Reglugerð um breytingu á reglugerð um Happdrætti Háskóla Íslands, nr. 348/1976, með síðari breytingum. - Brottfallin

1. gr.

1. mgr. 11. gr. reglugerðarinnar, sbr. 1. gr. reglugerðar nr. 1043/2012, orðast svo:

Verð hlutamiða er 1.500 kr. í hverjum flokki. Fyrir ársmiða skal greiða 18.000 kr. Ef eigandi miða vill gera hann að ársmiða eftir að drættir, einn eða fleiri, hafa farið fram skal hann greiða fyrirfram fyrir þá drætti sem eftir eru.

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 5. gr. laga um Happdrætti Háskóla Íslands, nr. 13 13. apríl 1973 með síðari breytingum, öðlast gildi 1. janúar 2016.

Innanríkisráðuneytinu, 25. nóvember 2015.

Ólöf Nordal.

Hermann Sæmundsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica