Fjármála- og efnahagsráðuneyti

1060/2014

Reglugerð um innheimtumenn ríkissjóðs. - Brottfallin

1. gr.

Innheimtumenn ríkissjóðs.

Innheimtumenn ríkissjóðs eru:

tollstjóri á höfuðborgarsvæðinu,
sýslumaðurinn á Vesturlandi,
sýslumaðurinn á Vestfjörðum,
sýslumaðurinn á Norðurlandi vestra,
sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra,
sýslumaðurinn á Austurlandi,
sýslumaðurinn á Suðurlandi,
sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum og
sýslumaðurinn á Suðurnesjum skv. lögum nr. 50/2014, um framkvæmdarvald og stjórnsýslu ríkisins í héraði.

2. gr.

Hlutverk innheimtumanna ríkissjóðs.

Innheimtumenn ríkissjóðs annast innheimtu skatta og gjalda hver í sínu umdæmi. Með sköttum og gjöldum er átt við hvers konar skatta og gjöld sem lögð eru á lögum sam­kvæmt.

3. gr.

Sérstakt hlutverk tollstjóra.

Auk þeirra verkefna sem tollstjóra eru falin skv. 2. gr. annast tollstjóri eftirtalin verkefni sem lúta að innheimtu skatta og gjalda á landsvísu:

  1. Stefnumótun á sviði innheimtumála á landsvísu með hagræðingu, samræmingu, framþróun og öryggi varðandi innheimtu opinberra gjalda að leiðarljósi.
  2. Samræmingar- og eftirlitshlutverk gagnvart öðrum innheimtumönnum ríkissjóðs, m.a. með setningu verklagsreglna. Tollstjóra er heimilt að beina bindandi fyrir­mælum til annarra innheimtumanna um innheimtuaðgerðir í einstökum málum ef settar reglur eru ekki virtar.
  3. Umsjón og þróun tölvukerfa og rafrænnar stjórnsýslu á sviði innheimtu skatta og gjalda.
  4. Birtingu almennrar greiðsluáskorunar skv. 8. gr. laga nr. 90/1989, um aðför, fyrir hönd innheimtumanna ríkissjóðs.
  5. Töku ákvarðana um boð innheimtumanna ríkissjóðs í eignir fyrir hönd ríkissjóðs á nauðungaruppboðum. Við þá ákvörðun skal tollstjóri taka mið af því hvernig hagsmunum ríkissjóðs er best borgið.
  6. Töku ákvarðana um ábyrgð á auknum skiptakostnaði vegna endurheimtu verð­mæta við gjaldþrotaskipti.
  7. Eftirlit með afskriftum skatta og gjalda á landsvísu.
  8. Greiningarstarf vegna áhættustjórnunar við innheimtu opinberra gjalda.
  9. Fræðslustarf fyrir starfsfólk innheimtuembætta um innheimtumálefni.

4. gr.

Kyrrsetningar.

Tollstjóri annast á landsvísu kyrrsetningarmál að beiðni skattrannsóknarstjóra á grund­velli 6. mgr. 113. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, 41. gr. a. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, 31. gr. a. laga nr. 45/1987, um staðgreiðslu opinberra gjalda og 20. gr. a. laga nr. 94/1996, um staðgreiðslu skatts á fjármagnstekjur.

5. gr.

Alþjóðlegt samstarf skattinnheimtuyfirvalda.

Tollstjóri annast móttöku og umsjón beiðna erlendra ríkja um aðstoð við innheimtu skatta og gjalda á grundvelli alþjóðlegra samninga á landsvísu.

Tollstjóri hefur umsjón með útsendingu beiðna um aðstoð við innheimtu skatta og gjalda til erlendra ríkja fyrir hönd innheimtumanna ríkissjóðs.

6. gr.

Vanskilainnheimta á landsvísu.

Tollstjóri annast vanskilainnheimtu eftirtalinna skatta og gjalda á landsvísu: skuldabréf gefin út á grundvelli laga nr. 24/2010, sektir skattrannsóknarstjóra ríkisins, fésektir árs­reikn­inga­skrár ríkisskattstjóra, umsýslu- og eftirlitsgjald ríkisskattstjóra, árgjald fyrir tíðni­notkun, gjöld þjóðskrár og leyfisgjöld útvarpsréttarnefndar.

7. gr.

Áætlanagerð og úrvinnsla tölfræðiupplýsinga.

Tollstjóri skal í upphafi hvers árs gera áætlun um innheimtu skatta og gjalda á landsvísu og skal hún send fjármála- og efnahagsráðuneyti, ásamt upplýsingum um innheimtu­árangur síðasta árs.

Tollstjóri skal á hverju tveggja mánaða tímabili taka saman tölfræðiupplýsingar um innheimtuárangur einstakra innheimtuembætta og senda innheimtumönnum ríkissjóðs og fjármála- og efnahagsráðuneyti.

Tollstjóri skal þróa mælikvarða og aðferðir við framsetningu tölfræðigagna um innheimtu skatta og gjalda.

8. gr.

Gildistaka.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 2. og 3. mgr. 111. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt. Ákvæði 1. gr. reglugerðarinnar öðlast gildi 1. janúar 2015. Önnur ákvæði öðlast þegar gildi.

Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 2. desember 2014.

F. h. r.

Guðmundur Árnason.

Maríanna Jónasdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica