Stjórnarráðið  |  Ríkisstjórn  |  Réttarheimildir  |  Alþingi  |
 
Stjórnarráð Íslands    
  Forsíða  
 

  Reglugerðir

með breytingum
eftir ráðuneytum
eftir ártali
eftir köflum í safninu
brottfallnar
Leit
 

1059/2010

REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð um skilyrði gjafsóknar
og starfshætti gjafsóknarnefndar, nr. 45/2008.

1. gr.
1. mgr. 7. gr. reglugerðarinnar orðast svo:
Við mat á því hvort gjafsókn verði veitt vegna efnahags umsækjanda skal miða við að stofn til útreiknings tekjuskatts og útsvars og fjármagnstekjur nemi ekki hærri fjárhæð en samtals kr. 2.000.000. Sé umsækjandi í hjúskap eða sambúð ber að hafa hliðsjón af tekjum maka og skulu samanlagðar árstekjur ekki nema hærri fjárhæð en sem nemur kr. 3.000.000. Þegar umsækjandi er yngri en 18 ára skal höfð hliðsjón af samanlögðum tekjum foreldra. Hækka skal viðmiðunarmörk tekna um kr. 250.000 fyrir hvert barn undir 18 ára aldri, þ.m.t. stjúp- og fósturbörn, sem búa hjá umsækjanda eða hann elur að mestum hluta önn fyrir.


2. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er skv. heimild í 3. málslið 2. mgr. 125. gr. og síðari málsl. 1. mgr. 126. gr. laga um meðferð einkamála nr. 91/1991, sbr. 1. og 2. gr. laga nr. 7/2005 og 19. gr. laga nr. 70/2009, öðlast þegar gildi.


Dómsmála- og mannréttindaráðuneytinu, 15. desember 2010.

Ögmundur Jónasson.
Bryndís Helgadóttir.

B_nr_1059_2010.docx

Stofnreglugerð:
045/2008 - Reglugerð um skilyrði gjafsóknar og starfshætti gjafsóknarnefndar.

 
Stjórnartíðindi - Sölvhólsgötu 7 - 150 Reykjavík Sími 545 9000
Bréfasími 552 7340 - Netfang: reglugerdir@irr.is
Prentvænt