Stjórnarráðið  |  Ríkisstjórn  |  Réttarheimildir  |  Alþingi  |
 
Stjórnarráð Íslands    
  Forsíða  
 

  Reglugerðir

með breytingum
eftir ráðuneytum
eftir ártali
eftir köflum í safninu
brottfallnar
Leit
 

1056/2009

REGLUGERÐ
um (1.) breytingu á reglugerð nr. 598/2009 um útreikning, endurreikning
og uppgjör tekjutengdra bóta og vistunarframlags.

1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 10. gr.:
  1. Á eftir orðinu „ofgreiðslu“ í 2. mgr. kemur: þó aldrei lægri fjárhæð en 3.000 kr.
  2. Orðin „nú 115.567 kr.“ í 3. mgr. falla brott.

2. gr.
Við 12. gr. reglugerðarinnar bætist ný málsgrein, svohljóðandi:

Hafi endurkrafa vegna ofgreiddra bóta ekki verið endurgreidd á 12 mánuðum frá því krafa stofnaðist skal greiða 5,5% ársvexti á eftirstöðvar kröfunnar. Heimilt er að falla frá kröfu um vexti ef sérstakar ástæður eru fyrir hendi eða ef samningur um endurgreiðslu ofgreiddra bóta liggur fyrir og viðkomandi stendur við greiðsluskyldu sína samkvæmt samningnum.


3. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 12. mgr. 16. gr., sbr. 6. mgr. 55. gr., sbr. 70. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar, með síðari breytingum, og 14. gr. laga nr. 99/2007 um félagslega aðstoð, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.


Félags- og tryggingamálaráðuneytinu, 21. desember 2009.

Árni Páll Árnason.
Ágúst Þór Sigurðsson.

B_nr_1056_2009.doc

Stofnreglugerð:
598/2009 - Reglugerð um útreikning, endurreikning og uppgjör tekjutengdra bóta og vistunarframlags.

 
Stjórnartíðindi - Sölvhólsgötu 7 - 150 Reykjavík Sími 545 9000
Bréfasími 552 7340 - Netfang: reglugerdir@irr.is
Prentvænt