Stjórnarráðið  |  Ríkisstjórn  |  Réttarheimildir  |  Alþingi  |
 
Stjórnarráð Íslands    
  Forsíða  
 

  Reglugerðir

með breytingum
eftir ráðuneytum
eftir ártali
eftir köflum í safninu
brottfallnar
Leit
 

105/2004

REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 785/1999 um starfsleyfi fyrir atvinnurekstur
sem getur haft í för með sér mengun.

1. gr.
Við reglugerðina bætist ákvæði til bráðabirgða, sem orðist svo:
Allar olíubirgðastöðvar sem eru starfandi við gildistöku reglugerðar þessarar skulu hafa gilt starfsleyfi eigi síðar en 31. desember 2005.


2. gr.
Við fylgiskjal 1 bætist nýr töluliður 24. tl. sem orðist svo:
24.a.Olíubirgðastöðvar fyrir olíur og/eða bensín með gegnumstreymi bensíns > 5.000 tonn á ári
2
b.Olíubirgðastöðvar fyrir olíur og/eða bensín með gegnumstreymi bensíns minna en 5.000 tonn á ári.
3

24. tl. verður 25. tl.


3. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum 5. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir, með síðari breytingum.

Reglugerðin öðlast gildi við birtingu.


Umhverfisráðuneytinu, 28. janúar 2004.

F. h. r.
Magnús Jóhannesson.
Sigríður Auður Arnardóttir.

    nr_105_2004.doc
Stofnreglugerð:
785/1999 - Reglugerð um starfsleyfi fyrir atvinnurekstur sem getur haft í för með sér mengun

 
Stjórnartíðindi - Sölvhólsgötu 7 - 150 Reykjavík Sími 545 9000
Bréfasími 552 7340 - Netfang: reglugerdir@irr.is
Prentvænt