Stjórnarráðið  |  Ríkisstjórn  |  Réttarheimildir  |  Alþingi  |
 
Stjórnarráð Íslands    
  Forsíða  
 

  Reglugerðir

með breytingum
eftir ráðuneytum
eftir ártali
eftir köflum í safninu
brottfallnar
Leit
 

1019/2008

REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 205/2007 um lofthæfi- og umhverfisvottun
loftfara og tilheyrandi framleiðsluvara, hluta og búnaðar og
vottun hönnunar- og framleiðslufyrirtækja.

1. gr.
Markmið.
Markmið þessarar reglugerðar, er að innleiða breytingu á reglugerð (EB) nr. 1702/2003 um framkvæmdarreglur varðandi lofthæfi- og umhverfisvottun loftfara og tilheyrandi framleiðsluvara, hluta og búnaðar og varðandi vottun hönnunar- og framleiðslufyrirtækja, sbr. reglugerð nr. 205/2007 um lofthæfi- og umhverfisvottun loftfara og tilheyrandi framleiðsluvara, hluta og búnaðar og vottun hönnunar- og framleiðslufyrirtækja.


2. gr.
Innleiðing.
Með reglugerð þessari öðlast gildi hér á landi reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 375/2007 frá 30. mars 2007 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 1702/2003 um framkvæmdarreglur varðandi lofthæfi- og umhverfisvottun loftfara og tilheyrandi framleiðsluvara, hluta og búnaðar og varðandi vottun hönnunar- og framleiðslufyrirtækja, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 90/2007 frá 6. júlí 2007, sem birtist í 60. viðauka við EES-samninginn, 13. desember 2007, bls. 26, með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XIII. viðauka EES-samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum hans.

Reglugerðin er birt sem fylgiskjal með reglugerð þessari.


3. gr.
Gildistaka.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 7. mgr. 28. gr., sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998 með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.


Samgönguráðuneytinu, 15. október 2008.

Kristján L. Möller.
Ragnhildur Hjaltadóttir.
B_nr_1019_2008_an_fylgiskjals.doc

Stofnreglugerð:
205/2007 - Reglugerð um lofthæfi- og umhverfisvottun loftfara og tilheyrandi framleiðsluvara, hluta og búnaðar og vottun hönnunar- og framleiðslufyrirtækja.

 
Stjórnartíðindi - Sölvhólsgötu 7 - 150 Reykjavík Sími 545 9000
Bréfasími 552 7340 - Netfang: reglugerdir@irr.is
Prentvænt