|
|
1019/2004
REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð um jöfnun tekjutaps sveitarfélaga
vegna lækkunar tekna af fasteignaskatti, nr. 80/2001, með síðari breytingum.
1. gr. Orðin „næstliðins árs“ í 2. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar falla brott.
2. gr. Reglugerð þessi er sett á grundvelli 18. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga, nr. 4/1995, með síðari breytingum, og öðlast þegar gildi.
Félagsmálaráðuneytinu, 16. desember 2004.
Árni Magnússon. Guðjón Bragason.
Stofnreglugerð: 080/2001 - Reglugerð um jöfnun tekjutaps sveitarfélaga vegna lækkunar tekna af fasteignaskatti.
|