Iðnaðarráðuneyti

1011/2007

Reglugerð um tímabundnar endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar á Íslandi. - Brottfallin

1. gr.

Almennt.

Heimilt er að endurgreiða úr ríkissjóði 14% af framleiðslukostnaði sem til fellur við framleiðslu kvikmynda eða sjónvarpsefnis hér á landi og eftir atvikum í öðru aðildarríki samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, sbr. 5. gr. reglugerðar þessarar og 2. og 5. gr. laga nr. 43/1999, um tímabundnar endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar á Íslandi, með síðari breytingum.

2. gr.

Skilyrði endurgreiðslu.

Við mat á því hvort endurgreiða skuli hlutfall af framleiðslukostnaði kvikmyndar eða sjónvarpsefnis skal eftirfarandi skilyrðum vera fullnægt:

  1. að viðkomandi framleiðsla sé til þess fallin að koma íslenskri menningu á framfæri og kynna sögu lands og náttúru,
  2. að viðkomandi framleiðsla sé til þess fallin að stuðla að aukinni reynslu, þekkingu og listrænum metnaði þeirra sem að framleiðslunni standa,
  3. að stofnað sé sérstakt félag um framleiðsluna á Íslandi; íslenskt útibú eða umboðsskrifstofa félags sem skráð er í aðildarríki samningsins um Evrópska efnahags­svæðið telst sérstakt félag,
  4. upplýsingar um helstu aðstandendur kvikmyndar eða sjónvarpsefnis liggi fyrir,
  5. upplýsingar um innlenda aðila og hlutdeild þeirra við framleiðslu kvikmyndar eða sjónvarpsefnis liggi fyrir,
  6. að fyrir liggi sundurliðuð áætlun um framleiðslukostnað og fjármögnun auk staðfestingar fjármögnunaraðila ásamt greinargerð umsækjanda um að fram­leiðslan falli að markmiðum laganna,
  7. að fyrir liggi upplýsingar um efni fyrirhugaðrar framleiðslu kvikmyndar eða sjónvarpsefnis, þ. á m. handrit, stuttur efnisútdráttur og upplýsingar um tökustaði,
  8. að framleiðsluáætlun liggi fyrir (þ.e. töku-, eftirvinnslu- og markaðsáætlun) sem geri ráð fyrir að framleiðslu sé lokið innan þriggja ára frá því að endurgreiðslu­beiðni er móttekin,
  9. að fyrir liggi að hið framleidda efni sé ætlað til almennrar dreifingar í kvikmynda­hús eða til sjónvarpsstöðva,
  10. að efni kvikmyndar eða sjónvarpsefnis stríði ekki gegn ákvæðum almennra hegningar­laga um klám.

Verði breyting á áætluðum framleiðslukostnaði, sbr. f-lið 1. mgr., eftir að framleiðsla hefst skal iðnaðarráðuneyti send ný kostnaðaráætlun.

Þrátt fyrir ákvæði c-liðar 1. mgr. getur umsækjandi um endurgreiðslu dregið það að ganga formlega frá stofnun sérstaks félags um framleiðslu myndar hér á landi, eða skráningu sérstaks útibús eða umboðsskrifstofu eftir atvikum, þangað til að fyrir liggur vilyrði ráðherra um endurgreiðslu, samkvæmt 2. mgr. 4. gr. Skal umsækjandi hafa þrjá mánuði til þess að ganga frá formlegri stofnun félags eða skráningu útibús eða umboðs­skrifstofu frá dagsetningu vilyrðis. Hafi umsækjandi ekki gengið frá þessum forms­atriðum innan þess tímafrests skal litið svo á að hann hafi dregið umsókn sína til baka.

Auglýsinga- og fréttatengt efni, stuttmyndir, upptökur af íþróttaviðburðum og skemmt­unum, svo og framleiðsla efnis sem fyrst og fremst er ætlað til sýninga í eigin dreifi­kerfi telst ekki til efnis samkvæmt i-lið 1. mgr.

3. gr.

Umsókn.

Umsókn um endurgreiðslu skal senda iðnaðarráðuneytinu áður en framleiðsla hefst hér á landi. Umsókn skal vera í samræmi við leiðbeiningar ráðuneytisins um form umsókna, sem birtar eru á heimasíðu þess, og skulu gögn sem staðfesta að skilyrði endurgreiðslu skv. 2. gr. þessarar reglugerðar séu uppfyllt, fylgja umsókn.

4. gr.

Afgreiðsla umsókna.

Nefnd sem skipuð er skv. 3. gr. laga nr. 43/1999 fer yfir innkomnar umsóknir. Nefndin skal hafa að leiðarljósi við afgreiðslu umsókna að kvikmynd eða sjónvarpsefni stuðli að eflingu innlendrar menningar, eftir atvikum, með skírskotun til sögu lands og náttúru. Nefndinni er heimilt að kalla eftir frekari gögnum telji hún það nauðsynlegt.

Telji nefndin að umsókn fullnægi skilyrðum til þess að hljóta endurgreiðslu gerir hún tillögu til iðnaðarráðherra um að veitt verði vilyrði fyrir endurgreiðslu. Í vilyrði iðnaðar­ráðherra fyrir endurgreiðslu skal vakin athygli á heimild, skv. 8. gr. til að fresta endur­greiðslu.

Við afgreiðslu umsókna getur nefndin leitað álits sérfróðra aðila um ætlað listrænt gildi viðkomandi framleiðslu.

5. gr.

Framleiðslukostnaður.

Framleiðslukostnaður telst allur sá kostnaður sem heimilt er að draga frá tekjum af atvinnurekstri samkvæmt ákvæðum laga um tekjuskatt og fellur til hér á landi og eftir atvikum í öðru aðildarríki samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, sbr. 2. mgr. 2. gr. laganna.

Til þess að teljast endurgreiðanlegur framleiðslukostnaðar skal sá hluti framleiðslu­kostnaðar sem fellur til í öðru aðildarríki samningsins um Evrópska efnahags­svæðið færður í samræmi við bókhaldslög í því ríki þar sem kostnaðurinn fellur til og skal sá hluti framleiðslukostnaðarins sérstaklega staðfestur af löggiltum endurskoðanda í því ríki.

6. gr.

Ákvörðun um útborgun endurgreiðslu.

Þegar framleiðslu kvikmyndar eða sjónvarpsefnis er lokið skal umsækjandi senda iðnaðar­ráðuneyti bréflega staðfestingu þar að lútandi með beiðni um útborgun endur­greiðslu.

Slíkri beiðni skal fylgja:

  1. Ársreikningur eða árshlutareikningur framleiðslufélagsins sem dagsettur er eftir lok framleiðslunnar.
  2. Sundurliðað yfirlit um framleiðslukostnað þar sem endanlegur kostnaður er borinn saman við kostnaðaráætlun, og eftir atvikum leiðrétta kostnaðaráætlun, sem send var iðnaðarráðuneytinu þegar sótt var um endurgreiðslu framleiðslukostnaðar. Ef hluti af framleiðslukostnaði uppfyllir ekki skilyrði 3. mgr. 2. gr. laga nr. 43/1999 um skattlagningu launa og verktakagreiðslna skal frádráttur vegna þeirra koma skýrt fram við framsetningu á framleiðslukostnaði sem sótt er um endurgreiðslu fyrir.
  3. Ef verulegur mismunur er á milli áætlunar og raunverulegs kostnaðar fyrir ein­staka kostnaðarliði skal til viðbótar fylgja greinargerð þar sem slík frávik eru skýrð. Verulegur mismunur telst vera á þeim liðum þar sem endanlegar fjárhæðir víkja meira en 10% frá upphaflegri áætlun.
  4. Sundurliðun á framleiðslukostnaði eftir þeim löndum sem hann féll til í.

Kostnaðaruppgjör og ársreikningur eða árshlutareikningur skulu vera staðfestir og áritaðir af löggiltum endurskoðanda. Einnig skal koma fram í staðfestingu endurskoðanda að kostnaðaruppgjör sé endanlegt að teknu tilliti til væntanlegrar endurgreiðslu skv. reglugerð þessari.

Berist beiðni um útborgun endurgreiðslu eftir að sex mánuðir hafa liðið frá lokum fram­leiðslu kvikmyndar eða sjónvarpsefnis skal hafna henni.

Nefnd skv. 3. gr. laga nr. 43/1999 fer yfir framlögð gögn og er henni heimilt að óska eftir frekari gögnum til skýringar á kostnaðaruppgjöri, s.s. bókhaldi félagsins. Nefndinni er enn fremur heimilt að óska eftir fundi með umsóknaraðila. Sé kostnaðaruppgjör og/eða fylgigögn þess ófullnægjandi skal nefndin veita umsóknaraðila frest til að skila inn fullnægjandi gögnum. Berist nefndinni ekki fullnægjandi gögn að loknum veittum fresti skal hún leggja til við iðnaðarráðherra að beiðni um endurgreiðslu verði hafnað.

7. gr.

Framkvæmd útborgunar endurgreiðslu.

Iðnaðarráðherra ákvarðar útborgun endurgreiðslu samkvæmt reglugerð þessari að feng­inni tillögu nefndar sem skipuð er samkvæmt 3. gr. laga nr. 43/1999.

8. gr.

Frestun endurgreiðslu.

Fjárhæð endurgreiðslna samkvæmt reglugerð þessari er háð fjárveitingum Alþingis eins og fram kemur í fjárlögum hverju sinni. Iðnaðarráðherra hefur heimild til að fresta útborgun endurgreiðslna sem kunna að vera umfram fjárveitingar Alþingis hverju sinni. Séu samþykktar endurgreiðslur á fjárlagaárinu umfram fjárveitingar er ráðherra heimilt að fresta endurgreiðslu, annað hvort að öllu leyti eða að hluta til, yfir á næsta fjárlagaár.

9. gr.

Gildistökuákvæði.

Reglugerð þessi er sett á grundvelli 7. gr. laga nr. 43/1999, með síðari breytingum og öðlast þegar gildi. Á sama tíma falla úr gildi reglugerðir nr. 131 frá 9. febrúar 2001 og nr. 437 frá 13. júní 2001.

Iðnaðarráðuneytinu, 19. október 2007.

Össur Skarphéðinsson.

Guðrún Þorleifsdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica