Stjórnarráðið  |  Ríkisstjórn  |  Réttarheimildir  |  Alþingi  |
 
Stjórnarráð Íslands    
  Forsíða  
 

  Reglugerðir

með breytingum
eftir ráðuneytum
eftir ártali
eftir köflum í safninu
brottfallnar
Leit
 

1009/2011

REGLUGERÐ
um synjun leyfis fyrir tilteknum heilsufullyrðingum er varða matvæli og vísa
til minnkunar á sjúkdómsáhættu og til þroskunar og heilbrigðis barna.

1. gr.
Innleiðing.
Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í XII. kafla II. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af II. viðauka samningsins, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 68/2011 frá 2. júlí 2011 öðlast eftirfarandi gerð gildi hér á landi:
    Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1162/2010 um synjun leyfis fyrir tilteknum heilsufullyrðingum er varða matvæli og vísa til minnkunar á sjúkdómsáhættu og til þroskunar og heilbrigðis barna.

2. gr.
Birting.
Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 55, frá 7. október 2011, bls. 237.


3. gr.
Eftirlit.
Matvælastofnun og heilbrigðisnefndir sveitarfélaga undir yfirumsjón Matvælastofnunar fara með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við 6. og 22. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli.


4. gr.
Þvingunarúrræði og viðurlög.
Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 30. gr., 30. gr. a - e og 31. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli.


5. gr.
Lagastoð og gildistaka.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. a laga nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum. Reglugerðin tekur þegar gildi.


Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 27. október 2011.

Jón Bjarnason.
Baldur P. Erlingsson.

B_nr_1009_2011.docx

 
Stjórnartíðindi - Sölvhólsgötu 7 - 150 Reykjavík Sími 545 9000
Bréfasími 552 7340 - Netfang: reglugerdir@irr.is
Prentvænt