REGLUGERÐ
um innritun nemenda í
framhaldsskóla.
1. gr.
Allir
þeir sem lokið hafa námi í grunnskóla eða öðru jafngildu námi skulu eiga kost á
að hefja nám í framhaldsskóla.
Hér
er kveðið á um lágmarkskröfur um námsárangur í einstökum greinum og greinaflokkum
við lok grunnskóla og starfsþjálfun þar sem hennar er krafist vegna inntöku
nemenda á tilteknar námsbrautir framhaldsskóla. Inntökuskilyrði skulu stuðla að
því að nemendr hafi nægan undirbúning til að takast á við nám á viðkomandi
námsbraut. Inntökuskilyrði miðast við námsárangur á samræmdum lokaprófum og við
skólaeinkunnir við lok grunnskóla eftir því sem við á.
2. gr.
Nemendur,
sem lokið hafa skyldunámi í samræmi við ákvæði aðalnámskrár grunnskóla, og
einnig samræmdum lokaprófum a.m.k. í íslensku og stærðfræði, geta innritast á
brautir framhaldsskóla, svo fremi að ekki séu gerðar viðbótarkröfur um árangur
í tilteknum námsgreinum, sbr. 3., 4. og 5. gr., enda fullnægi þeir eftirtöldum
skilyrðum: Meðaltal einkunnar á samræmdu lokaprófi og skólaeinkunnar við lok
grunnskóla í hvorri áðurnefndra námsgreina sé að lágmarki 5,0 og auk þess má
einkunn á samræmdu prófi ekki vera lægri en 4,5 í hvorri þessara námsgreina,
sjá þó ákvæði 3. gr. hvað varðar lágmarkseinkunnir til inntöku á
bóknámsbrautir. Sjá 6. gr. varðandi nemendur sem ekki uppfylla skilyrði
þessarar greinar.
3. gr.
Til
að hefja nám á bóknámsbrautum framhaldsskóla þurfa nemendur að þreyta a.m.k.
fjögur samræmd próf, þ.e. í íslensku og stærðfræði, sbr. 2. gr., og tvö próf
til viðbótar, sbr. a-, b- eða c-lið þessarar greinar:
a)
Til að hefja nám á málabraut skulu nemendur hafa þreytt samræmd lokapróf í
íslensku, dönsku, ensku og stærðfræði. Meðaltal einkunnar á samræmdu lokaprófi
og skólaeinkunnar við lok grunnskóla í íslensku, dönsku og ensku skal vera 6,0
að lágmarki í hverri námsgrein og auk þess verður einkunn á samræmdu lokaprófi
að vera 5,0 eða hærri í hverri þessara námsgreina. Um lágmarksárangur í
stærðfræði gilda ákvæði 2. gr.
b)
Til að hefja nám á félagsfræðabraut skulu nemendur hafa þreytt samræmd lokapróf
í íslensku, ensku, samfélagsgreinum og stærðfræði. Meðaltal einkunnar á
samræmdu lokaprófi og skólaeinkunnar við lok grunnskóla í íslensku, ensku og
samfélagsgreinum skal vera 6,0 að lágmarki í hverri námsgrein og auk þess
verður einkunn á samræmdu lokaprófi að vera 5,0 eða hærri í hverri þessara
námsgreina. Um lágmarksárangur í stærðfræði gilda ákvæði 2. gr.
c)
Til að hefja nám á náttúrufræðabraut skulu nemendur hafa þreytt samræmd
lokapróf í íslensku, ensku, stærðfræði og náttúrufræði. Meðaltal einkunnar á
samræmdu lokaprófi og skólaeinkunnar við lok grunnskóla í íslensku, stærðfræði
og náttúrufræði skal vera 6,0 að lágmarki í hverri námsgrein og auk þess verður
einkunn á samræmdu lokaprófi að vera 5,0 eða hærri í hverri þessara námsgreina.
Um lágmarksárangur í ensku gilda sömu ákvæði og tilgreind eru í 2. gr. fyrir
íslensku og stærðfræði.
4. gr.
Skólameistara
er heimilt að setja skilyrði í skólanámskrá til viðbótar því sem segir í 2. gr.
til inngöngu á starfsnámsbrautir. Slík skilyrði skulu miðast við frammistöðu
nemenda í verk- og listgreinum í grunnskóla og/eða aðra þætti sem benda til
þess að nemendur geti fullnægt þeim kröfum sem gerðar eru í viðkomandi námi.
5. gr.
Til
að hefja nám á listnámsbraut þurfa nemendur að fullnægja ákvæðum 2. gr. og hafa
auk þess lagt stund á listnám í grunnskóla eða sérskóla með fullnægjandi
árangri að mati viðtökuskóla eða geta sýnt með öðrum hætti að námið henti þeim.
6. gr.
Nemendur
sem ekki uppfylla skilyrði reglugerðar þessarar til inntöku á einstakar
námsbrautir samkvæmt 2., 3., 4. eða 5. gr., eiga kost á að hefja nám á almennri
námsbraut eða í sérdeildum. Að fullnægðum tilteknum skilyrðum um námsárangur að
mati skólameistara viðtökuskóla geta þeir síðan haldið áfram námi á öðrum
brautum framhaldsskóla.
7. gr.
Nemendur
sem fullnægja inntökuskilyrðum samkvæmt reglugerð þessari hafa forgang að
innritun á viðkomandi námsbraut.
Skólameistari
getur heimilað nemendum, sem ekki uppfylla inntökuskilyrði brautar að fullu að
hefja nám á viðkomandi námsbraut ef hann telur líkur á því að þeir standist þær
kröfur sem gerðar eru um námsárangur.
8. gr.
Skólameistara
er heimilt, skv. 15. gr. laga um framhaldsskóla, að veita nemendum, sem hafa
náð 18 ára aldri, inngöngu á einstakar brautir framhaldsskóla þótt þeir
uppfylli ekki lágmarkskröfur um námsárangur við lok grunnskóla.
9. gr.
Inntaka
nemenda í framhaldsskóla er á ábyrgð skólameistara, sem samþykkir eða synjar
umsóknum um skólavist. Synji skólameistari umsókn á umsækjandi rétt á
rökstuðningi hans fyrir þeirri ákvörðun.
Umsókn
um skólavist í framhaldsskóla skal skilað til viðkomandi framhaldsskóla eða á
annan auglýstan stað á sérstöku eyðublaði sem menntamálaráðuneytið gefur út. Í
umsókn skal koma fram nafn, heimilisfang og kennitala umsækjanda. Sé umsækjandi
yngri en 18 ára skal fylgja staðfesting foreldris eða forráðamanns. Umsækjendur
skulu skrá þann skóla og þá námsbraut sem sótt er um. Þá skal ennfremur
tilgreina þann skóla og þá námsbraut sem sótt er um til vara og sérstakar óskir
sem við kunna að eiga, s.s. hvort óskað er eftir táknmálstúlkun,
hjólastólaaðgengi eða heimavist. Á eyðublöðunum skulu birtar þær reglur sem
gilda um inntöku nemenda í framhaldsskóla.
Við
mat á umsóknum ber skólameistara að taka mið af inntökuskilyrðum sem kveðið er
á um í reglugerð þessari og fylgja að öðru leyti almennum hlutlægum reglum
þannig að samræmis og jafnræðis sé gætt milli umsækjenda sem uppfylla
sambærileg skilyrði. Ákvörðun skólameistara um inntöku nemenda í skólann úr
hópi þeirra sem ekki njóta forgangsréttar samkvæmt ákvæðum reglugerðar þessarar
ber að byggja á málefnalegum sjónarmiðum.
Nú
getur skólameistari ekki orðið við umsókn um skólavist og ber honum þá að sjá
til þess að umsókn sé framsend tímanlega til þess skóla sem sótt er um til
vara.
10. gr.
Reglugerð
þessi er sett samkvæmt 15. gr. laga nr. 80/1996 um framhaldsskóla og gildir um
innritun í framhaldsskóla fyrir skólaárið 2001 - 2002. Þar eð námskrá
grunnskóla sem tók gildi 1. júní 1999 verður þá ekki komin að fullu til
framkvæmda verður þessi reglugerð endurskoðuð áður en kemur að innritun vegna
skólaársins 2002 - 2003.
Ákvæði til bráðabirgða.
Á
meðan ekki eru haldin samræmd lokapróf í samfélagsgreinum og náttúrufræði
miðast ákvæði 3. gr., b- og c-liðar við skólaeinkunn við lok grunnskóla
eingöngu.
Menntamálaráðuneytinu, 8. febrúar
2000.
Björn Bjarnason.
Guðríður
Sigurðardóttir.
Word útgáfa af reglugerð