Fara beint í efnið

Prentað þann 29. mars 2024

Breytingareglugerð

97/2016

Reglugerð um breyting á reglugerð um þvingunaraðgerðir varðandi Sómalíu nr. 792/2015.

1. gr. Þvingunaraðgerðir.

Eftirfarandi töluliðir skulu bætast við 2. gr. reglugerðar um þvingunaraðgerðir varðandi Sómalíu nr. 792/2015.

1.10 Framkvæmdarákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2015/2053 frá 16. nóvember 2015 um framkvæmd ákvörðunar 2010/231/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn Sómalíu, fylgiskjal 1.10.
2.7 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2015/2044 frá 16. nóvember 2015 um framkvæmd 13. gr. reglugerðar (ESB) nr. 356/2010 um að leggja á tilteknar, sérstakar þvingunaraðgerðir sem beint er að tilteknum einstaklingum eða lögaðilum, rekstrareiningum eða stofnunum í ljósi ástandsins í Sómalíu, fylgiskjal 2.7.

2. gr. Gildistaka o.fl.

Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 4. og 12. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 93/2008, öðlast þegar gildi.

Utanríkisráðuneytinu, 22. janúar 2016.

Gunnar Bragi Sveinsson.

Stefán Haukur Jóhannesson.

Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.