|
|
094/2003
REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð um jöfnun tekjutaps sveitarfélaga
vegna lækkunar tekna af fasteignaskatti, nr. 80/2001, með síðari breytingum.
1. gr. 2. gr. reglugerðarinnar verður svohljóðandi:
Til framlaga samkvæmt reglugerð þessari skulu renna allt að 30% af tekjum Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga skv. a-lið 8. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga, nr. 4/1995, með síðari breytingum.
Hlutdeild í tekjum Jöfnunarsjóðs, sbr. 1. mgr., skal miðast við tekjur sjóðsins samkvæmt fjárlögum yfirstandandi árs að teknu tilliti til hugsanlegra leiðréttinga á tekjum hans samkvæmt fjáraukalögum næst liðins árs.
2. gr. Síðari málsl. 2. mgr. 3. gr. fellur brott.
3. gr. Reglugerð þessi er sett á grundvelli 18. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga, nr. 4/1995, með síðari breytingum, og öðlast þegar gildi.
Félagsmálaráðuneytinu, 12. febrúar 2003.
Páll Pétursson. Garðar Jónsson.
Stofnreglugerð: 080/2001 - Reglugerð um jöfnun tekjutaps sveitarfélaga vegna lækkunar tekna af fasteignaskatti.
|