Fara beint í efnið
Fyrri útgáfa

Prentað þann 19. mars 2024

Reglugerð með breytingum síðast breytt 1. jan. 2011

80/2001

Reglugerð um jöfnun tekjutaps sveitarfélaga vegna lækkunar tekna af fasteignaskatti.

1. gr.

Jöfnunarsjóður sveitarfélaga skal greiða sveitarfélögum framlög skv. 3. gr. reglugerðar þessarar til að jafna tekjutap einstakra sveitarfélaga vegna lækkunar tekna af fasteignaskatti í kjölfar breytingar á álagningarstofni mannvirkja, sbr. 4. gr. laga nr. 144/2000 um breytingu á lögum um tekjustofna sveitarfélaga.

Félagsmálaráðherra tekur ákvörðun um úthlutun framlaga, sbr. 1. mgr., að fengnum tillögum ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga.

2. gr.

Til framlaga samkvæmt reglugerð þessari skulu renna allt að 30% af tekjum Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga skv. a-lið 8. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga, nr. 4/1995, með síðari breytingum.

Hlutdeild í tekjum Jöfnunarsjóðs, sbr. 1. mgr., skal miðast við tekjur sjóðsins samkvæmt fjárlögum yfirstandandi árs að teknu tilliti til hugsanlegra leiðréttinga á tekjum hans samkvæmt fjáraukalögum.

3. gr.

Í þeim tilvikum sem afskrifað endurstofnverð húsa og mannvirkja, annarra en sumarhúsa, útihúsa í sveitum og mannvirkja og lóða sem falla undir 3. gr. reglugerðar um fasteignaskatt, nr. 1160/2005, margfaldað með markaðsstuðli fasteigna í Reykjavík, samkvæmt matsreglum Fasteignamats ríkisins, er hærra en fasteignamat sömu fasteigna, skal Jöfnunarsjóður sveitarfélaga greiða framlag til viðkomandi sveitarfélags.

Framlög Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga til einstakra sveitarfélaga skulu reiknast sem mismunur á fasteignamati og álagningarstofni í hverju sveitarfélagi, sbr. 1. mgr., margfaldaður með álagningarprósentu fasteignaskatts viðkomandi sveitarfélags, skv. a- og c-lið 3. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga, nr. 4/1995 með síðari breytingum, á því ári sem framlagið kemur til greiðslu.

4. gr.

Á grundvelli árlegrar skrár frá Fasteignamati ríkisins um metnar fasteignir í hverju sveitarfélagi, þar sem fram kemur m.a. heildarfasteignamat fasteignanna ásamt svonefndum álagningarstofni sömu eigna skal Jöfnunarsjóður sveitarfélaga reikna út framlög til sveitarfélaga samkvæmt reglugerð þessari. Við útreikninginn skal Jöfnunarsjóður taka tillit til upplýsinga frá sveitarfélögum um breytingar sem þau gera á skránni áður en til álagningar kemur og hafa til hliðsjónar þau ákvæði reglugerðar um fasteignaskatt sem sveitarfélög beita við álagninguna, sbr. 2. mgr. Útreikningi framlaga skal lokið eigi síðar en 15. júní ár hvert.

Upplýsingum um breytingar á skrá Fasteignamats ríkisins, sbr. 1. mgr., skal skilað á eyðublöðum sem Jöfnunarsjóður lætur sveitarfélögum í té. Á þeim skal tilgreina eftirfarandi atriði:

  1. fasteignir sem undanþegnar eru álagningu fasteignaskatts skv. 6. gr. reglugerðar um fasteignaskatt, eða ákvæðum sérlaga,
  2. ákvarðanir sveitarfélags um lækkun eða niðurfellingu álagðs fasteignaskatts vegna fasteigna sem falla undir 1.-4. mgr. 7. gr. reglugerðar um fasteignaskatt,
  3. lækkun fasteignaskatts vegna samninga við stóriðjufyrirtæki,
  4. leiðréttingar sem sveitarfélög gera vegna fasteigna þar sem flokkun eða mat hefur breyst, svo sem í kjölfar endurmats eða úrskurðar yfirfasteignamatsnefndar,
  5. beitingar mismunandi álagningarprósentu í sameinuðu sveitarfélagi, sbr. 5. mgr. 7. gr. reglugerðar um fasteignaskatt,
  6. endanlega niðurstöðu álagningar vegna fasteigna þar sem nýting er með þeim hætti að ákvæði 8. gr. reglugerðar um fasteignaskatt eiga við.

Með álagningarstofni, sbr. 1. mgr., er átt við afskrifað endurstofnverð húsa og mannvirkja samkvæmt matsreglum Fasteignamats ríkisins, annarra en sumarhúsa og útihúsa í sveitum, margfaldað með markaðsstuðli fasteigna í Reykjavík, ásamt fasteignamati allra annarra fasteigna, að meðtöldum lóðum og lóðarréttindum.

5. gr.

Þar til endanlegur útreikningur framlaga liggur fyrir, sbr. 4. gr., skal Jöfnunarsjóður sveitarfélaga greiða viðkomandi sveitarfélagi framlag fyrirfram sem nemur 60% af framlagi næstliðins árs. Greiðslan skal innt af hendi með fimm jöfnum greiðslum fyrsta virka dag mánaðanna febrúar til júní ár hvert.

Þegar útreikningur framlaga liggur fyrir, sbr. 4. gr., skal Jöfnunarsjóður sveitarfélaga greiða sveitarfélögum endanlegt framlag ársins að frádreginni fyrirframgreiðslu, sbr. 1. mgr. og skal sá mismunur greiddur í jöfnum greiðslum fyrsta virka dag mánuðina júlí til september ár hvert.

6. gr.

Árlega skulu sveitarfélög senda Jöfnunarsjóði sveitarfélaga upplýsingar um breytingar sem þau gera á skrá Fasteignamats ríkisins um metnar fasteignir í sveitarfélaginu og upplýsingar um áhrif framkvæmdar við álagningu, sbr. 4. gr.

Hafi upplýsingar, sbr. 1. mgr., ekki borist Jöfnunarsjóði sveitarfélaga fyrir 15. maí ár hvert er Jöfnunarsjóðnum heimilt að stöðva greiðslur framlaga samkvæmt reglugerð þessari til viðkomandi sveitarfélaga. Framlög viðkomandi sveitarfélaga skulu þá áætluð svo útreikningur heildarframlaga geti átt sér stað.

Hafi upplýsingar sveitarfélaga, sbr. 1. mgr., ekki borist Jöfnunarsjóði sveitarfélaga fyrir 15. ágúst skulu endanleg framlög viðkomandi sveitarfélaga nema 80% af áætlun, sbr. 2. mgr. Greiðsla framlaga til viðkomandi sveitarfélaga skal innt af hendi í september viðkomandi ár að teknu tilliti til fyrirframgreiðslu, sbr. 1. mgr. 5. gr.

7. gr.

Reglugerð þessi er sett á grundvelli laga um tekjustofna sveitarfélaga, nr. 4/1995, með síðari breytingum, og öðlast þegar gildi.

Ákvæði til bráðabirgða.

Jöfnunarsjóður sveitarfélaga skal í janúar 2001 gera áætlun um útreiknað framlag hvers sveitarfélags árið 2001.

Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. 5. gr. skal Jöfnunarsjóður sveitarfélaga á árinu 2001 greiða viðkomandi sveitarfélagi framlag fyrirfram sem nemur 60% af áætluðu framlagi, sbr. 1. mgr.

Ákvæði til bráðabirgða.

Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. 5. gr. skal Jöfnunarsjóður sveitarfélaga greiða til sveitarfélaga á árinu 2002 framlag fyrirfram sem nemur 60% af áætluðu framlagi, miðað við framlag á fjárlögum þess árs.

Ákvæði til bráðabirgða.

Þrátt fyrir ákvæði 11. gr. reglugerðar um fasteignaskatt, nr. 1160/2005, skal ekki taka tillit til nýrra lóða og nýrra mannvirkja sem skráð eru og metin í Landskrá fasteigna eftir 1. janúar 2006 við útreikning framlaga samkvæmt reglugerð þessari fyrir árið 2006.

Ákvæði til bráðabirgða.

Jöfnunarsjóður sveitarfélaga skal í febrúar 2010 gera áætlun um útreiknað framlag hvers sveitarfélags árið 2010.

Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. 5. gr. skal Jöfnunarsjóður sveitarfélaga á árinu 2010 greiða viðkomandi sveitarfélagi framlag fyrirfram sem nemur 60% af áætluðu framlagi, sbr. 1. mgr.

Ákvæði til bráðabirgða.

Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. 5. gr. skal Jöfnunarsjóður sveitarfélaga á árinu 2011 greiða sveitarfélögum framlag fyrirfram sem nemur 60% af ráðstöfunarfé sjóðsins til greiðslu framlaganna á árinu 2011 að teknu tilliti til álagningarprósentu fasteignaskatts hvers sveitarfélags á árinu 2010, skv. a- og c-lið 3. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga, nr. 4/1995 með síðari breytingum.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.