Stjórnarráðið  |  Ríkisstjórn  |  Réttarheimildir  |  Alþingi  |
 
Stjórnarráð Íslands    
  Forsíða  
 

  Reglugerðir

með breytingum
eftir ráðuneytum
eftir ártali
eftir köflum í safninu
brottfallnar
Leit
 

077/2005

REGLUGERÐ
um (4.) breytingu á reglugerð nr. 504/1997 um fjárhagslega aðstoð
við framfærendur fatlaðra og langveikra barna.

1. gr.
Í stað 2. málsl. 1. mgr. 5. gr. kemur eftirfarandi:
Þegar sérstaklega stendur á er Tryggingastofnun ríkisins heimilt að hækka bætur um allt að 25%. Skal heimildinni einkum beitt þegar um er að ræða dauðvona börn. Þá er heimilt að beita ákvæðinu þegar fötluð og/eða alvarlega og langvarandi veik börn gangast undir erfiðar aðgerðir eða meðferð og þurfa þess vegna að dvelja langdvölum á sjúkrahúsi með foreldrum sínum fjarri heimili.


2. gr.
1. mgr. 8. gr. fellur brott.


3. gr.
Reglugerð þessi sem sett er með stoð í 3. mgr. 4. gr., sbr. 2. mgr. 15. gr. laga nr. 118/1993 um félagslega aðstoð, með síðari breytingum, öðlast gildi þegar í stað. Frá sama tíma falla brott reglur tryggingaráðs nr. 263/2000 um heimild til hækkunar umönnunargreiðslna skv. 1. mgr. 4. gr. laga nr. 118/1993 um félagslega aðstoð.


Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu, 10. janúar 2005.

Jón Kristjánsson.
Davíð Á. Gunnarsson.

    nr_77_2005.doc
Stofnreglugerð:
504/1997 - Reglugerð um fjárhagslega aðstoð við framfærendur fatlaðra og langveikra barna.

 
Stjórnartíðindi - Sölvhólsgötu 7 - 150 Reykjavík Sími 545 9000
Bréfasími 552 7340 - Netfang: reglugerdir@irr.is
Prentvænt