Utanríkisráðuneyti

75/2015

Reglugerð um breyting á reglugerð um þvingunaraðgerðir varðandi Úkraínu nr. 281/2014.

1. gr.

Þvingunaraðgerðir.

Á eftir 28. tölul. 1. mgr. 2. gr. reglugerðar um þvingunaraðgerðir varðandi Úkraínu nr. 281/2014, ásamt síðari breytingum, komi eftirfarandi töluliðir sem hljóði svo:

29)

 

Ákvörðun ráðsins 2014/658/SSUÖ frá 8. september 2014 um breytingu á ákvörðun 2014/145/SSUÖ um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu.

30)

 

Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) nr. 961/2014 frá 8. sepember 2014 um framkvæmd reglugerðar (ESB) nr. 269/2014 um þvingunaraðgerðir í ljósi aðgerða Rússlands sem grafa undan stöðugleika í Úkraínu.

31)

 

Ákvörðun ráðsins 2014/659 frá 8. september 2014 um breytingu á ákvörðun 2014/512/SSUÖ um þvingunaraðgerðir í ljósi aðgerða Rússlands sem grafa undan stöðugleika í Úkraínu.

32)

 

Reglugerð ráðsins (ESB) nr. 959/2014 frá 8. september 2014 um breytingu reglugerðar (ESB) nr. 269/2014 um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu.

33)

 

Reglugerð ráðsins (ESB) nr. 960 frá 8. september 2014 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 833/2014 um þvingunaraðgerðir í ljósi aðgerða Rússlands sem grafa undan stöðugleika í Úkraínu.



2. gr.

Fylgiskjöl.

Gerðir sem vísað er til í 29.-33. tölul. eru birtar sem fylgiskjöl 1-5 við reglugerð þessa.

3. gr.

Gildistaka o.fl.

Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 4. og 12. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 93/2008, öðlast þegar gildi.

Utanríkisráðuneytinu, 27. janúar 2015.

Gunnar Bragi Sveinsson.

Stefán Haukur Jóhannesson.

Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)


Þetta vefsvæði byggir á Eplica