Félagsmálaráðuneyti

68/1999

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 308/1995, um greiðslur Atvinnuleysistryggingasjóðs vegna kauptryggingar fiskvinnslufólks. - Brottfallin

REGLUGERÐ

um breytingu á reglugerð nr. 308/1995, um greiðslur

Atvinnuleysistryggingasjóðs vegna kauptryggingar fiskvinnslufólks.

1. gr.

Ákvæði 2. mgr. 3. gr. reglugerðarinnar fellur brott.

2. gr.

Reglugerð þessi sem sett er með heimild í 5. gr. laga nr. 51/1995, um greiðslur Atvinnuleysistryggingasjóðs vegna fiskvinnslufólks, öðlast þegar gildi. Frá og með 1. janúar 1999 skal fara með greiðslur samkvæmt lögum nr. 113/1990 um tryggingagjald, ásamt síðari breytingum, þannig að gjaldskyldir atvinnurekendur skulu skila tryggingagjaldi af launum starfsmanna sinna beint til innheimtumanna ríkissjóðs.

Félagsmálaráðuneytinu, 4. janúar 1999.

Páll Pétursson.

___________

Elín Blöndal.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica