REGLUGERÐ
um
stjórnsýsluumdæmi sýslumanna.
1 . gr.
Landinu er skipt í 27 stjórnsýsluumdæmi. Eiga sveitarfélög
undir hvert þeirra, sem hér segir:
1. Umdæmi sýslumannsins, lögreglustjórans og
tollstjórans í Reykjavík:
Reykjavík, Seltjarnarnes, Mosfellsbær, Kjalarneshreppur og
Kjósarhreppur.
2. Umdæmi sýslumannsins á Akranesi:
Akranes.
3. Umdæmi sýslumannsins í Borgarnesi:
Hvalfjarðarstrandarhreppur, Skilmannahreppur,
Innri-Akraneshreppur, Leirár- og Melahreppur, Andakílshreppur,
Skorradalshreppur, Lundarreykjadalshreppur, Reykholtsdalshreppur, Hálsahreppur,
Hvítársíðuhreppur, Þverárhlíðarhreppur, Norðurárdalshreppur,
Stafholtstungnahreppur, Borgarhreppur, Borgarnes, Álftaneshreppur og
Hraunhreppur.
4. Umdæmi sýslumannsins í Stykkishólms:
Kolbeinsstaðahreppur, Eyjarhreppur, Miklaholtshreppur,
Staðarsveit, Breiðuvíkurhreppur, Neshreppur, Ólafsvík, Eyrarsveit,
Helgafellssveit, Stykkishólmur og Skógarstrandahreppur.
5. Umdæmi sýslumannsins í Búðardal:
Suðurdalahreppur, Haukadalshreppur, Laxárdalshreppur,
Hvammshreppur, Fellsstrandarhreppur, Skarðshreppur og Saurbæjarhreppur.
6. Umdæmi sýslumannsins á Patreksfirði:
Reykhólahreppur, Barðastrandarhreppur, Rauðasandshreppur,
Patrekshreppur, Tálknafjarðarhreppur og Bíldudalshreppur.
7. Umdæmi sýslumannsins í Bolungarvík:
Bolungarvík.
8. Umdæmi sýslumannsins á Ísafirði:
Þingeyrarhreppur, Mýrahreppur, Mosvallahreppur,
Flateyrarhreppur, Suðureyrarhreppur, Ísafjörður, Súðavíkurhreppur, Ögurhreppur,
Reykjarfjarðarhreppur, Nauteyrarhreppur, Sléttuhreppur og Snæfjallahreppur.
9. Umdæmi sýslumannsins á Hólmavík:
Árneshreppur, Kaldrananeshreppur, Hólmavíkurhreppur,
Kirkjubólshreppur, Broddaneshreppur og Bæjarhreppur.
10 Umdæmi sýslumannsins á Blönduósi:
Staðarhreppur, Fremri-Torfustaðahreppur,
Ytri-Torfustaðahreppur, Hvammstangahreppur, Kirkjuhvammshreppur, Þverárhreppur,
Þorkelshólshreppur, Áshreppur, Sveinsstaðahreppur, Torfalækjarhreppur,
Blönduós, Svínavatnshreppur, Bólstaðarhlíðarhreppur, Engihlíðarhreppur,
Vindhælishreppur, Höfðahreppur og Skagahreppur.
11. Umdæmi sýslumannsins á Sauðárkróki:
Skefilsstaðahreppur, Skarðshreppur, Sauðárkrókur,
Staðarhreppur, Seyluhreppur, Lýtingsstaðahreppur, Akrahreppur, Rípurhreppur,
Viðvíkurhreppur, Hólahreppur, Hofshreppur og Fljótahreppur.
12. Umdæmi sýslumannsins á Siglufirði:
Siglufjörður.
13. Umdæmi sýslumannsins á Ólafsfirði:
Ólafsfjörður.
14. Umdæmi sýslumannsins á Akureyri:
Grímseyjarhreppur, Dalvík, Svarfaðardalshreppur,
Hríseyjarhreppur, Árskógshreppur, Arnarneshreppur, Skriðuhreppur,
Öxnadalshreppur, Glæsibæjarhreppur, Akureyri, Eyjafjarðarsveit,
Svalbarðsstrandarhreppur og Grýtubakkahreppur.
15. Umdæmi sýslumannsins á Húsavík:
Hálshreppur, Ljósavatnshreppur, Bárðdælahreppur,
Skútustaðahreppur, Reykdælahreppur, Aðaldælahreppur, Reykjahreppur, Húsavík,
Tjörneshreppur, Kelduneshreppur, Öxarfjarðarhreppur, Fjallahreppur,
Raufarhafnarhreppur, Svalbarðshreppur, Þórshafnarhreppur og Sauðaneshreppur.
16. Umdæmi sýslumannsins á Seyðisfirði:
Skeggjastaðahreppur, Vopnafjarðarhreppur, Hlíðarhreppur,
Jökuldalshreppur, Fljótsdalshreppur, Skriðdalshreppur, Vallahreppur,
Egilsstaðir, Fellahreppur, Tunguhreppur, Eiðahreppur, Hjaltastaðahreppur,
Borgarfjarðarhreppur og Seyðisfjörður.
17. Umdæmi sýslumannsins í Neskaupstað:
Neskaupstaður og Norðfjarðarhreppur.
18. Umdæmi sýslumannsins á Eskifirði:
Eskifjörður, Reyðarfjarðarhreppur, Mjóafjarðarhreppur,
Fáskrúðsfjarðarhreppur, Búðahreppur, Stöðvarhreppur, Breiðdalshreppur,
Beruneshreppur, Búlandshreppur og Geithellnahreppur.
19. Umdæmi sýslumannsins á Höfn:
Bæjarhreppur, Nesjahreppur, Höfn, Mýrahreppur,
Borgarhafnarhreppur og Hofshreppur.
20. Umdæmi sýslumannsins í Vík:
Skaftárhreppur og Mýrdalshreppur.
21. Umdæmi sýslumannsins á Hvolsvelli:
Austur-Eyjafjallahreppur, Vestur-Eyjafjallahreppur, Austur-Landeyjahreppur,
Vestur Landeyjahreppur, Fljótshlíðarhreppur, Hvolhreppur, Rangárvallahreppur,
Landmannahreppur, Holtahreppur, Ásahreppur og Djúpárhreppur.
22. Umdæmi sýslumannsins í Vestmannaeyjum:
Vestmannaeyjar.
23. Umdæmi sýslumannsins á Selfossi:
Gaulverjabæjarhreppur, Stokkseyrarhreppur,
Eyrarbakkahreppur, Sandvíkurhreppur, Selfoss, Hraungerðishreppur,
Villingaholtshreppur, Skeiðahreppur, Gnúpverjahreppur, Hrunamannahreppur,
Biskupstungnahreppur, Laugardalshreppur, Grímsneshreppur, Þingvallahreppur,
Grafningshreppur, Hveragerði og Ölfushreppur.
24. Umdæmi sýslumannsins í Keflavík:
Grindavík, Hafnahreppur, Sandgerði, Gerðahreppur, Keflavík,
Njarðvík og Vatnsleysustrandarhreppur, þó ekki svæði sem falla undir lið 25.
25. Umdæmi sýslumannsins á Keflavíkurflugvelli:
Svæði á Suðurnesjum sem eru varnarsvæði og varnarsamningur
Íslands og Bandaríkjanna frá 5. maí 1951 tekur til og sýnd eru á uppdrætti er
fylgir reglugerð þessari.
26. Umdæmi sýslumannsins í Hafnarfirði:
Hafnarfjörður, Garðabær og Bessastaðahreppur.
27. Umdæmi sýslumannsins í Kópavogi:
Kópavogur.
2. gr.
Þar sem mörk milli stjórnsýsluumdæma eru óskýr, svo sem á
hálendinu, ákveður dómsmálaráðherra í hvaða umdæmi mál komi til úrlausnar.
Á sama hátt ákveður dómsmálaráðherra í hvaða umdæmi mál
komi til úrlausnar ef það getur af einhverjum ástæðum átt undir fleiri en einn
sýslumann (lögreglustjóra, tollstjóra í Reykjavík).
3. gr.
Á eftirgreindum stöðum skulu vera útibú frá
sýslumannsembættum:
1. Ólafsvík.
2. Dalvík.
3. Vopnafirði.
4. Egilsstöðum.
5. Grindavík.
6. Garðabæ.
Með útibúi skv. 1. mgr. er átt við skrifstofu þar sem veitt
er þjónusta frá sýslumannsembættum og skrifstofutími er a.m.k. fjórar
klukkustundir að jafnaði virka daga.
4. gr.
Á eftirgreindum stöðum skulu vera útibú lögreglu:
1. Ólafsvík.
2. Grundarfirði.
3. Dalvík.
4. Raufarhöfn.
5. Þórshöfn.
6. Vopnafirði.
7. Egilsstöðum.
8. Fáskrúðsfirði.
9. Grindavík.
Með útibúi lögreglu er átt við lögregluvarðstofu utan
aðalstöðvar lögreglu þar sem starfar a.m.k. einn lögreglumaður.
5. gr.
Í umdæmi lögreglustjórans í Reykjavík skulu vera
lögregluvarðstofur samkvæmt ákvörðun dómsmálaráðherra hverju sinni eftir
tillögu lögreglustjóra.
6. gr.
Dómsmálaráðherra ákveður, að fengnum tillögum sýslumanns,
hvaða þjónusta er veitt í útibúum.
7. gr.
Á aðalskrifstofu sýslumanns ber að færa aðalbókhald vegna
fjárgreiðslna sem eru mótteknar eða inntar af hendi í útibúum. Í útibúum ber þó
að halda sjóðbók og skal uppgjör við aðalskrifstofu sýslumanns fara fram
daglega.
Á aðalskrifstofu sýslumanns ber að halda skrá yfir mál sem
afgreidd eru í útibúum. Skjöl yfir afgreidd mál ber að varðveita á
aðalskrifstofu.
Beiðnir um fullnustugerðir ber að afhenda á aðalskrifstofu
sýslumanns.
8. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt ákvæðum í 11. og 13.
gr. laga um aðskilnað dómsvalds og umboðsvalds í héraði nr. 92 1. júní 1989,
öðlast gildi 1. júlí 1992.
Dóms- og
kirkjumálaráðuneytið, 5. febrúar 1992.
Þorsteinn
Pálsson.
Þorleifur Pálsson.
Fylgiskjal:
Umdæmi
sýslumannsins á Keflavíkurflugvelli.
Varnarsvæði á Suðurnesjum
samkvæmt varnarsamningi Íslands og
Bandaríkjanna frá 5.
maí 1951.

Word útgáfa af reglugerð