Reglugerð
um starfsemi
verkstæða með B-faggildingu
til prófunar á
ökuritum.
Gildissvið og
skilgreiningar.
1. gr.
Reglugerð þessi gildir um starfsemi
verkstæða sem hafa fengið B-faggildingu frá Löggildingarstofunni til prófunar á
ökuritum. Hún byggir á ákvæðum í reglugerð um prófun á ökuritum og tekur mið af
ákvæðum í ÍST EN 45000 staðlaröðinni.
Faggilding á prófunarverkstæðum er takmörkuð að því leyti
að verkstæðin þurfa ekki að fullnægja öllum skilyrðum sem gilda við hefðbundna
faggildingu og nefnist því B-faggilding.
2. gr.
Í reglugerð þessari hafa eftirfarandi orð
merkingu sem hér greinir:
Prófunarverkstæði: Verkstæði sem hlotið hefur B-faggildingu
á sviði prófana á ökuritum og uppfyllir ákvæði reglugerðar þessarar og
reglugerðar um prófun á ökuritum.
B-faggilding: Aðferð sem Löggildingarstofan beitir til að
veita formlega viðurkenningu á því að prófunarverkstæði búi yfir nægjanlegri
hæfni til að starfa skv. ákvæðum reglugerðar þessarar.
Tæknilegur stjórnandi: Yfirmaður á prófunarverkstæði sem
ber tæknilega ábyrgð á því að prófanir séu framkvæmdar í samræmi við settar
reglur og að öllum kröfum um B-faggildingu sé fullnægt.
Prófunarmaður: Starfsmaður prófunarverkstæðis sem uppfyllir
skilyrði reglugerðar um prófun á ökuritum um hæfniskröfur og annast prófanir á
ökuritum og tengdum búnaði.
Umfang.
3. gr.
Faggildingarsvið til prófunar á ökuritum
eru eftirfarandi:
a. Prófun við viðgerð á
ökuritum
b. Prófun við ísetningu
ökurita
c. Prófun við skoðun.
Reglur um stjórnun.
4. gr.
Á prófunarverkstæði skal starfa maður sem
er tæknilega ábyrgur fyrir því að prófun sé gerð samkvæmt ákvæðum þessarar
reglugerðar og öðrum þeim reglum sem um starfsemi þessa fjalla. Starfsmaðurinn
skal vera fastráðinn, heyra beint undir yfirstjórn verkstæðisins og hafa
viðhlítandi starfsréttindi og reynslu.
Prófunarverkstæði skal hafa skjalfesta lýsingu á þeirri
starfsemi sinni sem faggilt er.
Sjálfstæði og
ráðvendni.
5. gr.
Við prófun má prófunarmaður ekki þiggja
afkastahvetjandi laun eða hliðstæðar greiðslur eða hafa fjárhagslegan ávinning
af niðurstöðum prófana eða á annan hátt vera háður niðurstöðum prófana.
Prófunarverkstæði skal tryggja að utanaðkomandi aðilar hafi
engin áhrif á niðurstöður prófana.
Gæðakerfi.
6. gr.
Prófunarverkstæði skal vegna
prófunarstarfsemi sinnar hafa skýra stefnu í gæðamálum og beita virku gæðakerfi
sem skjalfest er í gæðahandbók.
Tæknileg hæfni.
Tæknilegur
stjórnandi og prófunarmaður.
7. gr.
Tæknilegur stjórnandi og skoðunarmaður
skulu hafa nægilega tæknikunnáttu í þeim viðgerðum og prófunum sem
prófunarverkstæðið annast. Þeir skulu auk þess kunna skil á reglum
dómsmálaráðuneytisins er varða prófun á ökuritum og uppfylla hæfniskröfur í
reglugerð um prófun á ökuritum.
Prófunarverkstæðið skal halda skrá yfir þá starfsmenn sem
annast prófun á ökuritum. Í skránni skulu vera upplýsingar um grunnmenntun,
þjálfun, tæknilega þekkingu og reynslu sérhvers starfsmanns.
Aðstaða og
tækjabúnaður.
8. gr.
Prófunarverkstæði skal vera í húsnæði og
hafa aðstöðu sem hentar til prófunar á ökuritum. Húsnæði skal að öðru leyti
uppfylla allar reglur opinberra aðila um heilbrigðis- og öryggismál.
9. gr.
Prófunarverkstæði skal hafa yfir að ráða
tækjakosti í samræmi við ákvæði í reglugerð um prófun á ökuritum.
Prófunarverkstæði skal ábyrgjast að búnaður sem notaður er
við skoðun, fái viðhald og umhirðu samkvæmt skriflegri áætlun
prófunarverkstæðisins.
Prófunarverkstæði skal skrá tæki sem notuð eru við prófun
ökurita með upplýsingum um kvörðun og viðhald eftir því sem við á. Tæki sem
verkstæðið tekur í notkun skulu kvörðuð og síðan endurkvörðuð eftir föstu
skipulagi eftir því sem við á.
Prófunarverkstæði skal hafa reglur um kvörðun tækja og skal
þeim reglum beitt þannig að mælingar sem gerðar eru megi rekja til mæligrunna
ef unnt er og þegar þurfa þykir.
Mælitæki skulu athuguð milli reglubundinna kvarðana skv.
skriflegri áætlun prófunarverkstæðisins.
Prófunarverkstæði skal taka biluð tæki úr notkun. Áhrif
bilunar á fyrri prófanir skulu athuguð og bætt úr þeim.
Tækjakostur sem notaður er við prófanir skal vera
greinilega merktur.
Tækjakostur skal að öðru leyti uppfylla allar reglur
opinberra aðila um heilbrigðis- og öryggismál.
Vinnuskipan.
Verklagsreglur.
10. gr.
Prófunarverkstæði skal útbúa eigin verklagsreglur
um framkvæmd prófana og starfa samkvæmt þeim.
Ávallt skal sannreyna að réttan ökurita sé verið að prófa
með því að bera saman númer ökuritans, vottorð um aðalskoðun, skráningarnúmer
og verksmiðjunúmer ökutækisins.
Prófunarskýrslur.
11. gr.
Prófunarverkstæði skal skrá niðurstöður í
prófunarskýrslu.
Prófunarskýrsla skal geyma upplýsingar um hver prófaði,
niðurstöður prófunar svo og niðurstöður um mat á samræmi við reglur sem
dómsmálaráðuneytið gefur út ásamt öðrum upplýsingum sem með þarf, þannig að
unnt sé að skilja og túlka niðurstöður. Upplýsingar skulu gefnar villulausar,
nákvæmar og skýrar. Ef skýrsla hefur að geyma niðurstöður frá undirverktaka
skulu þær greinilega merktar.
Prófunarskýrsla skal einungis undirrituð af þeim
prófunarmanni sem prófaði ökuritann.
Prófunarverkstæði skal senda afrit af prófunarskýrslu
samdægurs til skráningaraðila.
Prófunarverkstæði skal tilgreina faggildingarnúmer sitt á
prófunarskýrslu.
Skjalavistun.
12. gr.
Prófunarskýrsla og önnur gögn skulu vistuð
á öruggum stað í a.m.k. sex ár eftir að prófun fór fram. Með þessum gögnum skal
einnig vista niðurstöður frá undirverktökum. Prófunarverkstæði sem tekur að sér
prófun ökurita, en felur undirverktaka hluta skoðunarinnar, ber ábyrgð á
skýrslunni og prófuninni í heild. Einungis skal gefa út eina skýrslu fyrir
hvern ökurita.
Skýrslur og önnur gögn skulu tiltæk og auðfinnanleg þegar
Löggildingarstofan eða viðeigandi stjórnvald óskar þess.
Undirverktakar.
13. gr.
Prófunarverkstæði skal að öllu jöfnu sjálft
annast þær prófanir sem gera skal, en er heimilt að fela undirverktaka hluta
prófunarinnar, enda sé fyrirkomulag í samræmi við reglugerð um prófun ökurita.
Halda skal ítarlega skrá yfir undirverktaka ásamt lýsingu á
faglegum tengslum prófunarverkstæðis og undirverktaka.
Kvartanir.
14. gr.
Prófunarverkstæði skal setja sér skriflegar
verklagsreglur um hvernig það fer með kvartanir vegna prófunar. Verkstæðið skal
halda skrá um allar kvartanir sem beinast að prófunarstarfseminni og hvaða
ráðstafanir hafa verið gerðar þeirra vegna.
Ýmis ákvæði.
15. gr.
Prófunarverkstæði skal:
a. Á skýran hátt tilgreina á
hvaða sviði það er faggilt.
b. Því aðeins vísa til
faggildingar sinnar í prófunarskýrslum að fram komi fyrir hvaða svið það er
faggilt.
c. Ekki gefa yfirlýsingu um
faggildinguna sem telja má villandi eða fer út fyrir heimild þess.
d. Reyna að tryggja að
enginn noti prófunarskýrslur eða hluta úr þeim á villandi hátt.
e. Veita það samstarf sem
nauðsynlegt telst til þess að gera Löggildingarstofunni kleift að annast
eftirlit.
f. Þegar í stað hætta að
vísa til faggildingar sinnar ef hún er felld úr gildi eða rennur út.
g. Taka þátt í
samráðsstarfsemi og samanburðarprófunum.
16. gr.
Prófunarverkstæði skal tilkynna
faggildingardeild Löggildingarstofunnar skriflega og án tafar hverja þá
breytingu sem getur haft áhrif á heimild verkstæðisins til þess að starfa
samkvæmt fyrirmælum um faggildingu.
17. gr.
Faggilding gildir til allt að fimm ára og
skal í síðasta lagi að þeim tíma liðnum fara fram mat á prófunarverkstæði, eins
og um fyrsta mat sé að ræða. Löggildingarstofan gerir reglubundið eftirlit á
árs fresti.
18. gr.
Ef prófunarverkstæði uppfyllir ekki almenn
skilyrði um faggildingu, prófun er ófullnægjandi eða að prófunarmaður
staðfestir prófun ranglega getur Löggildingarstofan þegar í stað krafist
tafarlausra úrbóta af hálfu prófunarverkstæðis, ákveðið að breyta umfangi
faggildingar eða ákveðið að afturkalla faggildingu.
Kostnaður sem af slíkri aðgerð hlýst, skal greiddur af
prófunarverkstæðinu.
19. gr.
Kostnað við faggildingu, árlegt eftirlit
o.fl. sem tilgreint er í gjaldskrá Löggildingarstofunnar skal
prófunarverkstæðið greiða á gjalddaga.
20. gr.
Prófunarverkstæði skal hafa fullnægjandi
ábyrgðartryggingar.
Gildistaka.
21. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er skv. 12. gr.
laga nr. 100/1992, um vog, mál og faggildingu, öðlast þegar gildi.
Viðskiptaráðuneytinu,
22. janúar 1996.
F. h. r.
Þorkell Helgason.
Sveinn
Þorgrímsson.
Word útgáfa af reglugerð