|
|
037/1999
REGLUGERÐ
um sundurliðun gjaldstofns til búnaðargjalds.
1. gr. Á framtali til búnaðargjalds skal eftirfarandi tafla gilda um sundurliðun gjaldstofnsins:
| Nautgripaafurðir (þ.m.t. sala lífdýra og beingreiðslur) | + |
| Sauðfjár- og geitaafurðir (þ.m.t. sala lífdýra og beingreiðslur) | + |
| Hrossaafurðir (þ.m.t. sala lífdýra) | + |
| Svínaafurðir (þ.m.t. sala lífdýra) | + |
| Alifuglaafurðir, þó ekki egg (þ.m.t. sala líffugla) | + |
| Egg | + |
| Kartöflur | + |
| Gulrófur | + |
| Annað grænmeti og blóm | + |
| Grávara (þ.m.t. sala lífdýra) | + |
| Æðardúnn | + |
| Skógarafurðir | + |
| Heysala og annað | + |
Stofn til búnaðargjalds | = |
2. gr. Reglugerð þessi er sett skv. heimild í 3. mgr. 3. gr. laga nr. 84/1997 um búnaðargjald, með síðari breytingum, og öðlast þegar gildi.
Landbúnaðarráðuneytinu, 15. janúar 1999.
Guðmundur Bjarnason. Hjördís Halldórsdóttir.
Word útgáfa af reglugerð

|