Hoppa beint í aðalvalmynd
Stjórnarráðið  |  Ríkisstjórn  |  Réttarheimildir  |  Alþingi  |
 
Stjórnarráð Íslands    
  Forsíða  
 

  Reglugerðir

með breytingum
eftir ráðuneytum
eftir ártali
eftir köflum í safninu
brottfallnar
Leit
 

033/2005

REGLUGERÐ
um breyting á reglugerð nr. 990/2001, um greiðslu vaxtabóta,
með síðari breytingum.

1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 9. gr.:
a.Í stað 1. málsl. 1. mgr. koma þrír nýir málsliðir, svohljóðandi: Vaxtagjöld til útreiknings vaxtabóta miðast við fjárhæð vaxtagjalda, sbr. 7. gr., hjá hverjum framteljanda. Við ákvörðun vaxtabóta á árinu 2006 vegna vaxtagjalda og tekna á árinu 2005 og eigna og skulda í lok þess árs, geta vaxtagjöld til útreiknings vaxtabóta ekki orðið hærri en 5% af skuldum sem stofnað hefur verið til vegna öflunar íbúðarhúsnæðis til eigin nota eins og þær eru í árslok ársins 2005. Við ákvörðun vaxtabóta á árinu 2005 vegna vaxtagjalda og tekna á árinu 2004 og eigna og skulda í lok þess árs, geta vaxtagjöld til útreiknings vaxtabóta ekki orðið hærri en 5,5% af skuldum sem stofnað hefur verið til vegna öflunar íbúðarhúsnæðis til eigin nota eins og þær eru í árslok ársins 2004.
b.Í stað „480.371“, „630.626“ og „780.878“ í 2. mgr. kemur: 494.782, 649.544, og 804.304.


2. gr.
Í stað „3.613.148“, „5.781.037“, „5.989.414“ og „9.583.062“ í 10. gr. kemur: 3.721.542, 5.954.467, 6.169.097 og 9.870.555.


3. gr.
Í stað „164.603“, „211.691“, „272.206“ og „600“ í 11. gr. kemur: 169.541, 218.042, 280.372, og 618.


4. gr.
Í stað „120.093“, „157.657“, „195.220“, „41.151“, „52.923“ og „68.052“ í 15. gr. kemur: 123.696, 162.386, 201.076, 42.385, 54.511 og 70.093.


5. gr.
Í stað „600“ í 2. mgr. 17. gr. kemur: 618.


6. gr.
Við reglugerðina bætist eitt nýtt ákvæði til bráðabirgða sem orðast svo:
Vaxtabætur við álagningu á árinu 2005 vegna vaxtagjalda á árinu 2004 skulu nema 95% af fjárhæð vaxtabóta reiknaðra samkvæmt 10. og 11. gr. reglugerðar þessarar.


7. gr.
Reglugerð þessi er sett með stoð í B-lið 68. gr. og 121. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt og eignarskatt, með síðari breytingum, og öðlast þegar gildi.


Fjármálaráðuneytinu, 7. janúar 2005.

F. h. r.
Maríanna Jónasdóttir.
Guðmundur Thorlacius.

    nr_33_2005.doc
Stofnreglugerð:
990/2001 - Reglugerð um greiðslu vaxtabóta.

 
Stjórnartíðindi - Sölvhólsgötu 7 - 150 Reykjavík Sími 545 9000
Bréfasími 552 7340 - Netfang: reglugerdir@irr.is
Prentvænt