Stjórnarráðið  |  Ríkisstjórn  |  Réttarheimildir  |  Alþingi  |
 
Stjórnarráð Íslands    
  Forsíða  
 

  Reglugerðir

með breytingum
eftir ráðuneytum
eftir ártali
eftir köflum í safninu
brottfallnar
Leit
 

029/2009

REGLUGERÐ
um gildistöku reglugerða Evrópusambandsins um almannatryggingar
(lífeyristryggingar, atvinnuleysistryggingar og greiðslur í fæðingarorlofi) (XII).

1. gr.
Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1992/2006 frá 18. desember 2006 um breytingu á reglugerð ráðsins (EBE) nr. 1408/71 um beitingu almannatryggingareglna gagnvart launþegum, sjálfstætt starfandi einstaklingum og aðstandendum þeirra sem flytjast á milli aðildarríkja og reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 311/2007 frá 19. mars 2007 um breytingu á reglugerð ráðsins (EBE) nr. 574/72 sem kveður á um framkvæmd reglugerðar (EBE) nr. 1408/71 um beitingu almannatryggingareglna gagnvart launþegum, sjálfstætt starfandi einstaklingum og aðstandendum þeirra sem flytjast á milli aðildarríkja, skulu öðlast gildi hér á landi að því leyti sem ákvæði þeirra lúta að lífeyristryggingum, atvinnuleysistryggingum og greiðslum í fæðingarorlofi, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 159/2007 frá 7. desember 2007 um breytingu á VI. viðauka (félagslegt öryggi) við EES-samninginn. Reglugerðirnar skulu gilda á Íslandi með þeirri aðlögun sem fram kemur í ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar.

Reglugerðirnar (EB) nr. 1992/2006 og nr. 311/2007 fjalla að hluta til um sjúkratryggingar, slysatryggingar, barnabætur og réttindi úr lífeyrissjóðum. Í reglugerð frá heilbrigðisráðuneytinu nr. 855/2008 er mælt fyrir um gildistöku þess hluta sem fjallar um sjúkra- og slysatryggingar. Í reglugerð frá fjármálaráðuneytinu nr. 900/2008 er mælt fyrir um gildistöku þess hluta sem fjallar um barnabætur og réttindi úr lífeyrissjóðum.


2. gr.
Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1992/2006, reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 311/2007 og ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 159/2007 sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi EB, nr. 26, 8. maí 2008, bls. 20, eru birtar sem fylgiskjal með reglugerð heilbrigðisráðuneytisins nr. 855/2008.


3. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 70. gr. laga um almannatryggingar, nr. 100/2007, með síðari breytingum, 6. mgr. 42. gr. og 64. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006, að fenginni umsögn stjórnar Atvinnuleysistryggingasjóðs, og 35. gr. laga um fæðingar- og foreldraorlof, nr. 95/2000, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.


Félags- og tryggingamálaráðuneytinu, 5. janúar 2009.

Jóhanna Sigurðardóttir.
Ágúst Þór Sigurðsson.
B_nr_29_2009.doc


 
Stjórnartíðindi - Sölvhólsgötu 7 - 150 Reykjavík Sími 545 9000
Bréfasími 552 7340 - Netfang: reglugerdir@irr.is
Prentvænt