Menntamálaráðuneyti

29/1991

Reglugerð um breytingu á reglugerð um Ríkisútvarpið nr. 357/1986 með áorðnum breytingum. - Brottfallin

1. gr.

25. gr. orðist svo:

Ríkisútvarpið skal stuðla að almennri menningarþróun og taka þátt í því að treysta grundvöll íslenskrar tungu. Skal stefnt að því að hlutfall innlends efnis aukist á ári hverju frá því sem er við setningu þessarar reglugerðar uns a.m.k. helmingur alls efnis Ríkisútvarpsins er íslenskt, sem Ríkisútvarpið framleiðir sjálft eða kaupir af íslenskum framleiðendum.

Efni á erlendu máli, sem sýnt er í Ríkisútvarpinu skal jafnan fylgja íslenskt tal eða texti á íslensku eftir því sem við á hverju sinni. Það á þó ekki við þegar fluttir eru erlendir söngtextar eða þegar dreift er viðstöðulaust um gervihnött og móttökustöð fréttum eða fréttatengdu efni, sem sýnir að verulegu leyti atburði sem gerast í sömu andrá. Við þær aðstæður skal Ríkisútvarpið eftir því sem kostur er láta fylgja endursögn eða kynningu á íslensku á þeim atburðum sem gerst hafa. Skal lögð áhersla á að allt tal og texti sé á lýtalausu íslensku máli.

Ríkisútvarpið skal við lok hvers árs gera Íslenskri málnefnd grein fyrir þróun innlends dagskrárefnis í Ríkisútvarpinu og þeirri stefnu sem það hyggst fylgja á komandi ári. Mun málnefndin þá gera menntamálaráðuneytinu grein fyrir niðurstöðum sínum með skýrslu um íslenskt mál í fjölmiðlum þeim sem starfa eftir útvarpslögum. Skýrslan birtist einu sinni á ári í febrúarmánuði.

2. gr.

Reglugerð þessi öðlast þegar gildi.

Menntamálaráðuneytið, 17. janúar 1991.

Svavar Gestsson.

Þórunn J. Hafstein.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica