Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Breytingareglugerð

28/2011

Reglugerð um breytingu á reglugerð um námsstyrki, nr. 692/2003, með áorðnum breytingum.

1. gr.

Eftirfarandi breytingar verði á 6. gr.:

  1. Í stað orðsins "skólaakstur" í 2. málsl. 1. mgr. kemur: jöfnunar á námskostnaði.
  2. Í stað tölunnar "15%" í 2. málsl. 3. mgr. kemur: 50%.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett skv. 8. gr. laga um námsstyrki, nr. 79/2003 og öðlast þegar gildi.

Mennta- og menningarmálaráðuneytinu, 4. janúar 2011.

Katrín Jakobsdóttir.

Ásta Magnúsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.