Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti

23/2012

Reglugerð um (2.) breytingu á reglugerð nr. 106/2010 um gildistöku reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 882/2004 um opinbert eftirlit til að staðfesta að lög um fóður og matvæli og reglur um heilbrigði og velferð dýra séu virt. - Brottfallin

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í I. kafla, I. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 59/2011 frá 2. júlí 2011 öðlast eftirfarandi EB-gerð gildi hér á landi:

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1162/2009 um bráðabirgðaráðstaf­anir til framkvæmdar á reglugerðum Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 853/2004, (EB) nr. 854/2004 og (EB) nr. 882/2004.

2. gr.

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1162/2009 er birt í EES-viðbæti við Stjórnar­tíðindi Evrópusambandsins nr. 55 frá 7. október 2011, bls. 193.

3. gr.

Matvælastofnun og heilbrigðisnefndir sveitarfélaga undir yfirumsjón Matvælastofnunar fara með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við 6. og 22. gr. laga nr. 93/1995.

4. gr.

Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 30. gr., 30. gr. a - 30. gr. e og 31. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli.

5. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. a laga nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum.

6. gr.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 11. janúar 2012.

F. h. r.

Sigurgeir Þorgeirsson.

Indriði B. Ármannsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica