|
|
019/2008
REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 810/2006 um ákvarðanir framkvæmdastjórnar
Evrópusambandsins um samhæfða evrópska staðla sem teknar hafa
verið á grundvelli tilskipunar um öryggi vöru nr. 2001/95/EB.
1. gr. Við 1. gr. bætist 3. tölul. sbr. eftirfarandi:
3. Ákvörðun framkvæmdastjórnarinnar nr. 2006/502/EB frá 11. maí 2006 – Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 19/2007. Ákvörðunin felur tvennt í sér:
a) | Bann við markaðssetningu einnota kveikjara, sem ekki eru útbúnir barnalæsingu og uppfylla ekki staðalinn EN 13869:2002, Kveikjarar – Barnalæsingar fyrir kveikjara – Öryggiskröfur og prófunaraðferðir. |
b) | Bann við markaðssetningu nýstárlegra kveikjara (e. novelty lighters), sem uppfylla ekki staðalinn EN 13869:2002, Kveikjarar – Barnalæsingar fyrir kveikjara – Öryggiskröfur og prófunaraðferðir. Sem dæmi um nýstárlega kveikjara má nefna kveikjara er hafa útlit leikfangabíla eða gsm-síma og bjóða þeirri hættu heim að börn sæki í þá, grunlaus um þá hættu er af þeim stafar. |
2. gr.
Gildistaka. Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum nr. 134/1995, um öryggi vöru og opinbera markaðsgæslu. Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Viðskiptaráðuneytinu, 15. janúar 2008.
Björgvin G. Sigurðsson. Áslaug Árnadóttir.

Stofnreglugerð: 810/2006 - Reglugerð um ákvarðanir framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins um samhæfða evrópska staðla sem teknar hafa verið á grundvelli tilskipunar um öryggi vöru nr. 2001/95/EB.
|