|
|
013/2002
felld brott með rg. nr. 630/2008
REGLUGERÐ
um breyting á reglugerð, nr. 526/2000, um tollmeðferð vara
sem ferðamenn og farmenn hafa með sér við komu til landsins.
1. gr. Eftirfarandi breytingar eru gerðar á 2. gr. reglugerðarinnar:
| a. | Í stað fjárhæðarinnar „36.000 kr.“ í 1. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar kemur: 46.000 kr. |
| b. | Í stað fjárhæðarinnar „18.000 kr.“ í 1. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar kemur: 23.000 kr. |
| c. | Í stað fjárhæðarinnar „13.000 kr.“ í 1. málsl. 2. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar kemur: 17.000 kr. |
| d. | Í stað fjárhæðarinnar „26.000 kr.“ í 1. málsl. 2. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar kemur: 34.000 kr. |
| e. | Í stað fjárhæðarinnar „13.000 kr.“ í 2. málsl. 2. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar kemur: 17.000 kr. |
| f. | Í stað fjárhæðarinnar „10.000 kr.“ í 5. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar kemur: 13.000 kr. |
2. gr. Í stað orðanna „Tveir lítrar“ í d. lið 1. tölul. 3. gr. kemur: 2,25 lítrar.
3. gr. Nýr töluliður, 2. tölul, bætist við 2. mgr. 9. gr. svohljóðandi, og breytist röð annarra töluliða samkvæmt því: Munntóbak og fínkorna neftóbak.
4. gr. Reglugerð þessi er sett með heimild í 2. tölul. 1. mgr., sbr. 2. mgr. 5. gr. svo og 148. gr. tollalaga, nr. 55/1987, með síðari breytingum, og öðlast þegar gildi.
Fjármálaráðuneytinu, 15. janúar 2002.
F. h. r.
Baldur Guðlaugsson.
Jóna Björk Guðnadóttir.
Stofnreglugerð: 526/2000 - Reglugerð um tollmeðferð vara sem ferðamenn og farmenn hafa með sér við komu til landsins.
|