Landbúnaðarráðuneyti

13/2000

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 671/1997 um aðbúnað nautgripa og eftirlit með framleiðslu mjólkur og annarra afurða þeirra. - Brottfallin

REGLUGERÐ

um breytingu á reglugerð nr. 671/1997 um aðbúnað nautgripa og

eftirlit með framleiðslu mjólkur og annarra afurða þeirra.

1. gr.

Landbúnaðarráðherra er heimilt að fengnum meðmælum yfirdýralæknis að veita almenna undanþágu frá skilyrðum 6. gr. varðandi jöturými í allt að eitt ár samkvæmt nánari skilyrðum sem yfirdýralæknir setur.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum nr. 46/1991, um búfjárhald, forðagæslu o.fl. ásamt síðari breytingum, lögum nr. 66/1998, um dýralækna og heilbrigðisþjónustu við dýr ásamt síðari breytingum og lögum nr. 25/1993, um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim ásamt síðari breytingum og öðlast þegar gildi.

Landbúnaðarráðuneytinu, 1. janúar 2000.

Guðni Ágústsson.

Ingibjörg Ólöf Vilhjálmsdóttir.

 

 


Þetta vefsvæði byggir á Eplica