|
|
010/2011
REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 736/2009, um úthlutun aflaheimilda í þorski
vegna tilrauna við föngun fisks til áframeldis og framkvæmd þess.
1. gr. Við 1. mgr. 3. gr. bætist nýr málsl., svohljóðandi:
Umsóknum skulu fylgja greinargerðir um áformaðar veiðar og eldi umsækjenda.
2. gr. Við 4. gr. bætist ný málsgr., sem verður 2. mgr., svohljóðandi:
Óheimilt er að úthluta aflaheimildum til fyrirtækja sem ekki hafa fært framleiðsludagbók í samræmi við reglur sem um það gilda á hverjum tíma.
3. gr. Eftirfarandi breytingar verða á 8. gr. reglugerðarinnar:
- Við 1. mgr. bætist nýr málsl., sem verður 2. málsl., svohljóðandi: Ráðuneytið skal innkalla aflaheimildir strax að loknu fiskveiðiári.
- Við 3. mgr. bætast tveir nýir málsl., sem verða 2. og 5. málsl., svohljóðandi:
| a) | 2. málsl.: Ráðherra getur falið Fiskistofu að innkalla og endurúthluta aflaheimildum eftir tilteknum reglum sem ráðherra setur. |
| b) | 5. málsl.: Áður en það gerist skal viðkomandi fyrirtæki hafa lokið við að veiða og láta vigta allan afla á grundvelli aflaheimilda sem áður hefur verið úthlutað. |
4. gr. Ákvæði til bráðabirgða fellur brott.
5. gr. Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, og lögum nr. 71/2008, um fiskeldi, öðlast þegar gildi.
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 6. janúar 2011.
F. h. r.
Sigurgeir Þorgeirsson. Sigríður Norðmann.

Stofnreglugerð: 736/2009 - Reglugerð um úthlutun aflaheimilda í þorski vegna tilrauna við föngun fisks til áframeldis og framkvæmd þess.
|