Stjórnarráðið  |  Ríkisstjórn  |  Réttarheimildir  |  Alþingi  |
 
Stjórnarráð Íslands    
  Forsíða  
 

  Reglugerðir

með breytingum
eftir ráðuneytum
eftir ártali
eftir köflum í safninu
brottfallnar
Leit
 

009/2009

REGLUGERÐ
um (9.) breytingu á reglugerð nr. 74/2002 um lífræna
landbúnaðarframleiðslu og merkingar.

1. gr.
Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í XII. kafla, II. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af II. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli eftirtalinna ákvarðana sameiginlegu EES-nefndarinnar öðlast eftirfarandi EB-gerðir gildi hér á landi:

Reglugerð framkvæmdastjórnar (EB) nr. 780/2006 frá 24. maí 2006 um breytingu á VI. viðauka við reglugerð ráðsins (EBE) nr. 2092/91 að því er varðar leyfileg innihaldsefni og hjálparefni við framleiðslu ákveðinna lífrænna afurða. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 9 frá 27. apríl 2007.

Reglugerð framkvæmdastjórnar (EB) nr. 807/2007 frá 10. júlí 2007 um breytingu á II. viðauka við reglugerð ráðsins (EBE) nr. 2092/90 að því er varðar tímabundið leyfi til notkunar á efninu metaldehýð við lífræna kornframleiðslu. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 45 frá 25. apríl 2008.

Reglugerð framkvæmdastjórnar (EB) nr. 1319/2007 frá 9. nóvember 2007 um breytingu á I. Viðauka við reglugerð ráðsins (EBE) nr. 2092/90 að því er varðar notkun fóðurs af landspildum sem eru á fyrsta ári í aðlögun að lífrænum búskap. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 45 frá 25. apríl 2008.


2. gr.
Ofangreindar reglugerðir framkvæmdastjórnarinnar eru birtar sem fylgiskjöl 1 til 3 við reglugerð þessa.


3. gr.
  1. Með innleiðingu reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 780/2006 breytast ákvæði VI. viðauka, sbr. 8. tl. 5. gr. reglugerðar nr. 74/2002.
  2. Með innleiðingu reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 807/2007 breytist tafla III (efni til notkunar í gildrum og/eða skömmturum), B-hluta, II. viðauka reglugerðar nr. 74/2002.
  3. Með innleiðingu reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1319/2007reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1319/2007 breytast ákvæði töluliðar 4.4., B-hluta, I. viðauka reglugerðar nr. 74/2002.

4. gr.
3. töluliður 6. gr. reglugerðar nr. 74/2002 verður svohljóðandi í samræmi við reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1452/2003, sem innleidd var með reglugerð nr. 951/2008:
  1. Þrátt fyrir ákvæði c-liðar 1. mgr. er heimilt að nota fræ og plöntufjölgunarefni, sem eru ekki framleidd samkvæmt lífrænu aðferðinni með samþykki sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins, að því tilskildu að notendur slíks plöntufjölgunarefnis geti sýnt viðkomandi vottunarstofu fram á með fullnægjandi hætti að þeim hafi verið ókleift að afla plöntufjölgunarefnis af réttu afbrigði viðkomandi tegundar, sem fullnægir skilyrðum 2. mgr., á markaði á EES-svæðinu. Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið skal tilkynna hinum aðildarríkjum EES-svæðisins og framkvæmdastjórn ESB um leyfi sem eru veitt samkvæmt þessari málsgrein.
  2. Um málsmeðferðarreglur og viðmiðanir vegna útgáfu undanþáguheimilda gilda ákvæði reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1452/2003.

5. gr.
Reglugerð þessi er sett með heimild í 6. gr. laga nr. 162/1994 um lífræna landbúnaðarframleiðslu. Reglugerðin öðlast þegar gildi.


Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 6. janúar 2008.

F. h. r.
Sigurgeir Þorgeirsson.
Baldur P. Erlingsson.
B_nr_9_2009_an_fylgiskjala.doc

Stofnreglugerð:
074/2002 - Reglugerð um lífræna framleiðslu landbúnaðarafurða og merkingar.

 
Stjórnartíðindi - Sölvhólsgötu 7 - 150 Reykjavík Sími 545 9000
Bréfasími 552 7340 - Netfang: reglugerdir@irr.is
Prentvænt