Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyti

447/2001

Reglugerð um (2.) breytingu á reglugerð nr. 129/1999 um skýrslugerð vegna smitsjúkdóma. - Brottfallin

447/2001

REGLUGERÐ
um (2.) breytingu á reglugerð nr. 129/1999 um skýrslugerð vegna smitsjúkdóma.

1. gr.

5. gr. orðast svo:

5. gr.
Tilkynningaskyldir sjúkdómar.

Tilkynningaskyldir sjúkdómar eru:

barnaveiki lifrarbólga A
berklar lifrarbólga B
bótúlismi lifrarbólga C
Creutzfeldt Jacob veiki og afbrigði hennar lifrarbólga E
enterohemorrhagisk E. coli sýking lifrarbólga vegna annarra veira
giardiasis linsæri
gulusótt og aðrar blæðandi veiruhitasóttir listeríusýking
hemofilus influenzea sjúkdómur gerð b lömunarveiki
hettusótt meningókokkasjúkdómur
HIV-sýking miltisbrandur
holdsveiki mislingar
hundaæði rauðir hundar
kampýlóbaktersýking salmonellusýking
kikhósti sárasótt
klamydíusýking sígellusýking
kólera stífkrampi
legíónellusýking svarti dauði
lekandi



2. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 18. gr., sbr. 3. gr. sóttvarnalaga nr. 19/1997, með síðari breytingu, öðlast þegar gildi.


Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu, 6. júní 2001.

Jón Kristjánsson.
Davíð Á. Gunnarsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica