Heilbrigðisráðuneyti

966/2008

Reglugerð um breytingu á ýmsum reglugerðum vegna flutnings á útgáfu starfsleyfa heilbrigðisstétta til landlæknis.

Stofnreglugerðir:

I. KAFLI

Breyting á reglugerð nr. 974/2006,
um menntun, réttindi og skyldur áfengis- og vímuefnaráðgjafa.

1. gr.

Í stað orðsins "heilbrigðisráðherra" í 1. gr. reglugerðar­innar kemur: landlæknis.

2. gr.

Í stað orðanna "heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið" í 1. málsl. 2. gr. reglugerðar­innar kemur: heilbrigðisráðherra.

3. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 4. gr. reglugerðarinnar:

  1. Í stað orðanna "senda heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyti" í 1. málsl. kemur: sendir heilbrigðisráðherra.
  2. Í stað orðsins "Ráðuneytið" í 2. málsl. kemur: Ráðherra.

4. gr.

Í stað orðanna "heilbrigðisþjónustu nr. 97/1990 og ákvæði læknalaga nr. 53/1988" í 5. gr. reglugerðarinnar kemur: landlækni.

5. gr.

8. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

Um eftirlit með áfengis- og vímuefnaráðgjöfum, veitingu áminningar og sviptingu starfs­leyfa eða takmörkun starfsréttinda sem veitt eru samkvæmt reglugerð þessari og endur­veitingu slíkra réttinda gilda ákvæði laga um landlækni.

Ákvæði læknalaga gilda að öðru leyti eftir því sem við getur átt um áfengis- og vímu­efnaráðgjafa og um refsingar fyrir brot í starfi.

6. gr.

Við reglugerðina bætist ákvæði til bráðabirgða sem orðast svo:

Starfsleyfi sem heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra hefur gefið út samkvæmt reglu­gerð þessari fyrir 1. apríl 2008 halda gildi sínu þrátt fyrir ákvæði 1. gr. reglugerðarinnar.

II. KAFLI

Breyting á reglugerð nr. 555/1999, um sérfræðileyfi í félagsráðgjöf.

7. gr.

Í stað orðanna "heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins" í 1. gr. reglugerðarinnar kemur: landlæknis.

8. gr.

Í stað orðanna "heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra" í 1. tölul. 2. gr. reglugerðarinnar kemur: landlæknis.

9. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 2. málsl. 1. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar:

  1. Í stað orðanna "Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið" kemur: Heilbrigðis­ráðherra.
  2. Í stað orðanna "13. gr." kemur: 12. gr.

10. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 12. gr. reglugerðarinnar:

  1. Í stað orðanna "heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins" í 1. málsl. 1. mgr. kemur: landlæknis.
  2. 2. málsl. 1. mgr. orðast svo: Landlæknir veitir sérfræðileyfi í félagsráðgjöf að fenginni umsögn þriggja manna sérfræðinefndar sem ráðherra skipar.
  3. Í stað orðanna "heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu" í 3. málsl. 1. mgr. kemur: heilbrigðisráðherra.
  4. Í stað orðsins "félagsmálaráðuneytisins" í 1. málsl. 3. mgr. kemur: félags- og tryggingamálaráðuneytisins.
  5. Í stað orðanna "Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið" í 4. mgr. kemur: Landlæknir.

11. gr.

Ákvæði til bráðabirgða með reglugerðinni orðast svo:

Starfsleyfi sem heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra hefur gefið út samkvæmt reglu­gerð þessari fyrir 1. apríl 2008 halda gildi sínu þrátt fyrir ákvæði 1. gr. reglugerðarinnar.

III. KAFLI

Breyting á reglugerð nr. 184/1991, um menntun, réttindi
og skyldur fótaaðgerðafræðinga.

12. gr.

Í stað orðins "heilbrigðisráðherra" í 1. gr. reglugerðarinnar kemur: landlæknis.

13. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 2. gr. reglugerðarinnar:

  1. Í stað orðanna "heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið" í 1. málsl. 1. mgr. kemur: heilbrigðisráðherra.
  2. Orðin "landlæknis og" í 3. mgr. falla brott.

14. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 3. gr. reglugerðarinnar:

  1. Í stað orðsins "heilbrigðisráðherra" kemur: landlækni.
  2. Orðin "landlæknis og" falla brott.

15. gr.

9. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

Um eftirlit með fótaaðgerðafræðingum, veitingu áminningar og sviptingu starfsleyfa eða takmörkun starfsréttinda sem veitt eru samkvæmt reglugerð þessari og endurveitingu slíkra réttinda gilda ákvæði laga um landlækni.

Ákvæði læknalaga gilda að öðru leyti eftir því sem við getur átt um fótaaðgerðafræðinga og um refsingar fyrir brot í starfi.

16. gr.

Ákvæði til bráðabirgða með reglugerðinni orðast svo:

Starfsleyfi sem heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra hefur gefið út samkvæmt reglu­gerð þessari fyrir 1. apríl 2008 halda gildi sínu þrátt fyrir ákvæði 1. og 3. gr. reglugerðar­innar.

IV. KAFLI

Breyting á reglugerð nr. 185/2001, um geislafræðinga.

17. gr.

Í stað orðanna "heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra" í 1. gr. reglugerðarinnar kemur: landlæknis.

18. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 2. gr. reglugerðarinnar:

  1. Í stað orðanna "Tækniskóla Íslands" í 1. málsl. kemur: háskóla hér á landi.
  2. Orðin "landlæknis og" í 3. málsl. fellur brott.

19. gr.

Í stað orðanna "löggildingu heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra" í 3. gr. reglugerðar­innar kemur: til þess leyfi landlæknis.

20. gr.

7. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

Um eftirlit með geislafræðingum, veitingu áminningar og sviptingu starfsleyfa eða tak­mörkun starfsréttinda sem veitt eru samkvæmt reglugerð þessari og endurveitingu slíkra réttinda gilda ákvæði laga um landlækni.

Ákvæði læknalaga gilda að öðru leyti eftir því sem við getur átt um geislafræðinga og um refsingar fyrir brot í starfi.

21. gr.

Við reglugerðina bætist ákvæði til bráðabirgða sem orðast svo:

Starfsleyfi sem heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra hefur gefið út samkvæmt reglu­gerð þessari fyrir 1. apríl 2008 halda gildi sínu þrátt fyrir ákvæði 1. og 3. gr. reglugerðar­innar.

V. KAFLI

Breyting á reglugerð nr. 124/2003, um veitingu sérfræðileyfa í hjúkrun.

22. gr.

Í stað orðanna "heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra" í 1. gr. reglugerðarinnar kemur: landlæknis.

23. gr.

Í stað orðanna "heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins" í 2. gr. reglugerðarinnar kemur: landlæknis.

24. gr.

Í stað orðsins "Ráðuneytið" í 1. mgr. 3. gr. reglugerðarinnar kemur: Landlæknir.

25. gr.

Við reglugerðina bætist ákvæði til bráðabirgða sem orðast svo:

Starfsleyfi sem heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra hefur gefið út samkvæmt reglu­gerð þessari fyrir 1. apríl 2008 halda gildi sínu þrátt fyrir ákvæði 1. gr. reglugerðarinnar.

VI. KAFLI

Breyting á reglugerð nr. 60/1990, um menntun, réttindi og skyldur hnykkja.

26. gr.

Í stað orðsins "heilbrigðisráðherra" í 1. gr. reglugerðarinnar kemur: landlæknis.

27. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 2. gr. reglugerðarinnar:

  1. Í stað orðanna "1. mgr." í 1. málsl. kemur: 1. gr.
  2. Orðin "landlæknis og" í 3. málsl. falla brott.

28. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 3. gr. reglugerðarinnar:

  1. Í stað orðsins "ráðherra" kemur: landlækni.
  2. Orðin "landlæknis og" falla brott.

29. gr.

9. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

Um eftirlit með hnykkjum, veitingu áminningar og sviptingu starfsleyfa eða takmörkun starfsréttinda sem veitt eru samkvæmt reglugerð þessari og endurveitingu slíkra réttinda gilda ákvæði laga um landlækni.

Ákvæði læknalaga gilda að öðru leyti eftir því sem við getur átt um hnykki og um refsingar fyrir brot í starfi.

30. gr.

Við reglugerðina bætist ákvæði til bráðabirgða sem orðast svo:

Starfsleyfi sem heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra hefur gefið út samkvæmt reglu­gerð þessari fyrir 1. apríl 2008 halda gildi sínu þrátt fyrir ákvæði 1. og 3. gr. reglugerðar­innar.

VII. KAFLI

Breyting á reglugerð nr. 186/1976, um meinatækna, með síðari breytingum.

31. gr.

1. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

Rétt til þess að kalla sig lífeindafræðing og starfa sem slíkur hér á landi hefur sá einn, sem til þess hefur fengið leyfi landlæknis.

32. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 2. gr. reglugerðarinnar:

  1. Í stað orðsins "Löggildingu" kemur: Leyfi.
  2. Í stað orðanna "frá Meinatæknaskóla Íslands" kemur: í lífeindafræði frá háskóla hér á landi.

33. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 3. gr. reglugerðarinnar:

  1. Í stað orðsins "Ráðherra" kemur: Landlæknir.
  2. Í stað orðsins "löggildingu" kemur: leyfi skv. 1. gr.
  3. Í stað orðsins "meinatæknaskóla" kemur: skóla.

34. gr.

Í stað orðsins "Meinatækni" í 4. gr. reglugerðarinnar kemur: Lífeindafræðingi.

35. gr.

5. gr. reglugerðarinnar fellur brott.

36. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 6. gr. reglugerðarinnar:

  1. Í stað orðsins "meinatæknisstarfa" kemur: lífeindafræðingsstarfa.
  2. Í stað orðsins "heilbrigðismálaráðherra" kemur: landlæknir.

37. gr.

7. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

Um eftirlit með lífeindafræðingum, veitingu áminningar og sviptingu starfsleyfa eða tak­mörkun starfsréttinda sem veitt eru samkvæmt reglugerð þessari og endurveitingu slíkra réttinda gilda ákvæði laga um landlækni.

Ákvæði læknalaga gilda að öðru leyti eftir því sem við getur átt um lífeindafræðinga og um refsingar fyrir brot í starfi.

38. gr.

Við reglugerðina bætist ákvæði til bráðabirgða sem orðast svo:

Starfsleyfi sem heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra hefur gefið út samkvæmt reglu­gerð þessari fyrir 1. apríl 2008 halda gildi sínu þrátt fyrir ákvæði 1. og 6. gr. reglugerðar­innar.

39. gr.

Heiti reglugerðarinnar verður: Reglugerð um lífeindafræðinga.

VIII. KAFLI

Breyting á reglugerð nr. 323/2007, um veitingu sérfræðileyfa í lífeindafræði.

40. gr.

Í stað orðanna "heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra" í 1. gr. reglugerðarinnar kemur: landlæknis.

41. gr.

Í stað orðanna "heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins" í 2. gr. reglugerðarinnar kemur: landlæknis.

42. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 3. gr. reglugerðarinnar:

  1. Í stað orðsins "Ráðuneytið" kemur: Landlæknir.
  2. Orðið "landlæknis" fellur brott.

43. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á ákvæðum til bráðabirgða með reglugerðinni:

  1. Í stað orðsins "Ráðherra" í 1. mgr. kemur: Landlækni.
  2. Við bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða sem orðast svo:
    Starfsleyfi sem heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra hefur gefið út samkvæmt reglugerð þessari fyrir 1. apríl 2008 halda gildi sínu þrátt fyrir ákvæði 1. gr. reglugerðarinnar.

IX. KAFLI

Breyting á reglugerð nr. 449/1978, um veitingu sérfræðingsleyfa
handa lyfjafræðingum.

44. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 1. gr. reglugerðarinnar:

  1. Í stað orðanna "heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins" kemur: landlæknis.
  2. Við greinina bætist nýr málsliður sem verður 1. málsl. og orðast svo: Rétt til þess að kalla sig sérfræðing í lyfjafræði og starfa sem slíkur hér á landi hefur sá einn sem til þess hefur leyfi landlæknis.

45. gr.

Í stað orðsins "Ráðuneytið" í 1. málsl. 2. gr. reglugerðarinnar kemur: Landlæknir.

46. gr.

5. gr. reglugerðarinnar fellur brott.

47. gr.

Við reglugerðina bætist ákvæði til bráðabirgða sem orðast svo:

Starfsleyfi sem heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra hefur gefið út samkvæmt reglu­gerð þessari fyrir 1. apríl 2008 halda gildi sínu þrátt fyrir ákvæði 1. gr. reglugerðarinnar.

X. KAFLI

Breyting á reglugerð nr. 199/1983, um starfsréttindi og starfssvið
lyfjatækna, með síðari breytingum.

48. gr.

Í stað orðanna "löggildingu heilbrigðisráðherra" í 1. gr. reglugerðarinnar kemur: leyfi landlæknis.

49. gr.

Í stað orðanna "24. gr. laga um lyfjadreifingu nr. 76/1982" í 3. gr. reglugerðarinnar kemur: lyfjalög.

50. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 4. gr. reglugerðarinnar:

  1. Í stað orðsins "heilbrigðismálaráðherra" kemur: landlæknir.
  2. Í stað orðanna "nr. 64/1971 um tæknimenntaðar heilbrigðisstéttir" kemur: um starfsheiti og starfsréttindi heilbrigðisstétta.

51. gr.

5. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

Um eftirlit með lyfjatæknum, veitingu áminningar og sviptingu starfsleyfa eða takmörkun starfsréttinda sem veitt eru samkvæmt reglugerð þessari og endurveitingu slíkra réttinda gilda ákvæði laga um landlækni.

Ákvæði læknalaga gilda að öðru leyti eftir því sem við getur átt um lyfjatækna og um refsingar fyrir brot í starfi.

52. gr.

Við reglugerðina bætist ákvæði til bráðabirgða sem orðast svo:

Starfsleyfi sem heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra hefur gefið út samkvæmt reglu­gerð þessari fyrir 1. apríl 2008 halda gildi sínu þrátt fyrir ákvæði 1. og 4. gr. reglugerðar­innar.

XI. KAFLI

Breyting á reglugerð nr. 161/1987, um menntun, réttindi
og skyldur læknaritara, með síðari breytingum.

53. gr.

Í stað orðsins "heilbrigðisráðherra" í 1. gr. reglugerðarinnar kemur: landlæknis.

54. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 2. gr. reglugerðarinnar:

  1. Í stað orðanna "heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið" í 1. mgr. kemur: heilbrigðisráðherra.
  2. Orðin "og landlæknis" í 2. málsl. 2. mgr. falla brott.

55. gr.

7. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

Um eftirlit með læknariturum, veitingu áminningar og sviptingu starfsleyfa eða tak­mörkun starfsréttinda sem veitt eru samkvæmt reglugerð þessari og endurveitingu slíkra réttinda gilda ákvæði laga um landlækni.

Ákvæði læknalaga gilda að öðru leyti eftir því sem við getur átt um læknaritara og um refsingar fyrir brot í starfi.

56. gr.

Ákvæði til bráðabirgða með reglugerðinni orðast svo:

Starfsleyfi sem heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra hefur gefið út samkvæmt reglu­gerð þessari fyrir 1. apríl 2008 halda gildi sínu þrátt fyrir ákvæði 1. gr. reglugerðarinnar.

XII. KAFLI

Breyting á reglugerð nr. 305/1997, um veitingu lækningaleyfa
og sérfræðileyfa, með síðari breytingum.

57. gr.

Í stað orðanna "heilbrigðis- og tryggingarmálaráðuneytis" í 2. mgr. 1. gr. reglugerðar­innar kemur: landlæknis.

58. gr.

2. mgr. 11. gr. reglugerðarinnar fellur brott.

59. gr.

Við reglugerðina bætist ákvæði til bráðabirgða sem orðast svo:

Starfsleyfi sem heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra hefur gefið út samkvæmt reglu­gerð þessari fyrir 1. apríl 2008 halda gildi sínu.

XIII. KAFLI

Breyting á reglugerð nr. 27/1989, um matartækna, með síðari breytingum.

60. gr.

Í stað orðanna "löggildingu heilbrigðismálaráðherra" í 1. gr. reglugerðarinnar kemur: leyfi landlæknis.

61. gr.

Í stað orðsins "Löggildingu" í 1. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar kemur: Leyfi.

62. gr.

Í stað orðsins "heilbrigðismálaráðherra" í 5. gr. reglugerðarinnar kemur: landlæknir.

63. gr.

6. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

Um eftirlit með matartæknum, veitingu áminningar og sviptingu starfsleyfa eða tak­mörkun starfsréttinda sem veitt eru samkvæmt reglugerð þessari og endurveitingu slíkra réttinda gilda ákvæði laga um landlækni.

Ákvæði læknalaga gilda að öðru leyti eftir því sem við getur átt um matartækna og um refsingar fyrir brot í starfi.

64. gr.

Við reglugerðina bætist ákvæði til bráðabirgða sem orðast svo:

Starfsleyfi sem heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra hefur gefið út samkvæmt reglu­gerð þessari fyrir 1. apríl 2008 halda gildi sínu þrátt fyrir ákvæði 1. og 5. gr. reglugerðar­innar.

XIV. KAFLI

Reglugerð nr. 432/1987, um starfsheiti og starfsréttindi
matvælafræðinga, með síðari breytingum.

65. gr.

Í stað orðsins "heilbrigðismálaráðherra" í 1. gr. reglugerðarinnar kemur: landlæknis.

66. gr.

Í stað orðanna "Ráðherra getur að fenginni umsögn landlæknis" í 2. málsl. 2. gr. reglugerðarinnar kemur: Landlæknir getur að fenginni umsögn.

67. gr.

7. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

Um eftirlit með matvælafræðingum, veitingu áminningar og sviptingu starfsleyfa eða tak­mörkun starfsréttinda sem veitt eru samkvæmt reglugerð þessari og endurveitingu slíkra réttinda gilda ákvæði laga um landlækni.

Ákvæði læknalaga gilda að öðru leyti eftir því sem við getur átt um matvælafræðinga og um refsingar fyrir brot í starfi.

68. gr.

8. gr. reglugerðarinnar fellur brott.

69. gr.

Ákvæði til bráðabirgða með reglugerðinni orðast svo:

Starfsleyfi sem heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra hefur gefið út samkvæmt reglu­gerð þessari fyrir 1. apríl 2008 halda gildi sínu þrátt fyrir ákvæði 1. gr. reglugerðarinnar.

XV. KAFLI

Breyting á reglugerð nr. 272/1991, um menntun, réttindi og
skyldur náttúrufræðinga, sem starfa á sérhæfðum
rannsóknarstofum heilbrigðisstofnana.

70. gr.

Í stað orðins "heilbrigðisráðherra" í 1. gr. reglugerðarinnar kemur: landlæknis.

71. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 2. gr. reglugerðarinnar:

  1. Í stað orðanna "Ríkisspítala, Borgarspítala, Landakotsspítala" í 1. málsl. kemur: Landspítala.
  2. Orðin "og landlæknis" í 2. málsl. falla brott.

72. gr.

8. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

Um eftirlit með náttúrufræðingum í heilbrigðisþjónustu, veitingu áminningar og sviptingu starfsleyfa eða takmörkun starfsréttinda sem veitt eru samkvæmt reglugerð þessari og endurveitingu slíkra réttinda gilda ákvæði laga um landlækni.

Ákvæði læknalaga gilda að öðru leyti eftir því sem við getur átt um náttúrufræðinga í heilbrigðisþjónustu og um refsingar fyrir brot í starfi.

73. gr.

Ákvæði til bráðabirgða með reglugerðinni orðast svo:

Starfsleyfi sem heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra hefur gefið út samkvæmt reglu­gerð þessari fyrir 1. apríl 2008 halda gildi sínu þrátt fyrir ákvæði 1. gr. reglugerðarinnar.

XVI. KAFLI

Breyting á reglugerð nr. 50/2007 um starfsheiti og
starfsréttindi næringarfræðinga.

74. gr.

Í stað orðsins "heilbrigðisráðherra" í 1. gr. reglugerðarinnar kemur: landlæknis.

75. gr.

Orðin "og landlæknis" í 2. málsl. 2. gr. reglugerðarinnar falla brott.

76. gr.

7. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

Um eftirlit með næringarfræðingum, veitingu áminningar og sviptingu starfsleyfa eða tak­mörkun starfsréttinda sem veitt eru samkvæmt reglugerð þessari og endurveitingu slíkra réttinda gilda ákvæði laga um landlækni.

Ákvæði læknalaga gilda að öðru leyti eftir því sem við getur átt um næringarfræðinga og um refsingar fyrir brot í starfi.

77. gr.

Við reglugerðina bætist ákvæði til bráðabirgða sem orðast svo:

Starfsleyfi sem heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra hefur gefið út samkvæmt reglu­gerð þessari fyrir 1. apríl 2008 halda gildi sínu þrátt fyrir ákvæði 1. gr. reglugerðarinnar.

XVII. KAFLI

Breyting á reglugerð nr. 51/2007 um starfsheiti og
starfsréttindi næringarráðgjafa.

78. gr.

Í stað orðsins "heilbrigðisráðherra" í 1. gr. reglugerðarinnar kemur: landlæknis.

79. gr.

Orðin "og landlæknis" í 2. málsl. 2. gr. reglugerðarinnar falla brott.

80. gr.

7. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

Um eftirlit með næringarráðgjöfum, veitingu áminningar og sviptingu starfsleyfa eða tak­mörkun starfsréttinda sem veitt eru samkvæmt reglugerð þessari og endurveitingu slíkra réttinda gilda ákvæði laga um landlækni.

Ákvæði læknalaga gilda að öðru leyti eftir því sem við getur átt um næringarráðgjafa og um refsingar fyrir brot í starfi.

81. gr.

Við reglugerðina bætist ákvæði til bráðabirgða sem orðast svo:

Starfsleyfi sem heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra hefur gefið út samkvæmt reglu­gerð þessari fyrir 1. apríl 2008 halda gildi sínu þrátt fyrir ákvæði 1. gr. reglugerðarinnar.

XVIII. KAFLI

Breyting á reglugerð nr. 873/2006, um menntun, réttindi og skyldur næringarrekstrarfræðinga á heilbrigðisstofnunum.

82. gr.

Í stað orðsins "heilbrigðismálaráðherra" í 1. gr. reglugerðarinnar kemur: landlæknis.

83. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 2. gr. reglugerðarinnar:

  1. Í stað orðanna "heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu" í 1. mgr. kemur: heilbrigðisráðherra.
  2. Orðin "landlæknis og" í 2. mgr. falla brott.

84. gr.

7. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

Um eftirlit með næringarrekstrarfræðingum, veitingu áminningar og sviptingu starfsleyfa eða takmörkun starfsréttinda sem veitt eru samkvæmt reglugerð þessari og endur­veitingu slíkra réttinda gilda ákvæði laga um landlækni.

Ákvæði læknalaga gilda að öðru leyti eftir því sem við getur átt um næringarrekstrar­fræðinga og um refsingar fyrir brot í starfi.

85. gr.

Við reglugerðina bætist ákvæði til bráðabirgða sem orðast svo:

Starfsleyfi sem heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra hefur gefið út samkvæmt reglu­gerð þessari fyrir 1. apríl 2008 halda gildi sínu þrátt fyrir ákvæði 1. gr. reglugerðarinnar.

XIX. KAFLI

Breyting á reglugerð nr. 229/2005, um menntun,
réttindi og skyldur osteópata.

86. gr.

Í stað orðsins "heilbrigðisráðherra" í 1. gr. reglugerðarinnar kemur: landlæknis.

87. gr.

Orðin "landlæknis og" í 3. málsl. 2. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar falla brott.

88. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 3. gr. reglugerðarinnar:

  1. Í stað orðsins "ráðherra" kemur: landlækni.
  2. Orðin "landlæknis og" falla brott.

89. gr.

9. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

Um eftirlit með osteópötum, veitingu áminningar og sviptingu starfsleyfa eða takmörkun starfsréttinda sem veitt eru samkvæmt reglugerð þessari og endurveitingu slíkra réttinda gilda ákvæði laga um landlækni.

Ákvæði læknalaga gilda að öðru leyti eftir því sem við getur átt um osteópata og um refsingar fyrir brot í starfi.

90. gr.

Við reglugerðina bætist ákvæði til bráðabirgða sem orðast svo:

Starfsleyfi sem heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra hefur gefið út samkvæmt reglu­gerð þessari fyrir 1. apríl 2008 halda gildi sínu þrátt fyrir ákvæði 1. gr. reglugerðar­innar.

XX. KAFLI

Breyting á reglugerð nr. 158/1990, um sérfræðileyfi sálfræðinga.

91. gr.

Í stað orðsins "menntamálaráðuneytisins" í 1. gr. reglugerðarinnar kemur: landlæknis.

92. gr.

Orðið "menntamálaráðuneytisins" í a-lið 2. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar fellur brott.

93. gr.

Í stað orðsins "Menntamálaráðuneytið" í 2. málsl. 1. mgr. 3. gr. reglugerðarinnar kemur: Heilbrigðisráðherra.

94. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 13. gr. reglugerðarinnar:

  1. Í stað orðsins "menntamálaráðuneytisins" í 1. málsl. 1. mgr. kemur: landlæknis.
  2. Í stað orðsins "Menntamálaráðuneytið" í 1. málsl. 2. mgr. kemur: Landlæknir.
  3. 3. og 4. mgr. falla brott.

95. gr.

Við reglugerðina bætist ákvæði til bráðabirgða sem orðast svo:

Starfsleyfi sem heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra og menntamálaráðherra hafa gefið út samkvæmt reglugerð þessari fyrir 1. apríl 2008 halda gildi sínu þrátt fyrir ákvæði 1. gr. reglugerðarinnar.

XXI. KAFLI

Breyting á reglugerð nr. 1043/2004, um menntun sjóntækjafræðinga og
takmarkanir á heimild þeirra til sjónmælinga, með síðari breytingum.

96. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 1. gr. reglugerðarinnar:

  1. Í stað orðanna "heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra" í 1. málsl. 2. mgr. kemur: landlæknis.
  2. 5. mgr. orðast svo:
    Leita skal umsagnar læknadeildar Háskóla Íslands og Félags íslenskra sjóntækja­fræðinga áður en leyfi er veitt.

97. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 2. gr. reglugerðarinnar:

  1. Í stað orðanna "heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra" í 1. mgr. kemur: land­læknis.
  2. Í stað orðanna "heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra" í 2. mgr. kemur: land­læknis.

98. gr.

Ákvæði til bráðabirgða með reglugerðinni orðast svo:

Starfsleyfi sem heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra hefur gefið út samkvæmt reglu­gerð þessari fyrir 1. apríl 2008 halda gildi sínu þrátt fyrir ákvæði 1. og 2. gr. reglugerðar­innar.

XXII. KAFLI

Breyting á reglugerð nr. 504/1986, um menntun, réttindi og skyldur sjúkraflutningamanna, með síðari breytingum.

99. gr.

Í stað orðsins "heilbrigðismálaráðherra" í 1. gr. reglugerðarinnar kemur: landlæknis.

100. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 2. gr. reglugerðarinnar:

  1. Í stað orðsins "heilbrigðismálaráðuneytið" í 1. málsl. kemur: heilbrigðisráðherra.
  2. Orðin "landlæknis og" í 2. málsl. falla brott.

101. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 4. gr. reglugerðarinnar:

  1. Í stað orðsins "heilbrigðismálaráðuneytinu" í 1. málsl. 1. mgr. kemur: heilbrigðis­ráðherra.
  2. Í stað orðsins "Heilbrigðismálaráðuneytið" í 2. mgr. kemur: Heilbrigðisráðherra.

102. gr.

Orðin "og eru í starfi sínu háðir faglegu eftirliti landlæknis í samræmi við lög nr. 59/1983 um heilbrigðisþjónustu og ákvæði læknalaga nr. 80/1969" í 2. málsl. 5. gr. reglugerðar­innar falla brott.

103. gr.

9. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

Um eftirlit með sjúkraflutningamönnum, veitingu áminningar og sviptingu starfsleyfa eða takmörkun starfsréttinda sem veitt eru samkvæmt reglugerð þessari og endurveitingu slíkra réttinda gilda ákvæði laga um landlækni.

Ákvæði læknalaga gilda að öðru leyti eftir því sem við getur átt um sjúkraflutningamenn og um refsingar fyrir brot í starfi.

104. gr.

Ákvæði til bráðabirgða með reglugerðinni orðast svo:

Starfsleyfi sem heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra hefur gefið út samkvæmt reglu­gerð þessari fyrir 1. apríl 2008 halda gildi sínu þrátt fyrir ákvæði 1. gr. reglugerðar­innar.

XXIII. KAFLI

Breyting á reglugerð nr. 897/2001, um menntun,
réttindi og skyldur sjúkraliða.

105. gr.

Í stað orðsins "heilbrigðisráðherra" í 1. gr. reglugerðarinnar kemur: landlæknis.

106. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 2. gr. reglugerðarinnar:

  1. Í stað orðanna "heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið" í 1. mgr. kemur: heilbrigðisráðherra.
  2. Orðin "og hjúkrunarráðs" í 2. mgr. falla brott.

107. gr.

Við reglugerðina bætist ákvæði til bráðabirgða sem orðast svo:

Starfsleyfi sem heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra hefur gefið út samkvæmt reglu­gerð þessari fyrir 1. apríl 2008 halda gildi sínu þrátt fyrir ákvæði 1. gr. reglugerðar­innar.

XXIV. KAFLI

Breyting á reglugerð nr. 204/1987, um menntun, réttindi og
skyldur sjúkranuddara, með síðari breytingum.

108. gr.

Í stað orðsins "heilbrigðisráðherra" í 1. gr. reglugerðarinnar kemur: landlæknis.

109. gr.

3. málsl. 2. gr. reglugerðarinnar fellur brott.

110. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 3. gr. reglugerðarinnar:

  1. Í stað orðsins "ráðherra" kemur: landlæknir.
  2. Orðin "að fenginni umsögn landlæknis" falla brott.

111. gr.

9. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

Um eftirlit með sjúkranuddurum, veitingu áminningar og sviptingu starfsleyfa eða tak­mörkun starfsréttinda sem veitt eru samkvæmt reglugerð þessari og endurveitingu slíkra réttinda gilda ákvæði laga um landlækni.

Ákvæði læknalaga gilda að öðru leyti eftir því sem við getur átt um sjúkranuddara og um refsingar fyrir brot í starfi.

112. gr.

Ákvæði til bráðabirgða með reglugerðinni orðast svo:

Starfsleyfi sem heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra hefur gefið út samkvæmt reglu­gerð þessari fyrir 1. apríl 2008 halda gildi sínu þrátt fyrir ákvæði 1. og 3. gr. reglugerðar­innar.

XXV. KAFLI

Breyting á reglugerð nr. 145/2003, um veitingu sérfræðileyfa í sjúkraþjálfun.

113. gr.

Í stað orðanna "heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra" í 1. gr. reglugerðarinnar kemur: landlæknis.

114. gr.

Í stað orðanna "heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytis" í 2. gr. reglugerðarinnar kemur: landlæknis.

115. gr.

Í stað orðanna "starfsleyfi heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra" í 1. tölul. 1. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar kemur: leyfi.

116. gr.

Ákvæði til bráðabirgða með reglugerðinni orðast svo:

Starfsleyfi sem heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra hefur gefið út samkvæmt reglu­gerð þessari fyrir 1. apríl 2008 halda gildi sínu þrátt fyrir ákvæði 1. gr. reglugerðar­innar.

XXVI. KAFLI

Breyting á reglugerð nr. 460/2007, um menntun, réttindi
og skyldur stoðtækjafræðinga.

117. gr.

Í stað orðsins "heilbrigðisráðherra" í 1. og 2. mgr. 1. gr. reglugerðarinnar kemur: landlæknis.

118. gr.

Orðin "og embættis landlæknis" í 2. gr. reglugerðarinnar falla brott.

119. gr.

6. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

Um eftirlit með stoðtækjafræðingum, veitingu áminningar og sviptingu starfsleyfa eða takmörkun starfsréttinda sem veitt eru samkvæmt reglugerð þessari og endurveitingu slíkra réttinda gilda ákvæði laga um landlækni.

Ákvæði læknalaga gilda að öðru leyti eftir því sem við getur átt um stoðtækjafræðinga og um refsingar fyrir brot í starfi.

120. gr.

Við reglugerðina bætist ákvæði til bráðabirgða sem orðast svo:

Starfsleyfi sem heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra hefur gefið út samkvæmt reglu­gerð þessari fyrir 1. apríl 2008 halda gildi sínu þrátt fyrir ákvæði 1. gr. reglugerðarinnar.

XXVII. KAFLI

Breyting á reglugerð nr. 618/1987, um réttindi og skyldur
talmeinafræðinga, með síðari breytingum.

121. gr.

Í stað orðsins "heilbrigðismálaráðherra" í 1. gr. reglugerðarinnar kemur: landlæknis.

122. gr.

Í stað orðsins "heilbrigðisráðuneytið" í 1. málsl. 2. gr. reglugerðarinnar kemur: heilbrigðisráðherra.

123. gr.

Orðin "landlæknis og" í 4. gr. reglugerðarinnar falla brott.

124. gr.

11. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

Um eftirlit með talmeinafræðingum, veitingu áminningar og sviptingu starfsleyfa eða tak­mörkun starfsréttinda sem veitt eru samkvæmt reglugerð þessari og endurveitingu slíkra réttinda gilda ákvæði laga um landlækni.

Ákvæði læknalaga gilda að öðru leyti eftir því sem við getur átt um talmeinafræðinga og um refsingar fyrir brot í starfi.

125. gr.

12. gr. reglugerðarinnar fellur brott.

126. gr.

Ákvæði til bráðabirgða með reglugerðinni orðast svo:

Starfsleyfi sem heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra hefur gefið út samkvæmt reglu­gerð þessari fyrir 1. apríl 2008 halda gildi sínu þrátt fyrir ákvæði 1. gr. reglugerðar­innar.

XXVIII. KAFLI

Breyting á reglugerð nr. 638/1987, um menntun, réttindi
og skyldur tannfræðinga.

127. gr.

Í stað orðsins "heilbrigðismálaráðherra" í 1. gr. reglugerðarinnar kemur: landlæknis.

128. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 2. málsl. 2. gr. reglugerðarinnar:

  1. Á eftir orðinu "tannfræðinga" kemur: og.
  2. Orðin "og landlæknis" falla brott.

129. gr.

8. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

Um eftirlit með tannfræðingum, veitingu áminningar og sviptingu starfsleyfa eða tak­mörkun starfsréttinda sem veitt eru samkvæmt reglugerð þessari og endurveitingu slíkra réttinda gilda ákvæði laga um landlækni.

Ákvæði læknalaga gilda að öðru leyti eftir því sem við getur átt um tannfræðinga og um refsingar fyrir brot í starfi.

130. gr.

Við reglugerðina bætist ákvæði til bráðabirgða sem orðast svo:

Starfsleyfi sem heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra hefur gefið út samkvæmt reglu­gerð þessari fyrir 1. apríl 2008 halda gildi sínu þrátt fyrir ákvæði 1. gr. reglugerðarinnar.

XXIX. KAFLI

Breyting á reglugerð nr. 545/2007, um sérfræðileyfi tannlækna.

131. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 4. gr. reglugerðarinnar:

  1. Í stað orðsins "heilbrigðisráðuneytis" í 1. mgr. kemur: landlæknis.
  2. Í stað orðsins "ráðuneytinu" í 2. og 4. mgr. kemur: landlækni.

132. gr.

Við reglugerðina bætist ákvæði til bráðabirgða sem orðast svo:

Starfsleyfi sem heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra hefur gefið út samkvæmt reglu­gerð þessari fyrir 1. apríl 2008 halda gildi sínu.

XXX. KAFLI

Breyting á reglugerð nr. 259/1998, um menntun, réttindi
og skyldur tanntækna.

133. gr.

Í stað orðsins "heilbrigðisráðherra" í 1. gr. reglugerðarinnar kemur: landlæknis.

134. gr.

2. málsl. 2. gr. reglugerðarinnar fellur brott.

135. gr.

7. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

Um eftirlit með tanntæknum, veitingu áminningar og sviptingu starfsleyfa eða takmörkun starfsréttinda sem veitt eru samkvæmt reglugerð þessari og endurveitingu slíkra réttinda gilda ákvæði laga um landlækni.

Ákvæði læknalaga gilda að öðru leyti eftir því sem við getur átt um tanntækna og um refsingar fyrir brot í starfi.

136. gr.

Við reglugerðina bætist ákvæði til bráðabirgða sem orðast svo:

Starfsleyfi sem heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra hefur gefið út samkvæmt reglu­gerð þessari fyrir 1. apríl 2008 halda gildi sínu þrátt fyrir ákvæði 1. gr. reglugerðarinnar.

XXXI. KAFLI

Reglugerð nr. 215/1987, um störf, starfsvettvang og starfshætti þroskaþjálfa.

137. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 1. gr. reglugerðarinnar:

  1. Í stað orðsins "heilbrigðisráðherra" í 1. mgr. kemur: landlæknis.
  2. Í stað orðanna "frá Þroskaþjálfaskóla Íslands (áður Gæslusystraskóli Íslands)" í 2. mgr. kemur: í þroskaþjálfun frá háskóla hér á landi.
  3. Í stað orðsins "Þroskaþjálfaskóla" í 3. mgr. kemur: Háskóla.

138. gr.

11. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

Um eftirlit með þroskaþjálfum, veitingu áminningar og sviptingu starfsleyfa eða tak­mörkun starfsréttinda sem veitt eru samkvæmt reglugerð þessari og endurveitingu slíkra réttinda gilda ákvæði laga um landlækni.

Ákvæði læknalaga gilda að öðru leyti eftir því sem við getur átt um þroskaþjálfa og um refsingar fyrir brot í starfi.

139. gr.

13. og 14. gr. reglugerðarinnar falla brott.

140. gr.

Við reglugerðina bætist ákvæði til bráðabirgða sem orðast svo:

Starfsleyfi sem heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra hefur gefið út samkvæmt reglu­gerð þessari fyrir 1. apríl 2008 halda gildi sínu þrátt fyrir ákvæði 1. gr. reglugerðar­innar.

XXXII. KAFLI

Breyting á reglugerð nr. 244/1994, um staðfestingu starfsleyfa nokkurra
heilbrigðisstétta o.fl. skv. ákvæðum EES-samningsins,
með síðari breytingum.

141. gr.

Í stað orðanna "heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra" í 1. mgr. 1. gr. reglugerðarinnar kemur: landlæknis.

142. gr.

Í stað orðanna "Heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra" í 3. gr., 3. gr. a, 4. gr., 5. gr., 6. gr., 7. gr., 8. gr., 9. gr., 10. gr. og 14. gr. reglugerðarinnar kemur: Landlæknir.

143. gr.

Í stað orðanna "Heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra" í 18. gr. reglugerðarinnar kemur: Heilbrigðisráðherra.

144. gr.

Í stað orðanna "heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu" í 2. mgr. 20. gr., 3. mgr. 20. gr. og 1. málsl. 1. mgr. 21. gr. reglugerðarinnar kemur: landlækni.

145. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 22. gr. reglugerðarinnar:

  1. Í stað orðanna "Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið" í 1. málsl. 1. mgr. kemur: Landlæknir.
  2. 3. mgr. orðast svo:
    Synjun landlæknis um staðfestingu starfsleyfis sæti kæru til ráðherra. Hið sama gildir hafi ákvörðun ekki verið tekin innan tiltekins frests skv. 1. mgr.

146. gr.

Í stað orðanna "Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið" í 24. gr. reglugerðarinnar kemur: Landlæknir.

147. gr.

Í stað orðanna "heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið" í 25. gr. reglugerðarinnar kemur: landlæknir.

148. gr.

Í stað orðanna "Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið" í 2. mgr. 26. gr. reglugerðar­innar kemur: Landlæknir.

149. gr.

Við reglugerðina bætist ákvæði til bráðabirgða sem orðast svo:

Starfsleyfi sem heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra hefur gefið út samkvæmt reglu­gerð þessari fyrir 1. apríl 2008 halda gildi sínu þrátt fyrir ákvæði 3. gr., 3. gr. a, 4. gr., 5. gr., 6. gr., 7. gr., 8. gr., 9. gr., 10. gr. og 14. gr. reglugerðarinnar.

XXXIII. KAFLI

Gildistaka.

150. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 4. gr. laga nr. 95/1990, um félagsráðgjöf, 1. og 3. gr. hjúkrunarlaga nr. 8/1974, með síðari breytingum, 2. og 10. gr. laga nr. 99/1980, um lífeindafræðinga, með síðari breytingum, 1. og 15. gr. laga nr. 35/1978, um lyfja­fræðinga, með síðari breytingum, 1., 2. og 5. gr. læknalaga, nr. 53/1988, með síðari breytingum, 5. gr. laga nr. 40/1976, um sálfræðinga, með síðari breytingum, 5. gr. laga nr. 17/1984, um sjóntækjafræðinga, með síðari breytingum, 8. gr. laga nr. 58/1984, um sjúkraliða, 4. gr. laga nr. 58/1976, um sjúkraþjálfun, með síðari breytingum, 2. gr. laga nr. 24/1985, um starfsheiti og starfsréttindi heilbrigðisstétta, með síðari breytingum, 1. og 5. gr. laga nr. 38/1985, um tannlækningar, með síðari breytingum, og 9. gr. laga nr. 18/1978, um þroskaþjálfa, öðlast gildi nú þegar. Frá sama tíma falla brott ljósmæðra­reglugerð nr. 103/1933, með síðari breytingum, og reglugerð nr. 242/1981, um matar­tækna.

Heilbrigðisráðuneytinu, 7. október 2008.

Guðlaugur Þór Þórðarson.

Vilborg Þ. Hauksdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica